Vikan

Eksemplar

Vikan - 01.04.1976, Side 22

Vikan - 01.04.1976, Side 22
fckk ekki stundarfrið. Ncma þcgar amma hans kom í heimsókn. Sam- bandið milli þcirra var gott. Allt í einu brast hún í grát. — Ég skil ekki hvernig ég gat gert honum þetta, snökti hún. — Það var eins og ég hefði misst vitið. Ég þvingaði hann og hagaði mér ákaflega heimskulega. Ég fékk að sjá sönnun þess, sem ég óskaði mér. að bak við þetta undarlega háttalag leyndist greind og hæfni. Og ég gat ekki viðurkennt fyrir sjálfri mér. að ég hefði gert neitt, sem gseti verið orsök vandamála hans. Ég gat ekki viðurkennt, að ég afneitaði honum. Ég gæti ekki sagt þetta núna, nema af því að ég afneita honum ckki lcngur. Dibs er barnið mitt. og ég er stolt af honum. Hún horfðí rannsakandi á mig. Allt í einu hélt hún á pappír- stranga, sem hún hlaut að hafa tekið með sér. Hún tók hann sundur og rétti mér teikningar. — Líttu á þær, sagði hún. — Sjáðu víddina I þeim. Ég skoðaði teikningarnar. Þær voru sannarlega óvenju þroskuð smíð sex ára barns. Hann hafði tciknað fyrirmyndirnar mjög ná- kvæmlega, hvert minnsta smáatriði. Víddin og dýptin í teikningunum var hrífandi. — Of góðar, sagði hún lágt. — Það er það, sem ég óttast. Allir þessir sjaldgæfu hæfileikar. Ég hef kvalið mig með þeirri hugs- un. að hann geti verið með geð- klofa. En nú er ég ekki hrædd við það lengur. Hann er farinn að hegða sér eðlilegar. Þessi móðir hafði læknisfræði- menntun, og hún vissi að sjúk- dómsgreiningin hefði getað átt við Dibs. — Hvernig lærði hann að lesa? spurði ég. — Ég keypti tvo bókstafakubba- kassa handa honum. Allt stafrófið skorið út í tré. Og ég sýndi honum hvern bókstaf, sagði honum, hvað hann hét, og hvernig hann var sagður. Svo raðaði ég þeim upp, og hann sat og horfði á þá. Svo ruglaði ég þeim og sagði honum að raða þeim rétt upp. En hann hljóp bara út úr herberginu. Ég raðaði þeim sjálf upp og setti hinn kassann við hliðina. I þriðju atrennu raðaði hann kubbunum úr honum eins og hinum. Og eftir það gat hann raðað bókstöfunum rétt, aleinn. Svo varð ég mér úti um alls konar myndir og sagði honum af hverju hver mynd um sig var og skrifaði síðan orðið með prcntstöfum. Svo stafaði ég orðið mcð kubbunum. Brátt var Dibs farinn að gera það sama, stafaði orð og setti rétta mynd við hliðina. Hann las með öðrum orðum. Því næst náði ég í ógrynni my.dabóka með stuttum textum. Ég gaf hon- um ævintýrabækur og las upphátt fyrir hann, aftur og aftur. Ég keypti hljómplötur með söngleikjum, ævintýrum, kvæðum. Við sendum systur hans í heimavistarskóla — það er frænka mín, sem rckur skól- ann — til þess ég gæti einbeitt mér að honum. Ég spyr sjálfa mig þess nú, hvers vegna ég lagði svona mikla áherslu á alla þessa kunnáttu og hæfni, Hann var enn mjög lítill, þegar ég fór að þvinga hann til þcss að sýna mér, hvers hann væri umkominn. Því gat ég ekki leyft Dibs að vera barn? Barnið mitt? Og því gat ég ekki verið glöð yfir að eiga hann? Ég er stolt af Dibs. Mér þykir vænt um hann. Nú er hann ckki neyddur til þess að sanna rétt sinn til að lifa hvcrja einustu mínútu dagsins. Og hann hefur breyst. Og tilfinningar mannsins míns hafa einnig breyst. Við höfum hlaðið ógnvekjandi veggi kringum okkur — kringum okkur öll. Ekki Dibs cinn. Ég líka. Og maðurinn minn. Og ef þessir veggir hrynja — þeir eru farnir að láta sig — þá verðum við miklu hamingjusamari, ná- tengdari hvert öðru. Þegar Jane, yfirfóstran f leik- 'skólanum, hringdi til mín daginn eftir, heið ég þess í ofvæni að heyra, hvað hún hefði að segja irm Dibs og atferli hans f leikskólanum. Eitt- hvað af öllu því, sem ég hafði séð og hcyrt f leikþjálfunartímunum, hlaut að hafa komið fram í leik- skólanum. Hún lét mig ckki þurfa að bfða lengi. — Mér er það sönn ánægja að geta sagt, að við höfum orðið varar mikilla breytinga hjá Dibs, sagði hún. — Hann hefur breyst smám saman, og við gleðjumst allar yfir því. Hann er farinn að svara, þegar við yrðum á hann. Það kemur meira að segja fyrir, að hann ávarpar okkur að fyrra bragði. Við borðuðum saman hádegis- verð daginn eftir, og hún sagði mér meira af hátterni Dibs f leikskól- anum. Hægt og leitandi hafði hann þokast út úr einangruninni, sem hann hafði verið f. Hvorug okkar cfaðist um, að Dibs hefði allan tím- ann veitt því athygli, hvað gerðist kringum hann. Við höfðum báðar getið okkur þess sama til — að hann hefði hlustað og hlcrað, þar sem hann hnipraði sig saman sem lengst frá hinum börnunum, undir ■f ' «| DIBS borði, eða mcð bakið í hópinn eins og honum stæði á sama um allt og alla. Smám saman hafði hann samlagast börnunum meira. Hcdda sýndi mér nokkur mál- verk eftir hann. — Hann er kannski enginn listamaður, sagði hún. — En hann cr farinn að gera svolítið. Ég horfði á teikningarnar. Þær voru mjög einfaldar, dæmigerðar tcikningar sex ára barns. Frumstætt húsið. Trén. Blómin. Litirnir voru skærir og sterkir. En hvers vegna málaði Dibssvona myndir úr því að hann gat auðveldlega málað miklu fullkomnari listaverk? Þessar teikn- ingar hefði næstum hvaða barn sem var á hans aldrei getað gert. — Ég er líka með svolítið af öðrum verkcfnum, scm hann hefur gert, sagði Hedda. — Hér er svolítið, sem hann hefur skrifað. Dibs hafði með erfiðismunum skrifað eftirfarandi með prent- stöfum. Ég sé kött. Ég sé hund. Ég sé þig. Þessi skýrsla um Dibs kom mér mjög á óvart. Þetta gat bent til svo margs. Enginn vafi lék á þvf, að Dibs mat hrós fóstranna mikils. Ef ég segði þcim, að hann gæti miklu bctur, misstu þær kannski kjarkinn og yrðu óánægðar með framfarir hans. Enginn vafi lck lengur á hæfileikum hans — ef þeir höfðu þá ekki þegar orðið fyrir of miklu álagi. En hvaða gleði getur einstakl- ingur haft af miklum gáfum, ef hann gctur ckki fært sér þær í nyt, sjálfum sér til heilla og öðrum til ánægju? Fóstrurnar voru ánægðar með Dibs. Ég lfka. En við áttum mörgu ólokið enn. Dibs varð að læra að viðurkcnna sjálfan sig eins og hann var, nýta hæfileika sína.en afneita þeim ekki. Allt of mörgum börn- um, sem gædd eru óvenjulcgum hæfileikum, tckst ckki að þroska þá scm skyldi, heldur lokast þau inni í eigin heimi. Séu börn sérlega bráð- ger andlega getur það valdið ótrú- legustu vandamálum, bæði félags- legum og einstaklingslegum. Þegar Dibs kom f næsta tfma, spurði hann, hvort hann mætti vera allan tfmann inni á skrifstofunni minni. — Ég sá nefnilega, að þú ert með segulband þar, sagði hann. — Má ég kannski taka upp á bandið? Ég sagði það væri allt f lagi, og við gengum inn f skrifstofuna mfna. Ég sctti nýja spólu á tækið og sýndi Dibs.hvernig átti að taka upp. Hann greip hljóðnemann ákafur og byrjaði upptökuna. — Þetta er Dibs, sagði hann. — Hlustaðu á mig, segulband. Þú tekur röddina mína og heldur henni fastri. Þetta er Dibs. Ég er Dibs. Þetta er ég. Hann stöðvaði bandið, spólaði til baka og hlustaði á upptökuna. Svo stöðvaði hann bandið og brosti breitt til mfn. — Þetta var röddin mín, sagði hann. — Ég talaði og bandið tók röddina mfna upp. Ég ætla að tala mikið og við skulum alltaf , gtyma orðin á bandinu. Bara handa okkur. Hann byrjaði aftur að taka upp á bandið og talaði í hljóðnemann. Hann sagði fullt'nafn sitt, heimilis- fang og símanúmer. Svo sagði hann fullt nafn allra í fjölskyldunni, þar á meðal ömmu sinnar. — Ég cr Dibs og ég ætla að segja svolítið, bætti hann við. — Ég er á skrifstofunni hjá ungfrú A, og það er segulband hér, og nú tala ég inn á segulbandið. Ég geng f skóla. —Ég heyri einhvern korna inn um dyrnar, hélt hann áfram. — hann hefur of hátt. Það á ckki að hafa hátt inni f húsi. Ó, þetta er pabbi. Hvað á það að þýða að skella hurðinni svona á eftir sér, pabbi? Þú ert heimskur og hugsunarlaus. Ég vil ekki sjá þig nærri mér, þegar þú lætur svona. Mér er rétt sama, hvað þú segir og vilt. Ég set þig inn í hcrbergið þitt og ég læsi þig inni, svo við þurfum ekki að heyra í þér öskrin og skellina, þegar þú gengur um dyr. Dibs stöðvaði bandið og gekk út að glugganum. v — Það cr gott veður í dag, sagði hann. Svo hlustaði hann á allt bandið aftur, alvarlegur f framan. Hann spilaði hrópin og hurðarskellina í pabba aftur og aftur. Sfðan stöðvaði hann bandið. — Pabba finnst ekki gaman að vera lokaður inni f herbcrginu sínu, sagði hann. — honum finnst ekki

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.