Vikan

Tölublað

Vikan - 01.04.1976, Blaðsíða 34

Vikan - 01.04.1976, Blaðsíða 34
UMSJÓN SMARI VALGEIRSSON. BAltltL BABBL PARADÍS Í FÆREYJUM Frekar lítið hefur heyrst af gerðum þeirra kappa í hljóm- sveitinni Paradís að undan- förnu. Þó flaug ein smáfrétt fyrir á dögunum, já það má kannski deila um það, hvort um smáfrétt er að ræða, en allt um það. Til stendur sem sé, að þeir paradísargaurar ætli að skella sér í reisu til granna okkar færeyinga og fremja fyrir þá músík um nokkurn tíma. Það er svo sem ekki í fyrsta skipti, að Pétur söngvari og þær hljómsveitir, sem hann er aðili að, skreppi til Færeyja. Þess er skemmst að minnast, að á sínum tíma höfðu færey- ingar Náttúru í viku, þá var það Svanfríður, loks Pelican og nú á það að verða Paradís. Ekki dónalegt það. Annars er það annað að frétta af þeim köppum, að þeir æfa nú stíft fyrir LP skífu hljómsveitarinnar, sem vænt- anlega mun koma út svona þegar hilla tekur undir vorið hjá okkur (þ.e.a.s., ef þetta helv... vor kemur þá). Við höfum reyndar sagt frá því hér í þættinum fyrir skömmu, að von væri á plötu frá hljómsveitinni og jafnframt, að Hljómaútgáfan ætlaði að vera útgáfuaðili plötunnar. Nú, en þar sem þeir Gunni og Rúnar eru ekki lengur saman í kompaníi, þá fellur það um sjálft sig, en nýstofnað fyrir- tæki Gunna Þórðar varð fyrir valinu sem útgáfuaðili. Meira um paradís seinna. Babblbabblbabbl. FÁLKINN Á NÝ I PLÖTU- ÚTGÁFUNA Eitthvað virðist hið virðulega og gamla fyrirtæki Fálkinn vera að taka við sér í plötuútgáfu um þessar mundir. Og tími til kominn, eftir að ungir og trausts verðir menn hafa sýnt fram á, að þetta er ósköp vel. hægt, ef vel er að staðið. Fyrst ber að geta alveg ágætrar plötu, sem út kom fyrir skömmu, með hljómsveit Pálma Gunnarssonar. Þar fer Pálmi á kostum við flutning efnis eftir Magnús Eiríksson, sem greinilega getur fengist við annað en blús. Þá verður maður þægilega undrandi vegna gestasöngs Vilhjálms Vilhjálmssonar á plöt- unni, en þar syngur hann þrjú lög. Annars ætla ég ekki að segja meira um þessa plötu að sinni, en gera henni betri skil, eftir að hún hefur borist mér í hendur. Babblbabblbabbl. S.G. ÚTGÁFAN AÐ VAKNA Þá er Svavar Gests (stendur fyrir SG-hljómplötur), sem einu sinni var aðalkallinn í popp- plötuútgáfu hér á Fróni, farinn að hugsa sér til hreyfings eftir talsvert langa hvíld. Þar er fyrst að nefna plötu með fyrrverandi Change-lim Jóhanni Helgasyni, öðrum helmingnum af Magga og Jóa. Þar er um sóló-plötu að ræða, og er efni hennar allt eftir Jóhann. Þessarar plötu er að vænta á markað eftir nokkrar vikur. Þá er Svavar búinn að gera samning við Björgvin Gíslason gítarleikara í Paradís, og mun hann einnig senda frá sér sóló-plötu, þá fyrstu, og finnst vafalaust flestum mál til komið, þegar um snilling eins og Björgvin er að ræða. Útkomu- tími þeirrar plötu er ekki á hreinu. Babblbabblbabbl. J FATT ER SVO MEÐ ÖLLU ILLT AÐ... Ég hef stundum verið að þrasa og bölsótast yfir sjón- varpinu okkar og áhaldi þeirra stofnunar á ýmsum málum, er varða unga fólkið. Mörgum hefur þótt, sem ég væri ó- myrkur í máli og tæki stundum fulldjúpt í árinni. Ekki er ég nú í þann veginn að fara að éta ofan í mig, eða draga úr neinum af þeim ummælum, sem ég hef viðhaft um þessa stofnun í þessum þáttum mín- um. Hitt er svo annað mál, að sjálfsagt og skylt er að geta þess, ÞEGAR eitthvað gott kemur frá þessari stofnun og skal það nú gert. Hér fyrir nokkrum vikum, tóku þeir hjá sjónvarpinu uppá því, að skjóta inní 5—10 mín- útna upptökum, þar sem fram komu ýmsar þekktar hljóm- sveitir t.d. Sailor o. fl. Þessi innskot áttu sér stað milli annarra meiriháttar liða í dag- skránni, og það meira var, þetta voru skot af nýjara taginu, varla meira en 3 — 5 mánaða. Þetta er allt gott og blessað, og vil ég fyrir hönd ungs fólks biðja um meira af svo góðu. En geta þessi skot ekki verið örlítið lengri? Þá ráku margir upp stór augiC þegar tilkynnt var með talsverðu stolti, að nú væri á dagskrá skemmtiþáttur með Paul McCartney og Wings, súper hljómsveitinni hans. Flestir sátu fyrir framan imbann með teygða álku, og spenning- urinn var mikill. Já, þátturinn var góður, en mikið skrambi sló miklum fölva á hann, þegar maður sá, að hann hafði verið frumsýndur í London fyrripart ársins 1973. Sem sagt næstum þrjú ár síðan hann var og hét. Samt sem áður ekki svo afleit byrjun hjá þeim. Og í restina vil ég koma á framfæri bestu þökkum fyrir þáttinn með hljómsveit Pálma Gunnarssonar. Þar var á ferð- inni sérdgilis skemmtilegur þáttur. Efpið gott, myndataka og sviðssétning góð og síðast en ekki sístframmistaða þeirra hljómsveitarmanna bæði í gerfi hljómlistarmanna og leikara. Sjónvarpsmenn: Batnandi mönnum er best að lifa. babblbabblbabbl. KIPPUR I TÓNLISTAR- LÍFIÐ Popptónlistarlífið hér á Reykjavíkursvæðinu virðist vera í miklum blóma um þessar mundir. Nýjar hljómsveitir spretta upp, rétt eins og gor- kúlur um mitt sumar. Tilkoma SAM-klúbbsins gamla (fyrirgefðu Tóti) í sviðs- Ijósið á nýjan leik eftir talsvert langt hlé hefur örugglega sitt að segja um orsakir þessa mikla fjörkipps. Ber að þakka aðstandendum klúbbsins mikið og gott sjálfboðaliðsstarf þeirra í þágu ungs fólks, og hvetur Babbl allt ungt fólk til að leggja klúbbnum stuðning, svo að hann megi vaxa og dafna. Fyrir skömmu hélt SAM- klúbburinn sitt fyrsta festival- kvöld á þessu ári. Var það haldið í Klúbbnum að við- stöddu margmenni og þótti takast vel. Meðal þeirra, sem fram komu, má nefna hljómsveitina Eik, með nýja trommarann sinn hann Óla Kolbeins (áður Paradís), Helgu Möller, sem söng og spilaði undir á gítar, Baldur galdrakarl og Gísla Rúnar brandarakall, þjóðlaga- tríóið Þremil, tríó, sem kallar sig Yfirliða.Veturliða og Sum- arliða o. fl. Ef allar áætlanir standast, er ætlunin, að næsta SAM-koma fari fram á sama stað, eftir um það bil mánuð. (Ef kofinn verður þá opinn). Babblbabblbabbl. v J LÍKA MEÐ SATT EÐA LOGIÐ... Ég ætla svona í restina að skjóta inn einum baneitruðum. Ekki veit ég, hvort það er satt eða logið, en ég hef heyrt, að þeir Halli og Laddi ætli að fá Baldur Brjánsson töframann m.m. sem gest á fyrstu LP- plötu sína. Þar á Baldur að fremja töfrabrögð í þrjár mínútur. s.valg. 34 VIKAN 14. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.