Vikan

Eksemplar

Vikan - 11.11.1976, Side 17

Vikan - 11.11.1976, Side 17
— eru óþarfa áhyggjur, allt gengur yfir í fyllingu timans. Börn lifa mörg sjálfstæðis- og draumóra timabil. Við búum miklu oftar til vanda- málin með því að skifta okkur of mikið af eðlilegum þroska barnsins. Við verðum að læra að vera meira sem áhorfendur — oftast vaxa þau upp úr brekunum. Við höldum, að reiðiköst og mótþrói séu hættulegir þættir i skapgerð barna, en það er engin ástæða til að hafa áhyggjur af slíku, heldur öfugt. Þau börn, sem aldrei þora að sýna sitt rétta eðli, eru stillt, hlýðin og feimin, það er miklu fremur eitthvað að hjá þeim, öfugt við þau börn, sem gera uppreisn og halda á rétti sínum gagnvart foreldrum sínum. öll börn geta fengið reiðiköst á hinum ýmsu þroskaskeiðum. Það er merki um heilbrigði að hafa krafta til að reiðast. Treystið ekki samfélaginu. For- eldrar ættu að láta meira að sér kveða, sýna framtak og krefjast hjálpar samfélagsins í rikara mæli, bæði hvað snertir dagheimili, smá- barnaskóla og hinn almenna skóla. Stjórnmálamenn og ráðamenn gera alltof lítið. Þeir eru yfirleitt á miðjum aldri og eiga ekki lítil börn, og önnur sjónarmið giltu, þegar þeir voru sjálfir að ala upp börn. Þeir skilja ekki kröfur nútímans. Við verðum að krefjast aukinnar starf- semi á sviði barnavemdarmála og aukinnar aðstoðar við stofnanir, sem sinna slikum málum. Þessum málum er alltof lítill gaumur gefinn. Gustaf Jonsson, 67 ára gamall, og yngsti sonur hans Mnrtin, sem er 4 ára. — Nú er ég farinn að læra eitthvað, segir Gustaf Jonsson. — Áður kenndi ég öðrum. Mér hefur margoft mistekist sem föður. Ég vona, að mér hafi farið fram með árunum... BOÐORÐIN TÍU 1. Virtu barnseðlið og taktu tillit tií þess. Treystu ekki samfélaginu. 2. Treystu sjálfum þér og vertu þú sjálfur, vertu aldrei „þolinmóður”. 3. Kynntu þér þroskaferil barna eins vel og kostur er. 4. Haltu rétti þinum gagnvart barninu tU að vera fuUorðinn. 5. Láttu ekki tilfinningaleg tengsl miUi þín og bamanna verða of sterk. 6. Gerðu ekki heimUið að virki. 7. Böm þarfnast föður sins, og faðir þarfnast bama sinna. 8. FuUkomið uppeldi væri óbærilegt fyrir bömin. 9. Uppeldi barna á foreldum sínum er jafn mikUvægt og uppeldi foreldra á börnunum. 10. Leyfum börnunum að verða fullorðin og losna undan foreldravaldinu. beinn, líkar það betur en uppgerðar sjálfsstjórn. Margir halda, að ekki eigi að sýra reiði gagnvart börnum sinum og hafa fulla stjórn á sér alla tíð. Það er óeðlilegt og það finna börnin. Þau verða bara ennþá erfiðari, og það kallar á enn meiri sjálfsstjórn og aga. Maður lendir i vitahring. Til að geta sýnt ástúð, verður lika að vera hægt að sýna reiði. Það er ekki einungis hægt að sýna hlýjar tUfinningar og loka þær köldu inni. Þær koma úr sömu uppsprettu. Og eitt skuluð þið muna, það er mjög létt að reiðast þeim sem manni þykir vænt um. Sem sagt, þú skalt ekki vera of „þolinmóður”, þá heldur þú börn- unum frá þér, þau finna kuldann og að framkoma þín er óeðlileg. Þriðja boðorðið: Kynntu þér þroskaferíl bama eins vel og kostur Allir foreldrar ættu að hafa undirstöðuþekkingu á hinum ýmsu þroskaskeiðum barna. Þeir ættu að vita, hvenær má reikna með, að barnið fari að segja tU, þegar það irnaappeldið __ Foreldrar hafa oft óþarfa áhyggjur, við teljum okkur trú um að stöðugt þurfi að skifta sér af gerðum barnsins. Við erum hrædd um að ýmsir ósiðir þeirra verði að vana. Við reynum að venja þau á koppinn alltof snemma. Við heimt- um aUtaf að þau segi satt, og ef þau láta hugmyndaflugið leika lausum hala, höldum við, að það bendi til þess, að þau verði óheiðarleg sem fullorðin. Ef táningurinn er óhlýð- inn höldum við að þurfi að refsa honum og reynum að þvinga hann til hlýðni. Þetta — og margt fleira Annað boðorðið: Treystu sjálfum þér og vertu þú sjálfur, vertu aldrei „þolinmóður”. Ef maður er þreyttur og ergilleg- ur á að láta það i ljósi við barnið, treysta því, að maður eigi rétt á slíkum tilfinningum og ekki hafa samviskubit, þó bamið merki þær. Það er betra að gera vitleysur, af því að maður telur sig vera að gera rétt, en að gera eitthvað sem maður trúir ekki á. Börnum líkar vel, að maður sé ærlegur og hreinn og þarf á koppinn. Flestir byrja alltof snemma að reyna að venja börnin á koppinn, þeir vita ekki, að það er fyrst við 1 1/2 árs aldurinn, sem barnið er nægilega þroskað til þess að það beri árangur. Margir gera ósanngjamar kröfur og monta svo af því, að barnið hafi hætt svo snemma að pissa á sig, en í rauninni hefur stjórnsemi foreldranna kannski skaðað bamið. Rekið ekki á eftir barninu, þegar það er að byrja að ganga og tala. Það skapar bara leiða hjá barninu. Berið saman bækur ykkar við aðra foreldra um þroska barnanna. Nauðsynlegt er að sýna umburðarlyndi, þótt barnið láti í ljósi reiði sina. Þegar það öskrar VITLAUSA MAMMA! PABBI ASNI!, þá em þetta tilfinn- ingar, sem þurfa að fá útrás. Fjórða boðorðið: Haltu rétti þínum gagnvart baminu, til að verða fullorðinn. Bamið á rétt á að fá að sýna skap sitt, og það höfum við líka. Barnið á ekki að fá að vaða uppi, þó það hafi þennan rétt. Ef þú ert alveg uppgefinn, þá skaltu ekki dylja það. Börnin verða að læra að taka vonbrigðum og mótlæti, læra að bíða. Þau hafa meiri sjálfsaga, ef þau mæta mótlæti við og við. „Frjálslynt barnauppeldi” hefur verið misskilið af mörgum. Réttur- inn til að vera fullorðinn felur lika í sér réttinn til að geta verið í burtu frá börnum sínum án þess að líða af samviskubiti. Ungir foreldrar eiga rétt á að geta komist út að skemmta sér. Einstæðar mæður eiga rétt á að eiga karlkyns vini. Maður á að hafa rétt til að hugsa: — Nú er ég þreytt á þér unginn minn, nú verð ég að fara út á meðal fólks.... Það er slæmt, ef maður getur aldrei unnt sér samneytis við aðra en heimilisfólkið, eða notið lysti- semda lífsins. Samfélagið hefur ekkert geit til að koma á opinberri barnagæslu, i tilfellum sem þessum verða flestir að bjarga sér sjálfir. Fimmta boðorðið: Láttu ekki til- finningaleg tengsl milli þín og barnanna verða of sterk. Margar mæður búa einangraðar í ibúðarhverfunum, og eiginmaður- inn kemur seint heim. Samaheldnin i hjónabandinu er e.t.v. ekki upp á marga fiska. Þá er sú hætta á, að konan fullnægi þörf sinni fyrir ástúð við barnið — sem nú til dags er oft einkabarn. Foreldri notar sér barnið vegna sinna eigin tOfinninga. Barnið verð- ur ofverndað og fær of mikla eftir- tekt og kærleika, oft líkamlega líka. Það má teljast öruggt í slíkum tilfell-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.