Vikan

Eksemplar

Vikan - 11.11.1976, Side 26

Vikan - 11.11.1976, Side 26
— Þú fórst svo út í leiktjalda- málun um tíma? — Já, það var á striðsárunum, að ég fór út til London til að læra það. En skólinn hafði þá verið bombarderaður niður, svo að ég varð að fara annað. Þar dreif ég þriggja ára nám af á einum og hálfu ári. Það gekk ágætlega. Ég var mjög heppinn með kennara, því hann kom mér í svo góða aðstöðu á eftir, að ég gat strax farið að vinna fyrir mér þar úti og fékk þá auðvitað góða æfingu. Annars hafa bretar yfirleitt allt aðra aðferð við leiktjaldamálun en við hér heima og víðast annarsstaðar. Þvi þeir hengja þau strax upp, áður en málað er á þau, þannig að maður verður að nota stiga eða lyftu til að komast yfir þau. En hér eru þau lögð á gólfið og málað á þau, þar sem þau liggja lárétt. Þetta er auðvitað mikill munur, því að í lóðréttri stöðu þarf að vera vel á verði með að málningin leki ekki niður eftir tjaldinu, og því þarf hún að vera þykkri, eða í þannig formi að ekki leki, en hér er hægt að nota miklu þynnri liti, sem oft getur komið sér vel. — Svo vannstu við leiktjalda- málun hérna heima, eftir að þú komst heim? — Já, ég var að vísu ekki lengi við það, af ýmsum ástæðum, en hefi samt málað leiktjöld fyrir nokkur stykki. — Hvernig er með söngnám, Sigfús, þú lærðir að syngja? — Já, ég fór nokkuð snemma í söngnám til Péturs Jónssonar og var þar i alimörg ár. Annars ætlaði ég mér aldrei út í sönginn, heldur var þetta gert svona meira til að geta sungið, ef tilefni gæfist til. Og ég verð að monta mig með því, að ég hef til dæmis sungið þrisvar í breska útvarpið BBC. Ekki þá beint sem söngvari, heldur sem nemandi þar úti. Og oft hefi ég gripið til söngsins hér heima, eins og þú kannski veist, ekki síst þegar ég hefi verið að kynna lögin mln, eða í skemmtanaferðum út um land. — Já, þú fórst um tíma í slíkar ferðir á sumrum með öðru fólki? — Já, ég fór nokkrar slíkar ferðir með þrem ágætum vinkonum min- um, Áróru Halldórsdóttur, Emilíu Jónasdóttur og Nínu Sveinsdóttur. En flokkurinn var kallaður ,,Frúm- ar þrjár og Fúsi.” Svo fór ég líka í svipaðar ferðir með Soffiu Karls- dóttur og ýmsum fleirum. Það var ákaflega gaman, mikið fjör og kátína og lærdómsrikt í alla staði. FORSlÐAN Fúsi skýrði myndina umsvifalaust „His Masters Voice,” enda er tíkin POLLY greinilega bergnumin af rödd húsbóndans. Polly er íslensk, vel upp alin — og sýnilega smekk- vís. — Manstu eftir nokkmm skemmtilegum sögum frá þeim tíma, Sigfús? — Blessaður, það skeði alltaf eitthvað á hverjum degi, en ég er hræddur um, að það yrði of langt mál... — Eina stutta...? — Ja, mér er til dæmis minnis- stætt, þegar við komum einhverju sinni til Norðfjarðar, að ég var orðinn svo kvefaður og hás af söng, að ég var bókstaflega alveg radd- laus. Það var auðvitað tilgangs- laust fyrir mig að reyna að iyngja eins og ég var nú vanur, og ég ætlaði þessvegna að aflýsa skemmt- uninni. En það reyndist ekki svo auðvelt, því að hver einasti miði var löngu seldur og mikill áhugi á skemmtuninni. Það varð því loks úr, að skemmtunin var haldin, en þegar kom að mér að syngja min lög, þá settist ég bara við píanóið og fór að leika. En áheyrendur tóku því ekki vinsamlega og vildu, að ég galaði með. Þeir fóru að hrópa og kalla til min, klappa og láta alh ófriðlega. Loks stóðst ég ekki mátið, hætti að spila, stóð upp og hvíslaði eins hátt og ég gat, að röddin væri því miður ekki í góðu lagi, en lofaði, að ég skyldi koma þangað aftur, og þá skyldu þeir ekki þurfa að kvarta yfir raddleysi minu. Þegeu- þessari hvíslræðu minni lauk, skildu allir, hvernig í málunum lá, og klöppuðu mér lof í lófa. Ég stóð svo siðar við þetta loforð og söng þar fullum hálsi í fullu húsi, og var því vel tekið. Já, það gekk á ýmsu og flestu skemmtilegu og gaman- sömu i þá daga, en allt endaði þetta prýðilega, og ég vona, að allir hafi verið ánægðir að lokum. — Eitt sinn var örlygur Sigurðs- son , .konstmaler” með okkur, og þegar við komum út að lokinni skemmtun, þá hafði hann málað hreint allan bílinn okkar — með andlitsfarða —, og þar var komin Litla flugan hraðfljúgandi og suð- andi i kringum allan bílinn. Þetta konstverk var svo lifandi og konst- ugt, að bílstjórinn og eigandi bílsins sagði hreint ekki orð, enda var víst tiltölulega auðvelt að ná þvi af. Þessar og fleiri sögur sagði Sigfús mér nokkru síðar í herbergi minu á ritstjómarskrifstofunni, en mat- stofan er þar við hliðina. Þetta skeði einmitt á matartima, og mér var síðar sagt, að kjaftakerlingarnar hefðu hreint allar hætt að segja sögur og jafnvel að borða, því að smitandi hlátur Sigfúsar barst um allar skrifstofur, og eftir honum biðu þær hverju sinni og veltust svo um af hlátri með honum. En þær vissu í rauninni aldrei, að hverju þær voru að hlæja, þvi aldrei heyrðist annað en hláturinn. Og gleðin — líkt og brosið hans — reyndist svo smitandi, að þær grenntust flestar um nokkur kiló þann daginn, því þær máttu hreint ekki vera að þvi að borða fyrir hlátri. — Hvernig finnst þér að starfa við leikhús, Sigfús? — Leikhús, segir þú. Það er Kannski Fúsi sé að vejta þvi fyrir sér, hvort hann eigi að mála húsið grænt, blátt — eða kannski raútt... Náttúran hefur alltaf heillað Fúsa. Alls konar náttúra. Og gleði hans yfir litadýrðinni heillar listamanns- eðlið. Litina færðu samt ekki að sjá, nema þú farir á sýninguna hans á Kjarvalsstöðum í janúar. yndislegt að starfa þar. Lífið er jú einn leikur frá byrjun til enda, og í leikhúsi finnur maður allt sem vekur áhuga hjá fírum eins og mér. Þar er auðvitað leiklistin í fyrirrúmi með öllum sínum skemmtilegheit- um, húmori og bóhemisma. Þar er mikil músík, bæði hljóðfærasláttur og söngur. Þar er líka málaralist á leiktjöldum. Þar er mikið af góðu fólki. Þar er ballett, allskonar listdans... og hvað viltu meira...? — Málaralist, Sigfús. Hér eru staflar af málverkum allt í kring. Ertu í einhverju málarastuði? — Ég er alltaf í málarastuði, vinur minn. Þú veist kannski, að ég vinn við teikni- og málarakennslu í Langholtsskólanum og htfi nú gert um árabil... — Er ekki hræðilegt að vinna við kennslu, Sigfús, jafn frumlegur og margþættur og þú ert í Iis inni? — Nei. Ég skal segja þé-, að það er alveg yndislegt að ieiðbeina unglingum í málaralist. Þau eru svo óbundin og fersk, að það er alveg ótrúlegt, hvað mörg þeirra eru listfeng að eðlisfari og hvað þau eru næm og hafa mikinn áhuga fyrir náminu. Auðvitað er ekki sama, hvemig farið er að litlu skinnunum, en með réttri aðferð er aldeilis ótrúlegt, hvað þau geta — og vilja. Það gæti margur eldri af þeim lært, skal ég segja þér. Margar myndir, sem þau hafa gert hjá mér í skólanum eru alveg gullfallegar, bæði hvað snertir teikningu, upp- setningu og litameðferð. Þú ættir að koma þangað með mér og... — En af hverju em svona mörg málverk héma hjá þér, bæði full- unnin og hálfunnin?

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.