Vikan

Eksemplar

Vikan - 11.11.1976, Side 28

Vikan - 11.11.1976, Side 28
3 g> 03 Nú rétti tfminn til að láta^. Rammagerðina ganga f rá jólasendingum tíl vina yðar og ættingja erlendis í Rammagerðinni er mikið úrval af fallegri gjafavöru við allra hæfi, m.a. silfur, keramik, skinna- og ullarvörur, moccakápur- og jakkar, bækur, hljómplötur og þjóðlegir útskornir munir. Þér veljið gjafirnar. Rammagerðin pakkar og sendir. Allar sendingar eru fulltryggðar. Komið tímanlega. Sendum um allan heim! RAMMAGERÐIN HAFNARSTRÆTI 19 HÓTEL LOFTLEIÐIR, HÓTEL ESJA. — Karlmenn er hræðilega sjálfs- elskir. Ég hefði átt að vita, að þú mundir gleyma að senda mér afmæliskveðju. Á leiðinni til Paddington Green í leiguvagninum, gat Abby ekki hugsað um neitt nema hvað hún var þreytt, höfuðverkinn bak við augun og tómleikatilfinninguna, sem hún fann innra með sér. Þegar hún kom heim beið Ellis eftir henni, Nancy hafði sent henni boð, og nýja kennslukonan ungfrú Miller, stóð kvíðafull í dagstofudyrunum. öll börnin þrjú höfðu komið hlaupandi út um leið og vagninn kom að húsinu. ,,ó, mamma” hrópaði Frederick. ,,Ég hef saknað þín svo mikið. Er allt í lagi með þig? Ellie og ungfrú Miller vildu aðeins segja að það væru veikindi í fjölskyldunni. Ég gat ekki skilið hvað þær áttu við, því að það eru aðeins ég og Oliver og Pheobe, og Jonah frændi, og auðvitað vissi ég að þú varst ekki hjá honum.” Hún var komin inn núna, fór úr kápunni og leit snöggt upp. „Jonah? Hefur hann ekki sent nein skilaboð?” spurði hún ungfrú Miller, sem hristi höfuðið. „Nei frú Caspar. Það er að segja, það eru engin skilaboð, sem ég get skilað nú.” Hún leit á börnin. „Farið út og leikið ykkur, börn, og gefið frú Caspar örlitinn frið.” „Hvað er að ungfrú Miller?” sagði Abby hljóðlega um leið og börnin voru farin út. Sér til undrun- ar sá hún að Ellie fór að snökta. „0, blessuð, móðurlausu börnin, þessi blessuð, vesalings móðurlausu lömb” snökti hún. „Ellie, frú Caspar er mjög þreytt. Gerðu svo vel að færa henni te” sagði ungfrú Miller. Ellie sendi henni fyrirlitlegt augnaráð, en fór hlýðin fram. „Mér þykir leitt, frú Caspar, að verða að færa slíkar fréttir,” sagði ungfrú Miller. „Bróðir yðar — hann kom hingað fyrir tveim dögum konan hans er dáin, frú Caspar, sjálfsmorð.” Abby starði á hana vantrúuð. „Sjálfsmorð? örugglega ekki. Ég get ekki trúað því.” Ungfrú Miller kinkaði kolli, næstum áköf. „Þannig er það, frú Caspar. Það var meira að segja frétt um það í blaðinu.” Abby sat og horfði á hana, en sá hana ekki. „Þeir segja að allt sé þegar þrennt er” sagði hún heimskulega. Hún hló og grét í senn og missti algjörlega stjórn á sér. Skyndilega fór hana að svíða í augun, hún hóstaði og dró skjálfandi andann. Hún leit upp og sá Ellie liggja á hnjánum við hliðina á sér með flösku af ilmsalti, sem hún hélt fyrir vit hennar. Hún hjálpaði Abby til að standa á fætur, og hvatti hana til að fara til herbergis síns og reyna að sofna. Abby lét Ellie leiða sig burt, en nam staðar við stigann og hélt sér í handriðið, því allt i einu gátu fætumir ekki borið hana lengur. „Hvar er Jonah núna, ungfrú Miller?” Stúlkan hristi höfuðið. „Ég veit það ekki, frú Caspar. Hann spurði 28 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.