Vikan

Útgáva

Vikan - 11.11.1976, Síða 29

Vikan - 11.11.1976, Síða 29
hvort börnin gætu verið hér þar til hann gerði einhverjar ráðstafanir, og ég leyfði mér að svara játandi.” „Það var rétt hjá þér, ungfrú Miller”, sagði Abby samþykkjandi. Að lokum fór hún í rúmið, þreytt rugluð og næstum dofiii af atburð- um siðustu vikna. Hún lokaði augunum fyrir kvöldbirtunni. Hún vaknaði skyndilega, starði á tunglsljósið á loftinu. Henni leið illa, einkennilega. Þá kom það aftur, og hún vissi strax hvað það var, sem hafði vakið hana. Djúpur flökurleiki og sársauki innra með henni. Hún komst upp úr rúminu, hálfskriðandi og hálffallandi yfir að þvottaborðinu og kúgaðist þar, þar til hún gat ekki meira. Þetta virtist standa yfir í fleiri tíma. Skin tunglsins minnkaði og það dimmdi yfir. Hún dróst yfir að rúminu og lét sig falla máttvana niður. Hún lá þar, kvaldist og skalf af sárs- auka. Hún gat séð látna móður sína á hvíta, blúndusaumaða koddanum sá starandi augnaráð Williams, og í höfði hennar hljómaði eins og trumbusláttur orðin „kólera, kólera kólera.” Ellie var þar og horfði niður á hana. Hún heyrði rödd hennar, svalur gustur lék um andlit hennar. „Svona vertu stillt — vertu stillt.” Vökva var hellt upp í þurran munninn. Myrkur aftur, svefn, vaknaði þurr í munninum og sofnaði aftur. Hún vaknaði þægilega. Lá í algerri ró. „Líður þér betur?” spurði hann hijóðlega. Hún snéri höfðinu og sér til undrunar sá hún: Gideon! SÖGULOK „Hvað ert þú að gera hér?” spurði hún rám. „Hvers vegna ert þú í svefnherberginu mínu?” „Þvilik óhæfa” sagði hann rólega „Hvað skyldu nágrannar þínir segja, ef þeir vissu það? Jæja, þeir myndu segja lítið held ég, ef þeir vissu, hve veik þú hefur verið.” Hún sagði hugsandi: „Veik. Já, ég man eftir þvi.' Ég kom heim frá Gower Street og fór í rúmið, það var erfið nótt. Var það í gær?” „Sannarlega ekki i gær. Fyrir niu dögum.” Hún starði forviða á hann. „Níu dagar? Það getur ekki verið svo langt síðan. Gideon. Níu dagar — jarðarfarirnar — móðir min og bróðir..." Hann kinkaði kolli rólega. „Já, það hefur allt farið fram. Ég vissi að þú vildir að einhver færi í þinn stað, svo að ungfrú Miller var hjá þér og égfór.” „Þú fórst? Hvers vegna Gideon. Það var alveg...” „Þú gast ekki farið,” sagði hann aðeins „og það hefði þér þótt leitt, svo að ég fór.” Hún fór allt í einu að gráta og hann beygði sig niður að henni og þurrkaði tárin með vasaklútnum sínum. „Mér þykir vænt um að þú skulir vera hér,” sagði hún eftir smá- stund. „Þú ættir ekki að vera hér, en mér þykir vænt um það.” Hann brosti, en sagði ekkert. Hún hugsaði sig aðeins um og sagði svo, næstum önuglega. „En ég veit ekki hvers vegna né hvernig.” „Frederick,” svaraði Gideon. „Frederick?” „Hann er sérstakur drengur, sonur þinn. Þegar Ellie og ungfrú MOler sáu hve veik þú varst, sendu þær eftir heimilislækninum, og Ellie sagði einnig séra Corrigan — skólastjóra Fredericks, trúi ég — frá ástandinu hér á heimilinu. Hann fór með börnin í skólann, og ætlar að hafa þau þar. þar til þér batnar.” Gideon brosti „En það var ekki nóg fyrir Frederick. Hann skrópaði í skólanum næsta dag, fór með strætisvagninum niður í bæinn, og spurðist fyrir um mig hjá hverju einasta fyrirtæki, sem hann fór fram hjá, þar til hann fann eitt, sem kannaðist við nafn okkar. Stórkost- legt afrek hjá svona ungum dreng.” „Ég vUdi óska að þú hefðir séð hann, Abby. Hann stóð í dyrunum á skrifstofunni minni og tilkynnti mér, að hann væri kominn til að sækja mig, því mamma sín væri veik og þyrfti á mér að halda.” Tár þreytunnar komu fram í augun, „elsku Frederick — hann hefði ekki átt að... ” „Svo sannarlega” sagði Gideon ákveðinn. „Hann veit, þó þú vitir það ekki, hverjum á að treysta fyrir velferð þinni. Mér finnst ég eiga góðan bandamann þar sem Freder- ick er. Ég er viss um að saman getum við eytt þessu heimskulega hiki þínu.” „Ekki —” sagði hún. „Það er ekki réttlátt nú að... ” „Ég veit,” sagði hann. „En hvað erréttlæti i ást?” Hann brosti til hennar. „Þú ert þreytt,” sagði hann rólega. „Farðu nú að sofa. Við tölum saman seinna.” Næstu daga kom batinn, og í lok fyrstu vikunnar gat hún setið uppi við gluggann og horft út á strætið, baðað í aprílsólinni. Börnin fengu lika að heimsækja hana. Um miðja aðra vikuna gat hún verið á fótum mestan hluta dagsins, og var farin að ná sér. Gideon kom í veg fyrir að hún færi strax aftur í verksmiðjuna. „Þú ferð ekki, og það er útrætt mál,” sagði hann ákveðinn. Hún hafði litið á hann þá. „Hvers vegna ertu svona natinn við mig, Gideon? Ég hef tekið það sem sjálf- sagðan hlut að þú litir eftir mér, en það er óvenjulegt fyrir karlmann.” „Faðir minn” sagði hann, „var veikur, eins og þú manst, og þá lærði ég hvemig á að umgangast sjúka.” Allt í einu varð dagurinn grár. Þau höfðu verið svo hamingjusöm i návist hvors annars, þessa daga sem hún hafði verið að ná sér. Hún hafði lokað huganum fyrir öllu, sem hafði gerst áður á milli þeirra, fyrir ákvörðun sinni, fyrir vonum hans, ákveðin í að láta hverjum degi nægja sína þjáningu. En þegar hann minntist á föður sinn hafði raunveruleikinn skotið sér upp á yfirborðið. Það fór hrollur um þau bæði. Þeim tókst að halda samtal- inu áfram um hluti, sem skiptu engu máli, en bæði forðuðust þá spumingu, sem lá í loftinu á milli þeirra. En þegar hann var að fara um kvöldið sagði hann: „Ég hef talað aftur við foreldra mína um áætlun mina um okkar sameiginlegu fram- tíð, Abby. Ekkert mun breyta þeirri áætlun. Ekkert mun breyta ákvörð- un minni. Ég elska þig of heitt til þess. Hugsaðu þig aftur um, Abby, erfiðleikarnir, sem þú sérð, em ekkert samanborið við þær þjáning- ar sem við komum til með að líða, ef við verðum ekki saman. Þú hlýtur að vita það eins vel og ég. Þegar ég kem á morgun, verður þú að segja mér endanlegt svar þitt. Ég elska þig of mikið til að geta haldið svcna áfram — þetta er eins og vítiseldur. Á morgun, Abby?” Hún leit alvarlega á hann. Hann var henni svo kær, þarna sem hann stóð, og hún sagði lágt: „Allt i lagi, á morgun.” Hún sat í stól undir eplatrénu þegar hann kom til hennar. „Þvílíkt umhverfi fyrir elskhuga til að heimsækja unnustu sína” sagði hann og hló til hennar, en Abby tók eftir að það sem hann sagði var ekki eintóm gamansemi. Hann settist niður við hliðina á henni á grasið og lagði frá sér hattinn. „Abby, þú hefur aldrei sagt mér tilfinningar þinar, það er að segja aldrei með orðum. Ég veit hverjar þær eru. Það væri ekki mögulegt fyrir mig að elska þig svona heitt, ef ég vissi ekki tilfinningar þinar til 46. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.