Vikan - 11.11.1976, Qupperneq 31
mánuðir liðu frá dauða Celiu, og
sagði honum þá blíðlega, að hún
hefði endurnýjað vináttu sína við
hann.
„Því þú veist, Jonah, að hann
hefur breyst mikið. Ég heimsæki
hann í hverri viku, og það eru rnjög
ánægjulegar heimsóknir, því ung-
frú Ingoldsby er þar ennþá, og
Martha, og við tölum mikið saman.
Ég held að dauði mömmu og Will-
iams hafði meyrt hann mikið.
Og svo er Rupert búinn að ákveða
að hætta á Westminster sjúkrahús-
inu með herra Snow — hann tók því
mjög illa. Hann er einn á St. Elanor
núna og ég held að það hefði mikið
að segja fyrir hann að vinna með
tveim sonum sínum. Þú yrði undr-
andi yfir hve bliður hann er orðinn
á vissan hátt —
„Bliður.” Jonah spýtti næstum
orðinu út úr sér.
„Hann verður aldrei annað en
harðstjóri — þú heyrir hvað ég
segi? Harðstjóri. Ég vil ekki sjá
hann, aldrei, og þú mátt ekki biðja
mig um það Abby.”
„Allt í lagi, Jonah.” sagði hún,
dálítið skelkuð yfir ákafa hans.
Jonah róaðist niður og þau minnt-
ust aldrei á Abel aftur, eyddu
sunnudögunum með börnunum í
friði og ró. Jonah virtist slaka á
og læra að lifa aftur með þeim
atburðum, sem gerst höfðu.
Aðeins Abby náði sér ekki eins
fljótt og hún hélt, að hún myndi
gera. Stundum kom minningin um
Gideon svo beisk fram i hugann að
hún fékk tár í augun.
Svo kom boðskort í september,
sem fékk hana til að stara og siðan
hlæja við morgunverðarborðið, og
ungfrú Miller leit upp, kurteis og
forvitin.
„Jæja, ungfrú Miller. Ég er að
eignast stjúpmóður. Gamla
kennslukonan mín ætlar að giftast
pabba í lok þessa mánaðar í kirkju
herra Spensers nálægt Bedford
Square. Er það ekki dásamlegt?”
Og hún leit aftur á kortið og
ýtti til hliðar minningunni um sinn
eigin brúðkaupsdag í sömu kirkju,
fyrir svo löngu síðan.
Hana langaði til að gefa ungfrú
Ingoldsby klæðnað fyrir giftinguna
og þær fóru saman eitt kvöldið
í verslanir til að velja franskt silki,
flauel, blúndur og borða. Hún
komst að því að ungfrú Ingoldsby
hafði frábæran fatasmekk og Abby
sagði henni að hún væri vongóð um
framtíðina.
„Þú veist að faðir minn hefur
átt erfiða æfi, ungfrú Ingoldsby,”
sagði hún, „og ég vildi óska að
hann yrði hamingjusamur, þau ár
sem hann á eftir.” Hún roðnaði og
bætti við: „Ég átti ekki við að hann
væri gamall, því hann er aðeins
fimmtíu og eins, held ég. En líf hans
Ungfrú Ingoldsby brosti. „Það
eru næstum tuttugu ár á milli
okkar.” sagði hún eðlilega. „Ég
geri mér alveg grein fyrir að það
verður hlegið að slíku hjónabandi.
En ég er hamingjusöm og reyni að
gera allt sem ég get til að gera hann
það líka. Þú þarft ekki að óttast
um hann, Abby.”
Abby sagði ákveðin við sjálfa sig,
að hún skyldi taka þátt í gleði
dagsins. Hún lagði af stað í leigu-
vagni íklædd gulum kjól og glæsi-
legri útsaumaðri kápu í sama stíl.
Hatturinn var með brúnum borðum
og hún fór fyllilega meðvitandi um
glæsilegt útlit sitt.
Hún sat í svölum skugganum
aftarlega í kirkjunni, við hliðina á
Mörthu, og horfði á beint bak föður
síns, þar sem hann stóð við altarið
og beið eftir brúði sinni.
Hann er kominn yfir fimmtugt,
hugsaði hún stolt, en hann er
myndarlegur maður enn, með þykkt
grásprengt hár, breiðar axlir og
beinn í baki.
Hún vaknaði frá hugsunum sín-
um við hljóminn í orgelinu og snéri
sér að kirkjudyrunum. Ungfrú Ing-
oldsby, í einföldum ljósum kjól,
með stutt slör og aðeins með bæna-
bók í höndunum stóð þar.
Og meðan tónarnir ómuðu um
kirkjuna gekk hún fram kirkjugólf-
ið leidd af fjarskyldum frænda
sínum, sem hún hafði fengið til að
vera svaramaður. Hún giftist þeim
manni, sem hafði verið vinnuveit-
andi hennar siðustu tólf árin, hvers
börn hún hafði alið upp, og eigin-
konu hans hafði hún litið eftir, og
þótt svo vænt um. Það var ein-
kennilegt, hve há og grönn hún
virtist vera þar sem hún gekk inn
kirkjugólfið, og horfðist í augu við
Abel. Abby só merki friðar á andliti
hans, og lokaði augunum í andar-
taks þökk. Hvemig sem allt snérist
átti faðir hennar, maðurinn sem
hún hafði elskað svo mikið og lengi
skilið að verða hamingjusamur.
Það var mikið að vera þakklát
fyrir.
Og seinna, þegar hún hafði
drukkið skál hinna nýgiftu í kampa-
vini ó Gower Street, fékk hún tæki-
færi til að ná tali af föður sínum.
„Ég er mjög glöð þin vegna,
pabbi,” sagði hún bliðlega.
Hann snéri sér við, leit á hana og
brosti. Það var einkennilegt hve
hann virtist hafa yngst. Hún sagði
og lét tilfinningu augnabliksins
ráða „ö, hún er svo góð við þig.”
„Jó,” sagði hann. „Hún gefur
mér frið. Ég vissi ekki að það væri
thi Ptmncr matt makt-up
i fOft ÖR6A8V DttfiCWt SKJNS
Skin shampoo 41
Clompexion milk 41
Medicated soap 41
Moisturistng milk 41
Ante acne cream 41
Solution 41
Face mask 41
Foundation 41
Cover Stick 41
Hair shampoo 41
Spray deodorant 41
ÍNNOXA
medicated
soap
. tinted fbundatíoo
skih ahampoo
tnouturising milk
amiHdUúodmð1
|>ft>teín cooditioöing
hair shampoo
complexion mtík
SOLUTION
imnoxa
innoxa
Innoxa 41 er framleitt fyrir
alla sem vilja stemma stigu
við hinu alkunna húð-
andamáli.
Leitið nánari upplýsinga í snyrtivöruverslunum og apotekum.
m
ipotekt
Heildsölubirgðir
KRISTJÁNSSON HF.
Sími: 12800, 14878.
FJÖLSKYLDA BÓLUMORÐINGJANS
Solution 41, sem oft hefur verið nefndur „Bólumorðinginn", tyrir þann eiginleikc
að ,,drepa" bólur.
Solution 41 áJíka góða ættingja, sem eru allar vörur frá Innoxa merktar 41. Innoxa
41 vörurnareru sérstaklega gerðarfyrirtáninga og aðra þá sem hafa mjög feita húð
og bólótta.
Innoxa 41 eru sótthreinsandi vörur.
46. TBL. VIKAN 31