Vikan

Eksemplar

Vikan - 11.11.1976, Side 34

Vikan - 11.11.1976, Side 34
Sagan endurtekur sig i saznsku konungsfjölskyldunni Fyrir 44 árum var 1 angs á biðilsbuxur Leynileg stefnumót i Svíþjóð og á meginlandinu. Orðrómur um, að trúlofun sé á næstu grösum. Hirðin mótmælir — árangurslaust. Sögu- sagnirnar halda áfram. Svo springur blaðran! Þýskt blað segir, að nú viti menn trúlofunar- daginn og að allir í heimabæ ungu stúlkunnar viti hvað sé að gerast. Árangurinn: Enn mótmæli frá hirðinni — ákveðnari en fyrr. En blöði halda áfram að skrifa. Blaða- menn og ljósmyndarar hertaka heimabæ stúlkunnar. Hirðin gefur sig, mótmæli heyrast sjaldnar, Þýska blaðið hafði á réttu að standa. Dagurinn, sem það hafði nefnt, rann upp — trúlofunin var staðreynd... Þetta fjallar ekki um Carl Gústaf konung og Siiviu, heldur um föður hans, Gústaf Adolf prins og trúlof- un hans og Sibyllu prinsessu, móður konungsins. Jafnvel þá höfðu blöðin áhuga á ástamálum kóngafólksins. 16. júni 1932, á afmæli þáverandi konungs, Gústafs fimmta, settu Gústaf Adolf prins og Sibylla af Sachsen-Coburg og Gotha upp hringana. Fyrir trúlofunina hafði unga fólk- ið eiginlega verið i feluleik við um- heiminn. Sibylla hafði oft verið i Svíþjóð og prinsinn í Þýskalandi. Alltaf laumuðust þau á leynileg stefnumót. Danska drottningin Ingrid leiddi þau saman. Fyrst hittust þau í október 1931, þegar frænka Sibyllu gifti sig. Ingrid drottning var þá prinsessa í Svíþjóð og var við brúð- kaupið með bróður sinum, Gústaf Adolf prins. Sagt er, að Ingrid hafi hvatt þau til að hittast i betra tómi. Prinsinn fór nú eins og jó-jó milli Malmö, Kaupmannahafnar og Stokkhólms. Hann ferðaðist alltaf undir dulnefni. Það sama gerði Sibylla. Þau hittust i höllinni Sofiero. Engan grunaði, að hið ástfangna par hittist í höllinni. Þau léku á blöðin. Ef einhvern grunaði eitthvað, sá Ingrid prinsessa um að eyða þvi. Allir vissu, að hún var góð vinkona Sibyllu, og hún var alltaf viðstödd stefnumótin. Dag einn í febrúar 1932 steig fögur stúlka af lestinni á brautar- stöðinni í Stokkhólmi. Ljósmynd- ararnir smelltu af mörgum mynd- 1932: Nýtrúlofuð og hamingjusöm fara þau á veiðar i nágrenni æskuheimiiis prinsessunnar, Callenberghallar í Coburg. 1976: Konungurinn og unnusta hans veiða lax í Mörrums m.a. með finnska forsetanum Urho Kekkonen. 34 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.