Vikan - 11.11.1976, Síða 38
— Ég vona, að verðbólgan haldist, svo ég fái örugglega að giftast
milljónamæringi.
38 VIKAN 46. TBL. ©
hinn raunverulegi James B
Stephen ]
Þrjátíu og tvisvar sinnum hefur hann
farið til Sovétríkjanna, Kína og
Norður-Kóreu til þess að frelsa óvirka
sendimenn eða rússneska flóttamenn,
og hann hefur líka skipulagt
stjórnarfall i mörgum löndum heims.
Hinn áhrifamikli, duglegi og
samviskusami ofursti Meade er
sennilega einn frægasti sendimaður
allra tima. Þetta er skýrslan um
manninn, sem er önnur tveggja
fyrirmynda að James Bond.
í hinu merkilega stríði njósna og
gagnnjósna í sambandi við CIA er
eitt nafn, sem heyrist æ oftar nefnt:
Stephen J. Meade ofursti. Á síðasta
ári kom hann fram í bandarískum
sjónvarpsþætti og mótmælti ásök-
unum, sem bornar höfðu verið fram
á hendur honum í bók Victors
Marchettis „CIA og vitsmunadýrk-
unin”. Þar er reyndar minnst á það,
að Meade sé önnur tveggja fyrir-
mynda rithöfundarins Ians Flem-
ings i sögum hans um James Bond.
Meade er sólbrúnn og sterklegur
og borðar og drekkur mjög lítið.
Hann reykir fimm sígarettur á dag
og hleypur átta kílómetra á hverj-
um degi. Meade er nú 61 árs og lítur
mjög vel út, en brosir mjög sjaldan,
nema við hátíðleg tækifæri.
í þrjátíu ár hefur hann verið
ráðinn til leynilegra framkvæmda á
vegum hersins, en þó aðallega i
þjónustu CIA. Enda þótt Meade
væri aldrei á launaskrá hjá CIA var
hann fremsti flótta- og liðveislu-
sérfræðingur stofnunarinnar. Mað-
urinn, sem var sendur til þess að
bjarga sendimönnum úr klandri og
einnig þeim, sem voru einfaldlega
orðnir óvirkir á viðkomandi stöð-
um. Venjulega fól starfið einnig í
sér að ná út fjölskyldu sendimanns-
ins, t.d. í Uljanov tilfellinu.
32 FERÐIR TIL
AUST ANT J ALDSL AND A.
Meade hefur farið þrjátíu og
tvisvar sinnum til austantjalds-
landa. Dulnefni hans var Blístrar-
inn. Hér er svo yfirlit um störf
hans:
1942. Meade var í þjónustu
bandaríska fótgönguliðsins og þátt-
takandi á öllum mikilvægum víg-
stöðvum. Fyrir framlag sitt var
hann heiðraður með bronsstjörn-
unni, silfurstjörnunni og franska
stríðskrossinum.
1945. Á jóladag stökk Meade í
fallhlif yfir Rússlandi til þess að
frelsa þýska kjarneðlisfræðinga úr
haldi. Hann fann þá aldrei, en tókst
þess í stað að mynda samtök
menntamanna, sem vildu sleppa
undan oki sovéskra stjórnvalda og
komast úr landi. Meade var sjálfur
tekinn fastur af MVD fyrirrennara
KGB, en látinn laus aftur. Þegar
hann kom aftur til Bandarikjanna,
gat hann ekki gefið neina viðhlít-
andi skýringu á því, hvers vegna
honum var sleppt úr haldi, og álitu
þá margir hann vera í tygjum við
MVD. Síðar kom i ljós, að hann var
látinn laus að skipun bandarísks
sendimanns i MVD:
1946—49. Meade var á þessum
árum skráður herforingi i Beirut, en
var í rauninni í þjónustu CIA og
vann að málefnum kúrda og ar-
mena. Hann gerði allt til þess að
halda því leyndu og tókst það með
ágætum.
HÁPUNKTUR KALDA STRÍÐS-
INS.
1949—52. Meade var gerður að
höfuðsmanni sambandsdeildar í fót-
gönguliðsskóla hersins, Fort Benn-
ing í Gergiu.
Eftir skipun frá CIA skipulagði
hann einnig flótta og liðveislu við
F&U. Á þessu timabili fór hann í
eina af sínum hættulegustu ferðum
til Sovétríkjanna í þeim tilgangi að