Vikan - 18.11.1976, Blaðsíða 6
í þetta sinn varð fyrir valinu Lúðvík
Jósepsson, sem er óumdeilanlega í
hópi þeirra, sem oftast skreyta síður
dagblaðanna. Colin Porter var ekki í
vandræðum með að ,,dressa" hann
upp, og við erum innilega sammála
öllum hans tillögum. Að vísu hefði
,,fiskismókingurinn" kannski átt enn-
þá betur við, meðan Lúðvík var sjávar-
útvegsmálaráðherra og stóó í viðræð-
um út af blessaðri landhelginni. Lafði
Tweedsmuir hefði áreiðanlega kunnað
að meta slíkan klæðnað.
Svo vonum við bara, að Lúðvík og
lesendur hafi jafn gaman af tiltækinu
eins og Vikan og Colin Porter.
Nýjar
loftþéttar umbúðir
KAFFIÐ
fráBrasilíu
Þessi gráu jakkaföt eru svo sem ekki ólík
þeim fatnaði, sem flestir stjórnmálamenn
klæðast oftast. En Colin Porter sér um,
að þau séu sniðin samkvæmt nýjustu tísku.
Ætli Lúðvlk kynni nú ekki einna best viö
þennan fatnað, sem Colin stingur upp á til
heimabrúks. Flannelsbuxur, bómu/larskyrta
og u/larpeysa.
Denimfatnaður er mikið í tísku um þessar
mundir, og því skyldu stjórnmálamennirnir
ekki reyna að tol/a í tískunni? Gaman aö sjá
þá þannig klædda á þingfundum til dæmis.
6 VIKAN 47. TBL.