Vikan

Tölublað

Vikan - 18.11.1976, Blaðsíða 11

Vikan - 18.11.1976, Blaðsíða 11
búa með kærastanum mínum, en hann er 20 ára. Það er vandamál, sem leggst þungt á mig, að ég fæ ekkert út úr kynllfi, ekki einu sinni ertingu. Ég fór til læknis án vitundar mannsins míns og sagði læknirinn að þetta kæmi allt. Ég hef „leikið" fullnægingu frá upphafi, svo að ekki verður aftur snúið. Ég get ekki sagt manninum mínum þetta. Hann er mér góður og flýtir sér aldrei. Ég hlýt því að vera eitthvað afbrigðileg. Nú kemur svo hin stóra spurn- ing. Er eitthvaö til sem er kynörv- andi? Læknirinn vildi ekkert gera, svo að ég sný mér til þin og bið um hjálp sem fyrst. Kynköld. P.S. Hvað lestu úr skriftinni og hvernig fara saman hrútur (strák- ur) og krabbi (stelpa)? Póstinum þykir ieitt að iesa um þessi vandamál þín. Þú hiýtur aö hafa lent á óvenju íhaldssömum lækni og ættir þvi að fara til einhvers annars sem fyrst. Það eru til sérfræðingar á þessu sviði og ættu þeir að reynast þér bestir. Eitthvað hefur Pósturinn heyrt minnstá E-vftamín / sambandi við kynorku, en vi/l þó ekkert ful/yrða í þvi sambandi. i samráði við lækni eru oft gefin hormónalyf, sem eiga að auka starfsemi kynkirtla og eru þvl eins konar kynörvandi /yf. Úr skriftinni má lesa áhyggjur og þreytu, en hún ber einnig vott um göfug/yndi og drengskap. Sambúð hrúts og krabba á að b/essast allvel. Hann er aö vísu nokkuð reikull I rásinni, en hún dáir hann, og þaö bjargar öllu. ENN UM STRÁK. Elsku Póstur! Ég hef aldrei skrifaö þér áður og vona að þú birtir þetta pár. Ég er hrifin af strák, sem hefur engan áhuga á mér eftir því sem ég best veit. Hvað á ég að gera til þess að reyna að fá hann? Hvað helduröu að ég sé gömul, og hvað lestu úr skriftinni? Hvern- ig fara vogin (kvk.) og hrúturinn (kk.) saman? En vogin (kvk.) og fiskarnir (kk.)? , ,, , Ein skólapia. Mi/il árans vandræöi eru þetta. Ætli þú veröir ekki bara aö pipra. Póstinum finnst það að minnsta kosti hæpinn ,,bissness" að æt/a sér að taka strákinn nauðugan. Það væri í ö/lu fa/li ráð/egra fyrir þig að tala við foreldra hans fyrst, ef hann er ekki kominn á giftingar- a/dur. Þú ert líklega 11 ára, og skriftin sýnir, að þú ert ákaf/ega bráð/át. Vog og hrútur eru eins og sköpuð fyrir hvort annað, en vog og fiskur eru hinsvegar á öndverðum meiði. Mr. Leonard Cohen 1127 Spruce St. Apt. 3 Phi/adel- phia, PA, 19107 USA. er 30 ára gamall bandaríkjamaöur, sem ósk- ar eftir aö komast í bréfasambandi við íslenskar stúlkur á aldrinum 18—30 ára. Helstu áhugamál: Pop-tónlist, góðar bækur, dans og skemmtilegt fólk. Mrs. Patricia Taylor, 86, For- ester Road, Southgate CRAW- LEY, W. Sussex RH10 GEF. Englandi er 38 ára gömul ensk stúlka, sem óskar eftir pennavin- um á Íslandi. Helstu áhugamál hennareru: Bréfaskriftir, ferðalög, tónlist, listir og saga og heim- speki. Miss Joy E. Griffiths 38, Sefton Avenue, Mi/I Hill, London, NW7 3QD, Eng/and er 49 ára gömul ensk kona, sem hefur mikinn áhuga á að komast í bréfasam- band við íslendinga. Helstu áhugamál eru: Sígild tónlist, leik- hús, kvikmyndir, sjónvarp, ballett og nútíma dansar, bókalestur, listir, handavinna, saga og ferða- lög. Sigríður Gísladóttir, Sunnuhvoli, Stokkseyri óskar eftir að skrifast á við stráka á aldrinum 14 — 15 ára. Sjálf er hún 14 ára. Steingerður Steinþórsdóttir, Eyrar- lóni, Stokkseyri óskar eftir að skrifast á við stráka á aldrinum 14 —15 ára. Sjálf er hún 14 ára. BRflun BLÁSIÐ NÝJU LÍFI í HÁRIÐ! BRAUN hársnyrtitækin eru ein þau fullkomnustu á markaðinum — og hönnunin sérlega glæsileg. ATHYGLISVERÐAST er það nýjasta frá BRAUN — hársnyrtisettið PLUS2, en þá er bætt við venjulegt sett úðara og lokkajárni. Þetta þýðiraðsjálfsögðu, aðþérgetiðætíðblásið nýju lífi í hárið — fyrirvaralaust. GOTT VERÐ Þetta glæsilega hársnyrtisett er á góðu verði — kostar kr. 11.900 (október 1976, gæti hækkað fyrirvaralítið). FLEIRI GERÐIR SeljumennfremurBRAUNkrullujárn, hárþurrkurog hár- burstasett sem eru nokkuð ódýrari en PLUS 2. KAUPMENN - KAUPFÉLÖG: Vinsamlegast gerið pantanir á BRAUN vörum sem fyrst. Verslunin (heildsala — smásala) Skólavörðustíg 1—3, Bergstaðastræti 7 47. TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.