Vikan

Tölublað

Vikan - 18.11.1976, Blaðsíða 10

Vikan - 18.11.1976, Blaðsíða 10
ÓTEK-* DISKÓTEK-* DISKÖTEK-* DIS Linguaphon Þú getur lært nýtt tungumál á 60 tímum LINGUAPHONE tungumálanámskeió kennir þér nýtt tungumál á sambærilegan hátt og þú læróir íslenzku. Þú hlustar, þú skilur og talar síóan. Þú hef ur meófædd- an hæfileika til aó læra aó tala á þennan hátt. Aótrú- lega skömmum tíma nemur þú nýtt tungumál, þér til gagns og ánægju. — Þetta er RETT og ÞU getur sannaó þaó. — Vió sendum þér aó kostnaóarlausu upplýsingapésa um námió. — Þegar þú hefur tekió ákvöróun, — sendum vió þér linguaphone námskeió í því tungumáli, sem þú ætlar aó læra. l'&uJtrobus lAUM^év'oöi^ s'cur LINGUAPHONE tungumálanámskeió á hljómplötum og kassettum Hljóófærahús Reykjavíkur- Laugav.96 -sími 13656 —!------I—I-----------I------I.................- . KÓTEK ★ DISKÓTEK ★ DISKÓTEK★ DISKÓTEK★ DISK , o FERÐA DISKOTEK OBELIX UMBOÐSSlMI 15699 KL. 9-12,30 FYRIR HÁDEGI. * O cn 7t. O H m t: + g co t: o H m * ^sia -¥• >i3io>isia -¥-»3io>isia Y-»3io>isia JF»3io>isia AÐ DREPAST ÚR FORVITNI. Kœri Póstur! Við höfum aldrei skrifað þér éður, og við vonum, að þetta bréf lendi ekki í hinni víðfrægu ruslakörfu. Við vonum, að þú getir svarað þessum spurningum okkar. 1. Hvað er Rúnar Júliusson í Trú- broti gamall? 2. Er hann giftur og é hann börn? 3. Hvar é hann heima? Svo er þetta vanalega. Hvemig fara krabbi (stelpa) og vog (strékur) saman? En tvíburi (stelpa) og tvíburi (strékur)? Hvað lestu úr skriftinni og hvað heldur þú að við séum gamlar? Tvær fullar af forvitni. Satt er það. Þið eruð óeðlilega forvitnar. Pósturinn hefur satt að segja ekki ó reiðum höndum per- sónulegar upplýsingar um Rúnar Júlíusson, en ætlar samt að svara spurningum ykkar eftir bestu getu. 1 fyrsta lagi er Rúnar alls ekki í Trúbroti lengur, því að hljóm- sveitin hætti störfum fyrir nokkrum órum. Ilann er sennilega rúmlega þritugur að aldri og er eftir því sem Pósturinn best veit giftur og orðinn pabbi fyrir löngu. Hann á heima einhvers staðar i Keflavík, og þið ættuð þvi að geta fundið heimil- isfangið í simaskránni. Krabbastelpa og vogarstrákur eru svo ólík, að þau munu aldrei þola hvort annað til lengdar. Tví- burastrákur og stelpa ættu hins vegar að verða hamingjusöm. Þið eruð 11 — 12 ára, og skriftin ber vott um sjálfselsku. RUGL UM REGNBOGA. Kaeri Póstur! Við erum hérna tvær og langar til þess að fá svör við nokkrum spurningum. 1. Hvernig stendur á þvf að regnbogarnir voru þrír f dag? Ég var að koma heim úr skólanum í dag kl. 2, og þá sá ég regnbogana fyrst. Svo fór ég aftur út um kl. hálf þrjú og rýndi í gegnum sortann (það var sko bæði rok og rigning í dag) og sá þá þessa þrjá regnboga aftur. Sá þriðji var mjög ógreinilegur og sást ekki nema stundum. Svo fannst mér líka skrítið, að þótt bjart væri f kringum regnbogana, þá var dökkgrátt á milli þeirra. 2. Fara hrútur (strákur) og sporðdreki (stelpa) vel saman? En bogmaður (strákur) og vog (stelpa)? 3. Er búist við að sumarið á næsta ári verði eins og síðastliðið sumar? 4. Viltu segja okkur nafn og heimilisfang einhverrar góörar spákonu? 5. Hvað lestu úr skriftinni hjá þeirri sem skrifaði það fyrsta, þriðju spurninguna og þá fjórðu? En hjá mér? 6. Eru margar stafsetningar- villur? 7. Hvað helduröu að viö séum gamlar? Bæ, bæ, kanínan og púddan. E.S. Þið verðið að vera nýbúnir að gefa ruslafötunni að éta. þegar þið fáið þetta bréf. Það munaði nu minnstu að bréfið lenti i rusiakörfunni, en satt að segja þá ieist henni bara ekkert á það og Pósturinn ákvað þess vegna að svara því. Fyrsta spurningin er nú alveg út í hött, og því æt/ar Pósturinn að sieppa því aö svara henni. Sam- búð hrúts og sporðdreka veröur aldrei friðsamleg, en getur gengiö samt. Bogmaður og vog eiga aiivei saman. Enginn getur sagt fyrir um veðrið langt fram í tímann, en Pósturinn vonar, að næsta sumar veröi með afbrigðum gott, svo að hann geti farið í sólbað / sumarfrfinu. Spákonur auglýsa stundum í smáauglýsing- um Dagblaðsins og Vísis. Þar ættuð þið að geta fengið upplýs- ingarumþær. Sú sem skrifaöi þaö fyrsta er fljótfær og kærulaus, en hin er dálítið rótlaus og sjálfs- ánægð. Stafsetningarvillur eru ekki mjög margar, en önnur stllfræði er mjög á reiki. Þið eru varla meira en 10 ára. KYNKULDI. Elsku Póstur! Ég hef aldrei skrifað þér áður og vona þess vegna að bréfið birtist. Þannig er mál með vexti, að ég er 19 ára, ung og lífsreynd á sviði kynlífs. Byrjaði ég 12 ára að vera með karlmönnum og hafa þeir orðið ærið margir um ævina. Núna er ég trúlofuð og farin að 10 VIKAN 47. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.