Vikan

Tölublað

Vikan - 18.11.1976, Blaðsíða 28

Vikan - 18.11.1976, Blaðsíða 28
Spáin gildir frá fimmtudcgi til miðvikudags HRÚT'JRINN 27. mars -20. aprii Einhverjir vinir þínir koma þér á óvart með saklausum hrekk, sem hefur þó óvœntar afleiðingar. Þetta leiðir af sér bráðskemmti- legan misskilning. NAUTIÐ 27. apríl — 21. maí Einmitt nú stendur þú frammi fyrir erfiðu vandamáli og þarfnast ráðlegginga. Við lokaákvörðun skaltu gæta þess að hafa hana ekki með minnsta veikum punkti. ST.V:-. TVÍBURARNIR 22. maí - 27. júní( Gamlir kunningjar, sem staddir eru í fjar- lægð minna á sig á eftirminnilegan hátt og það hefur sennilega talsverða þýðingu fyrir þig persónulega. KRABBINN 22. júní - 23. júlí Eitthvað veldur þér vonbrigðum og skapar þér talsvert aukaerfiði. Þetta er erfitt verk og mjög ólíklegt að þú þurfir nokkum tíma að endurtaka það. æmM LJÓNIÐ 24.júli -- 24. agúst Mál, sem þú hélst að væri löngu gleymt, kemur nú aftur fram í dagsljósið. Notaðu tækifærið til þess að láta álit þitt í ljós hið fyrsta. MEYJAN 24. ágúst — 23. sept. Gríptu hvert tækifæri sem gefst til útiveru og ferðalaga. Eftir amstur og erfiði síðustu vikna ertu í brýnni þörf fyrir að slaka ærlegaá. VOGIN 24. sept — 23. okt. Utanaðkomandi menn þurfa að hafa sam- i band við þig og því færð þú lítinn tíma til að sinna einkamálum þínum. Hafðu hugfast að fjölskyldan bíður ekki til eilífðar. SPORÐDREKINN 24. okt. - 23. nóv. Reyndu að vera yfirboðurum þínum að skapi, þótt það kosti þig einhverja sjálfsaf- neitun. Þú sérð örugglega ekki eftir þvi og líður bara talsvert betur á eftir. ^ BOGMAÐURINN 24. nóv. - 27. des. Gættu þín á að verða ekki til þess að spilla eigum annarra. Það gæti leitt til afskipta þeirra sem þú kærir þig síst um að hafa samskipti við. STEINGEITIN 22. des. - 20. jan. Einhverjar tafir eru að baga þig og þú telur þig í slæmri tímaþröng. Ýmislegt fer þó á allt annan veg en þú hugðir og veitir þér mikla gleði. VATNSBERINN 27. jan. - 19. febr. Framkoma þin við ákveðið tækifæri vekur hrifningu viðstaddra. Ekki er ólíklegt að þér veitist síðbúin viðurkenning í formi gjafar eðaþakklætis. FISKARNIR 20. febr. - 20. mars Reyndu að líta með meiri bjartsýni á hlutina og hafðu hugfast að það eru fleiri en ein hlið á hverju máli, það getur bjargað fyrir þér vikunni. STdÖRNUSPfl Uppruni Tularecito er sveipaður móðu. En um fund hans ganga munnmæli, sem fólkið á Guðsengi neitar að trúa, rétt eins og það neitar að trúa á drauga. Franklin Gomez hafði vinnu- mann, mexíkanskan indíána nefnd- an Pancho og ekkert meira. Einu sinni á hverra þriggja mánaða fresti tók Pancho kaup sitt og ók til Mont erey til að skrifta syndir sínar, gera yfirbót og drekka sig fullan, allt í nefndri röð. Ef honum tókst að komast hjá að verða settur inn, skreiddist hann upp í vagninn og lagðist til svefns, þegar kránum var lokað. Hesturinn lallaði svo með hann heim og kom rétt í birtingu, svo Pancho hafði tíma til að borða morgunverð og koma sér til vinnu. Pancho var ætíð sofandi, þegar hann kom, og þess vegna vakti það svo mikla athygli morgun einn, þegar hann ók á stökki í hlaðið, ekki einasta vakandi, heldur einnig hrópandi af öllum kröftum. Franklin Gomez fór út til að hafa tal af vinnumanni sínum. Saga hans, þegar búið var að greiða hana úr þeirri flækju af óskiljanlegu rugli, sem valt út úr honum var svona: Pancho var á leiðinni heim, öldungis alsgáður eins og ævinlega. Nálægt búgarði Blake heyrði hann barnsgrát frá grávíðisrunna við vegbrúnina. Hann stöðvaði hestinn og fór til að athuga málið, því það var ekki venjulegt að rekast á börn á þennan hátt. Og mikið rétt, Hann fann barnunga liggjandi undir runnanum. Hann var um það bil þriggja mánaða eftir stærðinni að dæma, áleit Pancho. Hann tók það upp og kveikti á eldspýtu til að athuga hvað hann hefði fundið þarna, þegar hryllilegur atburður gerðist. Barnið leit illilega á hann og sagði djúpri röddu: „Sjáðu, ég hef afar hvassar tennur.” Pancho fleygði barninu frá sér, stökk upp í vagninn og ók í loftinu heimleiðis, og notaði skaftið á svipunni til að lemja hestinn áfram, gólandi eins og tunglsjúkur hundur. Franklin Gomez strauk skeggið hugsandi. Pancho átti ekki vanda til að fá móðursýkisköst, jafnvel þó hann væri undir áhrifum áfengis, það vissi hann. Sú staðreynd, að hann hafði yfirleitt vaknað, benti til, að eitthvað hefði verið undir runnanum. Endirinn varð sá, að Franklin Gomez lét söðla hest, reið á staðinn og kom með bamið. Það talaði ekki framar næstu þrjú árin, né hafði það nokkra tönn, þegar að var gáð. Hvorug þessi staðreynd gat þó sannfært Pancho um, að það hefði ekki hreytt úr sér þessum illu orðum í fyrstu. Bamið var með stutta, kubbslega handleggi, en langa, liðamótaslaka fótleggi. Stórt höfuðið sat á van- sköpuðum breiðum herðum og eng- inn háls var merkjanlegur. Flatt andlit barnsins, ásamt undarlega löguðum kroppnum, olli því, að það varð eins og af sjálfu sér ekki nefnt annað en Tularecito, Litli froskur- inn, enda þótt Franklin Gomez kallaði það oft Sléttuúlf. ,,Því”, sagði hann, ,,það má sjá í andliti þessa drengs gamla visku, sem oft sést hjá sléttuúlfum.” ,,En hvað um fótleggina, armana og axlimar, senor?” sagði Pancho. Svo nafnið Tularecito varð ráðandi. Það vitnaðist aldrei, hver hafði borið út þennan litla vanskapning. Franklin Gomez lét drenginn alast upp á búgarðinum og Pancho gætti hans. En Pancho var alltaf hálf- smeykur við drenginn. Hvorki árin né strangar yfirbætur gátu afmáð áhrifin af fyrstu orðum Tularecito. Drengurinn óx hröðum skrefum, en eftir fimmta árið óx heilinn ekki meir. Sex ára gamall gat Tularecito unnið á við fullorðinn mann. Langir og liðugir fingur hans vora fimari og sterkari en flestra annarra. Á búgarðinum vom fingur Tularecito óspart notaðir. Harðir hnútar stóð- ust hann ekki lengi. Hann hafði næma fingur, sem aldrei skemmdu plöntur, sem hann átti að gróður- setja, og hann var nógu handsterk- ur til að snúa fasana úr hálsliðnum án sýnilegrar áreynslu. Og Tulare- cito hafði athyglisverða sérgáfu. Með þumalfingursnöglinni gat hann mótað lifandi eftirmyndir dýra úr sandsteini. Franklin Gomez geymdi mörg líkön af sléttuúlfum, ljónum, spörfuglum og íkomum í húsi sínu. Tveggja feta langt likan af svífandi fálka hékk á vírspotta í borðstof- unni. Pancho sem aldrei hafði getað litið á drenginn sem sanna mann- vem, taldiþessa sköpunargáfu bera vott um vaxandi einkenni um djöfullegt ættemi sem rekja mætti til yfimáttúrlegs uppmna drengs- ins. Þó fólk á Guðsengi tryði ekki á djöfullegan uppmna TulEU-ecito, leið því þó illa í návist hans. Augu hans vom gömul og þurr, það var eitthvað forynjulegt við andlit hans. Líkamskraftar hans og dular- fullar listgáfur gerðu hann ólikan öllum öðmm börnum og ollu óþægi- legum tilfinningum. Aðeins eitt gat vakið reiði Tulare- cito. Ef nokkur manneskja, karl- maður, kona eða barn skemmdi eða eyðilagði eitthvert af handaverkum hans, varð hann óður. Augu hans glóðu og hann réðst með mann- drápsofsa á skemmdarvarginn. í þremur tilvikum, þegar þetta kom fyrir, batt Franklin Gomez hann é honum og fótum og lét hann liggja, þangað til hann hafði aftur náð sínu jafnaðargeði. Tularecito fór ekki í skóla þegar hann var sex ára. Sex næstu árin áttu skólayfirvöld og kennarar öðm hvom i stríði hans vegna. Franklin Gomez viðurkenndi, að honum bæri að sækja skóla, og gekk jafnvel svo langt að koma honum af stað nokkmm sinnum, en Tularecito komst þangað aldrei. Hann var hræddur um, að skólinn myndi vera óþægilegur, svo hann bara lét sig hverfa í sólarhring eða svo. Það var ekki fyrr en hann var ellefu ára, með herðar eins og lyftingamaður og hendur og arma eins og kyrkjari, að handhafar laganna gerðu alvöm úr því að senda hann í skóla. 28 VIKAN 47. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.