Vikan

Útgáva

Vikan - 18.11.1976, Síða 20

Vikan - 18.11.1976, Síða 20
Bændurair voru i þann veginn að fara. Hann heyrði hávaða er hælar þeirra smullu i viðargólfið. Þeir stönsuðu og gerðu að gamni sinu við þjónustustúlkuna og hún fliss- aði. Ungur maður kallaði til þeirra á óskiljanlegri mállýsku. Einn af bændunum svaraði. Því næst kom hlátur og önnur athugasemd. Þeir kölluðust á, hálft í gamni og hálft í alvöru. Önnur minúta var Iiðin, hugsaði David kvíðafullur. Hann hafði Ódýrar og hentugar peningaskúffur □hrifuÉiin hf augun á úrinu sínu og hlustaði eftir hinum minnstu hljóðum. Krieger hreyfði sig ekki, en mennirair tveir virtust ákveðnir í því að bíða þangað til hann færi og ætluðu þá að elta hann. Ekkert annað? David hikaði. Honum fannst hann hálf- kjánalegur. Átti hann ekki bara að hypja sig? En allt í einu stóðu mennirnir tveir upp og gengu hratt yfir að borði Kriegers. David fór í frakka- vasa sinn og greip um skamm- byssuna. Hann fylgdist með því. sem var að gerast. Annar maðurinn fór í jakkavasa sinn, sem bungaði óheillavænlega út. Þeir voru nú búnir að króa hann af og hinn sagði eitthvað og var mjög fljótmæltur. Hann lagði óherslu ó orð sín með þvi að benda ó bakdyrnar. David stóð gætilega upp fró borð- inu, en hafði stöðugt gætur á mönn- unum. Þeir snéru baki í hann og einbeittu sér að Krieger, sem reis hægt á fætur. Hann sagði eitthvað við þá, til þess að halda athygli þeirra vakandi eins og hann ætti von á einhverjum fantabrögðum. Á meðan fékk David ráðrúm til þess að læðast að manninum, sem var áreiðanlega með byssu í vasanum. Hinn leit við og varaði félaga sinn við. En það var um seinan. David teygði sig fram og sló hann með byssuskeftinu í hnakkann. Krieger slengdi ölkrúsinni á munn hins. Mennirnir tveir duttu nær samtímis annar á gólfið og sennilega i roti, en hinn á borðið og hann hélt hönd- unum fyrir andlitið. Krieger staldraði aðeins við og setti einhverja peninga á borðið við hliðina á emjandi manninum. „Þetta ætti að nægja fyrir brotnu ölkrúsinni lika,” sagði hann og elti David í áttina að bakdyrunum. Þeir voru nú komnir út í sundið. Krieger benti til vinstri handar. „Þetta er skemmsta leiðin. Ég ætla að fara í hina áttina.” Hann beygði til hægri, stansaði svo andartak og leit við. „Þú ert þrjóskari en and- skotinn. En ég þakka þér samt fyrir.” David brosti og hljóp síðan eftir sundinu, sem bugðaðist eins og árfarvegur á milli þriggjahæða húsanna. Hér var skuggsælt og friðsamlegt. Sú sneið af himninum, sem sást langt, langt fyrir ofan rauð þakskeggin, var heiðrík. Hann kom út á götuna er lá í norður, hætti þó að hlaupa en gekk hröðum skrefum. 17. Irina hafði hlustað á fótatak Davids þegar hann hljóp niður stigann. Hún steig fram úr rúminu og var enn með samlokuna í hendinni og gekk yfir að gluggan- um. En hann var þegar kominn úr augsýn. Hún sá ekkert nema auðan veginn og friðsæla víngarðana. Hún snéri sér við en forðaðist að líta framan í Jo. „Þú hefur rétt fyrir þér,” sagði hún. „Sennilega er þrumuveður í aðsigi.” „Ljúktu við samlokuna.” Jo var að taka til á náttborðinu, vafði inn matarleifunum og setti þær í bréf- poka. I pokanum var líka matur, sem hún hafði keypt sjálf. Eitt hafði hún lært í þessari ferð og það var að vera við öllu búin. „Vilt þú ekki fá þér neitt að borða?” „Seinna,” sagði Jo. „Við getum stansað einhvers staðar og snarl- að.” Ef til vill yrði magi hennar þá aftur kominn í samt lag. Tilraun hennar til þess að borða hádegis- verð hafði mistekist. Ég vildi óska þess að ég væri eins róleg og ég virðist vera, hugsaði hún og hélt áfram að laga til í herberginu. Sem betur fór hafði Irina ekki tekið mikið upp úr töskunni sinni. „Ertu búin að losa þig við hárkolluna?” Irinu blöskraði. „Losa mig við hana. Þótt mér líki hún ekki dytti mér það ekki í hug.” Hún kláraði samlokuna og skolaði síðasta munnbitanum niður með víninu. Ferskjumar voru þegar komnar ofan í pokann. Jo var einum of framtakssöm. „Mig myndi langa í eina ferskju.” „Seinna. Þú verður of lengi að borða hana.” „En við höfum nægan tíma.” „Nei því miður. Flýttu þér nú Irina og settu ó þig hárkolluna. Þú breytist töluvert við það.” „Nei. Ég get sett á mig slæðuna.” „Gerðu það þó.” Jo vildi fyrir alla muni ekki lenda í deilum við hana. Hún gat sett á sig hárkolluna þegar þær væru komnar út fyrir bæinn og sjólf var hún að hugsa um að vera rauðhærð St. Mary til

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.