Vikan - 18.11.1976, Page 12
Muhammed fili
Hailagur oða
breyskur,
trúarkiðtogi oða
kvikmyndalaikari
Muhammed Ali leggur hanskann á
hilluna í lok ársins og ætlar að
hefja nýtt líf. En hvernig líf?
Sem trúarleiðtogi eða sem
kvikmyndaleikari? Hvað verður
ofan á hjá þessum eftirminnilega,
en óútreiknanlega manni, sem
er mestur í hringnum, en
,,tvísigraður” sem eiginmaður.
, ,Ég er þekktasta og vinsælasta
persóna í heimi,” segir Muhammed
Ali með stingandi augnaráði og
ógnandi vísifingri.
,,Allir dá mig, alls staðar...”
Þetta eru dæmigerð tilsvör
manns, sem kallar sjálfan sig Hinn
mesta. og það er ekki heiglum hent
að eiga við hann orðastað. Vörpu-
leiki hans og stingandi augnaráð
draga næstum úr manni allan
kjark, en ég dirfist þó að spyrja
hversu lengi hann álíti að hann
haldi þessum vinsældum, skrifar
enskur blaðamaður, er ræddi við
Muhammed Ali fyrr á þessu ári.
Ali segist hætta í hringnum i lok
þessa árs og helga lif sitt málstað
hreyfingarinnar Black Muslims.
Eftir 15 ár i hringnum og 10 ár
sem heimsrneistari er erfitt að gera
sér í hugarlund, hvernig hann getur
án hnefaleikanna verið.
„Enginn vandi,” segir hann og
ypptir öxlum og hallar sér i átt til
mín með ákveðnum svip. ,,Allir
halda, að ég sé glataður, ef ég hætti
hnefaleikum. Ekkert er fjær veru-
leikanum. Trú mín er mér miklu
meira virði en hnefaleikar hafa
nokkurn tíma verið. Að útbreiða þá
trú veitir mér meiri gleði, meiri
æsing en ég finn til í hringnum.”
„Mun ég sakna hnefaleikanna?
Andskotinn, sannleikurinn er sá, að
hnefaleikar eru grimmdarlegir og
ruddalegir, og ég hef i raun aldrei
haft af þeim ánægju.”
,,Ég verð að boxa vegna álitsins.
Það er eina ástæðan. Ég verð að
bera af i þessari ruddalegu íþrótt
— til að allir geti heyrt skoðanir
mínar, skilurðu?”
„Við lifum í heimi, sem er þannig
gerður, að ef þú ert óþekktur, átt
ekki peninga, hefur engin völd —
þá vill enginn þekkja þig. Ég er
boðberi guðstrúar, frelsis og vil
vinna skoðunum minum fylgi, en
áður en ég færi svörtum bræðrum
minum og systrum boðskap minn,
þá verð ég að hafa áhrif. Nú hef ég
áhrif og þau hlusta. ”
„Ég er að kenna svertingjum að
bera virðingu fyrir sjálfum sér.
Svartir bræður mínir verða að sýna
konum fyllstu virðingu. Ef maður
gætir ekki akra sinna, þá fær hann
ekki góða uppskeru — sama gildir
um konur. Og svartar systur minar
— sérstaklega þær sem hafa hrasað,
gleðikonurnar — ég segi við þær:
enginn virðir ykkur, ef þið gerið það
ekki sjálfar.”
Ég stöðva hann i miðri prédik-
uninni. Hvað konur snertir hefur
hinn mikli meistari átt i brösum.
Fyrsta kona hans hét Sonji (þau
giftust 1964, eða sama árið og hann
varð fyrst heimsmeistari) og hún
yfirgaf Ali eftir árs sambúð. Hann
kallaði hana miður fögrum orðum í
áheyrn fjölda fólks og sagði m.a„
að hún klæddist kjól," sem gleddi
augu andskotans”, og til að kóróna
orð sín gerði hann tilraun til að
rífa hana úr kjólnum!
Belinda varð önnur eiginkona
Alis, og hún yfirgaf meistarann í
febrúar í fyrra ásamt fjórum börn-
um þeirra. Og hvað gleðikonur
áhrærir — missti hann ekki svein-
dóm sinn hjá gleðikonu, er hann var
16 ára?
Augu Ali blossa af reiði, og
hann virðist allur stækka í sætinu.
Hnúarnir á hnefunum hvitna.
„Allir eiga sér markmið í lífinu,
læknar jafnt sem gleðikonur,” segir
hann ógnandi röddu. „Gleðikonur
eru ekki syndugar, þær hafa verið
meðal okkar frá dögum Jesús. Ef
þú endilega vilt vita það, þá get ég
sagt þér, að ég hefði orðið vitstola,
þegar fyrri konan mín yfirgaf mig,
ef ég hefði ekki getað leitað til gleði-
kvenna. Ég var ástfanginn, og ég
bar virðingu fyrir konu í eitt ár —
var henni trúr, en þegar hún fór frá
mér, þá hafði ég ekki tima eða geð í
mér að leita á vit annarrar konu.
Það voru gleðikonur, sem héldu mér
ánægðum, þar til hugur minn
róaðist. Við eigum öll eitthvert
markmið í þessu lifi... ”
Það er löng þögn. Auðsjáanlega
hefur hann engar áhyggjur af því að
12 VIKAN 47. TBL.