Vikan

Issue

Vikan - 18.11.1976, Page 21

Vikan - 18.11.1976, Page 21
heiðurs. „Já, settu slœðuna á þig,” sagði Jo i skipunartón. „Núna?” ,,Já, núna og púðraðu þig í framan þannig að þú virðist dálitið föl. En slepptu varalitnum.” „Eigum við að fara og skilja David eftir?” „Já, við verðum að fara. Ludvik, Milan og Jan sitja ekki inni á einhverju hótelherbergi að bíða þess að veðurútlitið skóni. Irina, þú verður að trúa mér. Þetta er eina leiðin til þess...” „Ég œtla ekki að fara,” sagði Irina ákveðin. „Far þú. Ég verð kyrr.” Jo settist á rúmið. „Mér líður ekki of vel.” Svipurinn á andliti Irinu breytt- ist. Hann var ekki lengur fjandsam- legur. „Hvíldu þig þó Jo. Leggstu fyrir smástund.” „Ég get það ekki og það sama gildir um þig. Við verðum að flýta okkur.” Irina heyrði að rödd hennar var að gefa sig og Jo var náföl í framan. „En ég vil bíða þangað til David kemur,” sagði hún vingjarnlega. Jo dró djúpt andann. „Þú ert jafn þvermóðsk og faðir þinn. En hann kann þó að hlusta á rök annarra.” „Hefurðu hitt föður minn?” „Jó, í London. Ég var í heimsókn hjó frœnda mínum, þegar faðir þinn flýði frá Prag. Ég var með honum þegar þeir höfðu næstum myrt hann.” „Myrt?” „Ég segi þér nánar frá þessu í bílnum. Við munum hafa nægan tima til þess að rabba saman þangað til David nær okkur.” Jo stóð upp og sótti yfirhöfnina sína. Guði sé lof, Dave ætlaði að slóst í för með þeim. Vegurinn sem lá í vesturátt hafði svo sem litið nógu vel út á kortinu þangað til hann beygði í norður í áttina að Sviss. „Við munum bíða hans hjá St. Mary. Það eru aðeins þrjátíu mílur þangað.” Irina hreyfði sig ekki. „Ertu að koma?” Irina hristi höfuðið. „Ég ætla að bíða eftir David hérna.” „Og láta myrða hann eins og Josef og Alois Pokomy?” Irina glennti upp augun. Nú er ég einum of harðbrjósta, hugsaði Jo, en ég hef engin önnur ráð. „Eða þú hefur kannski ekki tekið eftir því að hver og einn, sem hefur eytt dálitlum tíma með þér, lendir í hrapalegu slysi? Hver er ástæðan? Þú ættir að spyrja Jiri. Hann er að sjóða saman lygasögu varðandi flótta þinn, en á erfitt með að gefa haldgóðar skýringar á henni. „Jo þagnaði andartak. „Settu nú á þig slæðuna og farðu í kápuna mina. Ég fer í þína kápu. Lítilsháttar rugling- ur sakar ekki.” „Hvaða lygasögur?” spurði Ir- ina, en setti á sig slæðuna og fór í regnkápuna. Hnúturinn í maga Jo leystist. Hún hafði unnið omstuna. „Komdu nú. Við skulum hraða okkur. Ég skýri þetta allt saman nónar fyrir þér á eftir.” En Irina gerði sig ekki liklega til þess að fara. Hún leit framan í Jo og augu hennar vom spyrjandi. „Dagblöðin í dag birta frétt frá Prag þess efnis að þér hafi verið rænt og það í pólitisku augneumiði,” sagði Jo. Irina stóð grafkyrr. „Rænt?” „Þetta er útgáfa Jiris á sögunni. En Krieger átti svo sem von á svona brellum. Hafðu þvi engar áhyggjur. Þér er alveg óhætt að treysta Kriger. Hann mun finna einhver...” „Treysta Krieger?” sagði Irina bitur. „Var það ekki hann sem lagði á ráðin varðandi þetta?” Hún benti á tösku Davids, sem Jo ætlaði að fara að bera ofan stigann ásamt pokanum með matnum í. Andartak var eins og Irina ætlaði að klæða sig úr regnkápunni. Jo gat nú ekki lengur haft taumhald á reiði sinni. „Krieger”, ætlar að vera hér í Merano eins lengi og hann getur. Við hverja mínútu sem okkur seinkar eykst hættan. Sannleikurinn er só, kæra Irina, að hugsast getur að hann verði myrtur vegna þess að hann er að reyna að hjálpa þér. Hættu þvi þessum bamaskap. Ef þú vilt endilega hata einhvem, skaltu hata Ludvik og hans menn. Það vom þeir sem myrtu Alois. Kriger er vitnið og framburður hans getur orðið til þess, að þeir verði hengd- ir.” Er hún hafði mtt þessu út úr sér opnaði hún dymar. Hún leit óþolinmóð aftur fyrir sig og sá hvar Irina var enn að fálma við regnkáp- una. Hún var þó ekki að fara úr henni. Hún hafði tekið tvær litlar minnisbækur úr handtösku sinni og var að koma þeim fyrir í djúpum innrivasa. Irina lokaði handtöskunni. „Hún var of úttroðin,” sagði hún. „Auk þess hefði einhver getað stolið henni.” Hún leit niður fyrir sig á regnkápuna. „Þetta sést ekkert,” fullvissaði Jo hana um. Þetta er einkennileg kona. Hvað skyldi hún hafa verið að tela? Að hún skyldi hafa áhyggjur af töskuþjófum núna eins og á stóð? Sn hún hafði allvega tekið ákúm Jo el, Jo leið þess vegna betur núna. . egar allt kemur til alls þá höfðu I'.ær báðar haft þörf fyrir sennu. Nú hafði andrúmsloftið verið hreinsað. Ég skal sjá um að skýra þetta ■yrir Frú hver það nú er og syni . ennar,” sagði hún við Irinu er þær gi.'gur ofan stigann. „Við verðum þa ekki tvísaga.” Þegar þær vom komnar niður í forstofu, heyrðist mikil sprengirg og rúðuni£u- titmðu. Það munaði engu að Jo hrasaði í siðasta stigaþrepinu og Irina hrökk i kút. Þær litu hvor ó aðra, en héldu síðan áfram. Frú Hatmann var hvergi sjáanleg. „Hún hefur sjálfsagt lokað sig inni í klæðaskóp,” sagði Jo. „Móðir min gerir það alltaf þegar hún heyrir þmmur.” „Em þær hér nálægt?” „Of nálægt.” Framhald (næsta blafii. 6ISSUR GULLRA55 B/lL KAVANAGH c. FŒANK FLBTCUER 47. TBL. VIKAN 21

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.