Vikan - 18.11.1976, Side 29
(Ipprani
Tularecito
SMÁSAGA
EFTIR
JOHN
STEINBECK
Eins og Frankling Gomez hafði
vitað, lœrði Tularecito ekki neitt, en
brátt kom í ljós hjá honum ný
listagáfa. Hann gat teiknað jafn vel
og hann gat mótað í sandstein.
Þegar ungfrú Martin kennari upp-
götvaði hæfileika hans, fékk hún
honum krítarmola og sagði honum
að teikna röð af dýrum eftir allri
skólatöflunni. Tularecito hélt áfram
að teikna löngu eftir að skólinn var
úti, og næsta morgun gat að líta
furðulega fylkingu af dýrum um alla
veggi. öll dýr, sem Tularecito hafði
nokkru sinni séð, voru þarna sam-
ankomin, allir fuglar landsins svifu
fyrir ofan þau. Skröltormur skreið á
eftir kú, sléttuúlfur með skottið upp
i loftið, snuðraði á hælunum á grís.
Þarna voru kettir og geitur, skjald-
bökur og kanínur, öll teiknuð af
furðulegri nákvæmni i öllum
minnstu atriðum.
Ungfrú Martin varð stórhrifin af
snilld Tularecito. Hún hrósaði hon-
um í áheyrn bekkjarins og hélt
smátölu um hvert og eitt dýr, sem
hann hafði teiknað. Með sjálfri sér
hugleiddi hún þá frægð, sem henni
myndi falla í skaut fyrir að hata
uppgötvað og leiðbeint slikum snill-
ingi.
,,Ég get búið til mörg fleiri,”
tilkynnti Tularecito.
Ungfrú Martin klappaði honum á
breiðar herðarnar. ,,Það skaltu lika
gera,” sagði hún. ,,Þú skalt teikna
á hverjum degi. Þetta er mikil
náðargáfa, sem guð hefur veitt
þér.” Svo gerði hún sér ljost
mikilvægi þess, sem hún hafði sagt.
Hún hallaði sér fram og horfði
rannsakandi i hörkuleg augu hans,
meðan hún endurtók hægt: „Það er
mikil náðargáfa, sem guð hefur
veitt þér.” Ungfrú Martin leit á
klukkuna og sagði stuttlega:
„Reikningur — við töfluna.”
Fjórðubekkingar tóku þurrkur og
byrjuðu að afmá teikningarnar til
að fá rúm fyrir tölustafina. Þeir
höfðu ekki þurrkað út svo mikið
sem tvö dýr, þegar Tularecito gerði
árás. Þetta varð mikill dagur.
Ungfrú Martin, með hjálp allra
nemendanna, var um megn að halda
aftur af honum. Tularecito var ösku-
reiður, sterkur eins og fullorðinn
maður, meira að segja brjálaður
maður. Bardaginn lagði skólastof-
una í rúst, borð ultu um koll, blek
rann í lækjum, blóm kennarans
voru eins og fjaðrafok út um
stofuna. Föt ungfrúarinnar voru
rifin i hengla, og stóru strákarnir,
sem bardaginn mæddi mest á, voru
skrámaðir og barðir tU óbóta.
Tularecito barðist með höndum,
fótum, tönnum og höfði. Hann virti
engar bardagareglur, og á endanum
fór hann með sigur af hólmi. Allir
nemendur skólans með ungfrú
Martin síðasta, flúðu úr húsinu og
lét Tularecito það eftir. Þegar þau
voru á burt, þurrkaði hann af sér
blóðið og tók tU að endurskapa þau
dýr, sem höfðu verið eyðilögð.
Um kvöldið heimsótti kennslu-
konan Franklin Gomez og krafðist
þess, að Tularecito yrði hýddur.
Gomez yppti öxlum. „Þú óskar
þess eindregið, að ég hýði hann,
ungfrú Martin?”
AndUt kennslukonunnar var klór-
að, svipurinn bitur. „Það geri ég
vissulega,” sagði hún. „Hefðir þú
séð, hvað hann gerði í dag, mundir
þú ekki lá mér það. Ég segi þér satt,
hann þarfnast refsingar.”
Gomez yppti öxlum á ný og
kallaði á Tularecito út úr svefnskál-
anum. Hann tók stóran reiðpísk
niður af þUinu. Og svo, á meðan
Tularecito brosti ánalega tU ungfrú
Martin, barði Franklin Gomez hann
óþyrmUega yfir hrygginn. Hönd
kennslukonunnar hreyfðist ósjálf-
• rátt i takt við slögin. Þegar því var
lokið, þreifaði Tularecito varlega
um bak sitt með næmum fingrum
og brosti enn, hélt síðan aftur tU
svefnskálans.
Ungfrú Martin hafði horft á lok
refsingarinnar með viðbjóði.
„Hann er ekki annað en dýr,”
hrópaði hún. „Þetta var alveg eins
og að berja hund.
Franklin Gomez leyfði sér að láta
í ljós lítUsháttar fyrirhtningu á
henni með svipbrigðum. „Hundur
hefði ýlfrað,” sagði hann. „Nú
hefur þú sjálf séð, ungfrú. Þú segir
að hann sé dýr, en hann er vissulega
gott dýr. Þú sagðir honum að búa
til myndir og svo eyðUagðir þú
myndimar. Tularecito getur ekki
fellt sig við það.”
Kennslukonan reyndi að grípa
fram í, en hann hélt áfram.
„Þessi Litli froskur ætti ekki að
ganga í skóla. Hann getur unnið,
hann getur gert undursamlega hluti
i höndunum, en hann getur ekki
lært að gera einföldustu hluti í
skólanum. Hann er ekki brjálaður,
hann er einn af þeim, sem guð lauk
aldrei við að skapa.
„Ég sagði fræðslustjóranum
þetta, og hann sagði, að lögum
samkvæmt ætti Tularecito að
ganga í skóla þangað til hann yrði
átján ára. Það eru sjö ár héðan i frá.
I sjö ár mun Litli froskurinn sitja í
fyrsta bekk, af því lögin kveða svo
á. Ég gef þetta mál frá mér.”
„Það ætti að loka hann inni,”
greip ungfrúin fram í. „Þessi
skepna er hættuleg. Þú hefðir átt að
sjá til hans í dag.”
„Nei, ungfrú Martin, hann ætti
að fá að vera frjáls. Hann er ekki
hættulegur. Enginn getur gert garð
fallegri en hann. Enginn getur
mjólkað hraðar og mjúklegar. Hann
er góður drengur. Hann getur gert
óðan hest þægan án þess að ríða
honum, hann getur vanið hund án
þess að berja hann, en lögin segja
að hann verði að sitja í fyrsta bekk
og endurtaka K-ö-T-T-U-R, kött-
ur í sjö ár. Væri hann hættulegur,
hefði hann auðveldlega getað drepið
mig, þegar ég hýddi hann.”
Ungfrú Martin fann, að til voru
þeir hlutir, sem hún skildi ekki, og
þess vegna hataðist hún við Fremk-
lin Gomez. Hún fann, að sjálf hafði
hún verið ósanngjörn, en hann
göfuglyndur. Þegar hún kom í
skólann næsta morgun, fann hún
Tularecito þar fyrir. Hver lófastór
blettur á veggjunum var þakinn
dýramyndum.
„Sérðu nú?” sagði hann og brosti
um öxl sér til hennar. „Mörg fleiri.
Og ég á bók með enn fleirum, en það
er ekkert pláss fyrir þau á veggj-
unum.”
Kennslukonan þurrkaði þau ekki
út. Taflan var ekki notuð heldur
pappír, en í lok skólaársins baðst
hún lausnar og bar við heilsuleysi.
Ungfrú Morgan, nýja kennslu-
konan, var kornung og afar falleg,
of ung og hættulega falleg, fannst
öldruðum mönnum í sveitinni.
Sumir drengjanna í efri bekkjunum
voru sautján ára gamlir. Það var
talið vafasamt, að svo ung og falleg
kennslukona gæti haldið nokkurri
röð og reglu í skólanum.
Hún kom með eldlegan áhuga
fyrir starfi sínu. Nemendur skólans
Barbie dúkkur.
Sindy dúkkur.
Matchbox dúkkur.
Daisy dúkkur.
Skópar, borð.
Hórþurrkur, rúm.
Snyrtiborð.
Náttborð.
Stólar, sófar.
Utvörp.vaskar.
Baðker.
Brúðuhús 4 gerðir.
*
Póstsendum samdægurs.
Leikfangahúsið,
Skólavörðustig 10, Box 7154 — simi 14806
47. TBL. VIKAN 29