Vikan - 19.01.1978, Side 9
...5^-.-
Ég fór á popp-hátíðina!
OPPL'i STN&n/Z.
— Það er mjög persónuleg
spurning. Má ég koma inn
fyrir?
— Þennan þarna!
I NÆSTU VIKU
JÖN H. KARLSSON
FYRIRLIÐI
Daginn sem næsta tölublað Vikunnar kemur út hefja
sextán bestu handknattleiksþjóðir heims með sér
úrslitaglímu um það, hver þeirra sé í rauninni sterkust.
Þeirra á meðal er íslenska landsliðið. undir stjórn Jóns
H. Karlssonar, eða Ponna, eins og hann er kallaður. Af
því tilefni birtist viðtal við kappann í næsta blaði, en
auk þess að leiða landslið íslendinga í handknattleik,
þá er Jón framkvæmdastjóri hjá versluninni
Teppalandi, er kvæntur og á þrjár dætur. En eðlilega
snýst viðtalið mest um handknattleikinn.
VIKAN Á HUNDAEYJUM
Skammdegið leggst misjafnlega í fólk, og sumir verða
heldur erfiðir í skapinu, þegar veturinn gengur í garð.
Einn blaðamaður Vikunnar brá á það ráð að bíða með
sumarfriið sitt, þangað til skammdegið var farið að
þjaka hann, en þá brá hann sér til Kanaríeyja og kom
náttúrlega margelfdur til baka. Ekkert hundalíf á
Hundaeyjum nefnist grein, sem birtist í næstu Viku, en
þar lýsir blaðamaðurinn ferð sinni. Við lestur þeirrar
greinar verður maður margs fróðari um þennan
eftirsótta ferðamannastað, til dæmis, að nafn eyjanna
þýðir í rauninni Hundaeyjar.
BAKDYRAMEGIN í
IÐNÖ
Flest kvöld vikunnar er Iðnó þéttsetið gestum, sem
skemmta sér og njóta þeirrar lístar, sem starfsmenn
Leikfélags Reykjavíkur bera þar á borð. En fæsta
grunar, hvUika aðstöðu þetta fólk býr við að tjaldabaki.
Vikan brá sér á dögunum bakdyramegin i Iðnó og
hugaði að starfseminni þar, og satt að segja urðu
Vikumenn steini lostnir yfir aðstöðunni, sem þar er að
finna. Það er sannarlega aðdáunarvert, hvað
Leikfélagsmönnum tekst að athafna sig i þrengslunum í
Iðnó. Sjá næsta blað.
SMASAGA EFTIR
EINAR LOGA
Vandræðin á Löngueyri hófust, þegar nýja fiskvinnslan
tók til starfa. Aðkomumennimir heimtuðu böll í
landlegum, og þá leið ekki á löngu, uns þörf varð fyrir
lögregluþjón — og svo annan — og annan — og enn
einn. Gústi i Koti hækkaði í tign með hverjum deginum
sem leið. Þessum fáu orðúm er ætlað að gefa
lesandanum til kynna, við hverju hann má búast við
lestur smásögunnar eftir Einar Loga Einarsson, sem
birtist í næsta blaði. Hann gerir þar góðlátlegt gys að
titlasýki manna, sem víða má finna stað.
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristin Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Anna Kristine Magnúsdóttir, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari:
Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjóm og auglýsingar í Siðumúla 12. Simar
35320—35323. Afgreiðsla og dreifing í Þverholti 11. Simi 36720. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 400.
Áskriftarverð kr. 1500 pr. mánuð, kr. 4500 fýrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 8460 fyrir 26 tölubl.
hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar, mai, ágúst.
3. TBL. VIKAN9