Vikan - 19.01.1978, Side 13
bragðið örlítið á artistokka, eins
og þaö á raunar að gera.
Með svona sterkum mat hefði
sennilega verið skynsamlegt að
drekka rommstél eða bjór. En við
völdum ágæta flösku af Piesporter
Michelsberg frá 1975. Þetta er
með bestu árgöngum Moselvína,
og má drekka Piesportegundir
þeirra núna. Michelsberg-svæðið
nær yfir þorpin Trittenheim,
Neumagen, Dhron, Piesport og
Minheim við ána Mosel. Aðeins
þorpin Wintich og Brauneberg
skilja svæðið frá bænum Bern-
kastel, þungamiðju vingæðanna á
Moselsvæðinu.
Miðinn á flöskunni sýndi stafina
QbA, sem þýðir, að vínið er
sykrað vin f rúmlega miðlungs
gæðaflokki. Okkur bragðaðist það
ágætlega, uns rauði piparinn með
kjötinu hlaut að yfirgnæfa alla
hógværa ilman og bragö.
ÁÐUR ÓKUNNIR ÁVEXTIR
i eftirrétt fengum við okkur
ávexti, sem kunnir eru á Jamaica.
i fyrsta lagi „Mango," vel
þroskaðan ávöxt, sem er að útliti
ekki ólíkur peru, en hefur alveg
Umhverfisjörðina ífjórtán veislum 3
Jamaica i'London
sérstakt, dísætt bragð. Flestir
þekkja mango betur sem óþrosk-
aðan, grænan grunn í „chutney"-
sultum. í öðru lagi fengum við
papaya, sem kallaðist „paw-paw"
á matseðlinum, en sá ávöxtur
minnir í útliti á melónu. Á Ocho
Rios voru báðar ávaxtategundirn-
ar niðursoðnar og ekki merkilegri
en aðrar slikar, bara meira
nýnæmi fyrir islendinga.
Þessi þríréttaða veisla kostaði
að þjórfé meðtöldu 11 pund alls
eða 2125 krónur á hvorn þátttak-
anda.
í næsta tölublaði Vikunnar
verða svo fréttir af næsta áfanga
heimsreisunnar, Peking, sem
sumir matarástarmenn telja, að
gangi næst París í matarmenn-
ingu.
(Ocho Rios, 22 Harcourt Street,
W 1, sími 262-3369).
Jónas Kristjánsson.