Vikan - 19.01.1978, Blaðsíða 14
Helga Tómasson þarf ekki að kynna
mörgum orðum, svo þekktur sem
hann er hér á landi og víða um heim
fyrir snilli sína og kunnáttu í listdansi.
Helgi fæddist 8. október 1942 og er
dæmigerður vogarmaður að sögn.
Hann fæddist í Vestmannaeyjum, en
fluttist til Reykjavíkur 4 ára að aldri.
Hann lauk námi í Gagnfræðaskóla
Austurbæjar, en eftir það helgaði
hann líf sitt algjörlega listdansinum.
Hann hóf nám hjá Sigríði Ármann,
þegar hann var átta ára og er nú
tvímælalaust í hópi bestu ballett-
dansara heims.
Ferill hans erlendis hófst, þegar
hann var 14 ára, en þá fór hann til
Kaupmannahafnar og dansaði í Tívolí,
og þar varð hans starfsvettvangur í
fjögur sumur. 18 ára gamall fór hann
til Bandaríkjanna, þar sem hann hefur
búið og starfað síðan. Fyrst dansaði
hann með Robert Joffrey flokknum í
New York, síðan dansaði hann með
Harkness flokknum í 6 ár, en nú hefur
hann starfað hjá New York City Ballet
í næstum 8 ár.
Helgi hefur sýnt list sína víða um
heim og hefur ekki einu sinni tölu á
þeim löndum, sem hann hefur
heimsótt. Hann hefur dansað í
Bandaríkjunum og Kanada, flestum
löndum Evrópu, Norður-Afríku og
Suður-Afríku, Indlandi og Venezuela,
svo eitthvað sé nefnt.
" Eiginkona Helga heitir Marlene og
er bandarísk, fædd í Oregon. Hún var
Helgi þurfti stundum að hugsa sig um, þegar
hann svaraði spurningum okkar. en oftast komu
þó svörin um leið. Dagmar móðir hans f.vlgdist af
áhuga með því, hvernig hann lýsti sjálfum sér.
Marlene kona Helga var ballettdansmær, þegar
þau Helgi giftust, en hún helgar sig nú eingöngu
heimilinu.
ballettdansmær, þegar þau Helgi
kynntust, en hefurnú lagtdansinná hill-
una og helgað sig heimilinu. Þau eiga
tvo syni, Kristin, sem verður 11 ára í
næsta mánuði, og Erik, sem er 6 ára
síðan í desember. Þau búa í New
Jersey, sem er rétt hjá New York;
Þegar Helgi og fjölskylda heimsækja
ísland, búa þau að sjálfsögðu hjá
móður hans, Dagmar Helgadóttur, og
manni hennar, Jóni Hauki Guðjóns-
syni. Helgi á einn bróður, Guðjón
Inga, sem er 24 ára nemandi í
Háskólanum og Myndlista- og hand-
íðaskólanum.
Vikan tók hús á þessu ágæta fólki,
þegar Helgi var hér staddur í sambandi
við sýningar á Hnotubrjótnum. Dyggir
lesendur Vikunnar um margra ára
skeið muna eflaust eftir ágætu viðtali
við Helga í 12. tölublaði, sem kom út
25. mars 1971. Þar spjölluðu þeir
Helgi og Ómar Valdimarsson blaða-
maður um listdansinn, stöðu hans í
menningarlífi hér og annars staðar-og
um framtíðaráform Helga, sem þá var
nýbyrjaður hjá New York City Ballet.
Við þær umræður er litlu að bæta eftir
ekki lengri tíma, svo að við ákváðum
að fara aðra leið. Við lögðum fyrir
hann 30 spurningar um ýms efni, og
ættu svör hans að geta gefið
skemmtilega lýsingu á manninum á
bak við snillinginn. Við bendum til
dæmis á svar Helga við 9. spurning-
unni, þar sem hann telur sinn mesta
galla, að hann skuli vilja hafa allt svo
fullkomið. Ætli þar sé ekki einmitt að
finna grundvöllinn að frábærum
árangri Helga í list sinni.
K.H.
aðe]
1.
Hvar vildirðu helst eiga heima?
Þar sem ég starfa.
2.
Hvað hefðirðu helst viljað verða annað en list-
dansari?
Ég heföi viljað fást við eitthvað listrænt, gera
fal/ega skartmuni eða eitthvað annað, sem
krefst iistræns handbragðs.
3-
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Dansa.
4.
En leiðinlegast?
Vera iðju/aus. Það kemur að vísu ekki oft fyrir
mig, enþá leiðist mér virki/ega. Ég þarf a/ttaf að
hafa nóg að gera.
5.
Hvaða eiginleika telurðu mestu máli skipta í fari
karlmanna?
Heiðar/eika og áreiðan/eika.