Vikan - 19.01.1978, Blaðsíða 17
Árið 1969 tók Helgi Tómasson þétt í alþjóðlegri listdanskeppni, sem þá var haldin í fyrsta skipti í
Moskvu. Helgi stóð sig frábærlega og hlaut silfur að launum.
Marlene og synirnir tveir, Kristinn, sem er 11
ára, og Erik, sem er 6 ára.
Hvorugur sonanna hefur enn sýnt áhuga á að
feta í fótspor foreldranna í listdansinum,
en hamingjudraumur Helga fjallar um velfarnað
drengjanna í lífinu, hvað sem þeir
taka sér fyrir hendur.
Anna Guðný Brandsdóttir, Helgi Tómasson og
Sveinbjörg Alexanders dansa í ballettinum
Tchaikovsky-stef, en þessi þrjú hafa öll náð
miklum frama í sinni listgrein. Þarna er Helgi 14
ára. og upp úr þessu lá leið hans út í heim, fyrst
til Danmerkur og síðan til Bandaríkjanna.
Seint á síðasta ári hlotnaðist Helga sá heiður að
dansa í óperunni í París, og taldi hann það til
mestu viðburða í lífi sínu það ár. Hér sjáum við
hann á sviðinu í París.
3. TBL. VIKAN 17