Vikan


Vikan - 19.01.1978, Side 45

Vikan - 19.01.1978, Side 45
ÞETTA ER SONUR ÞINN hvert annað, það skipti engu máli, hvort þau bjuggu í vinnumanna- bústöðunum eða sjálfum herragarð- inum. Mattías — sonur hans! Lúkasi hlýnaði um hjartaræturnar. Loksins hafði hann eignast það, sem hann þráði mest í lífinu. Konu, barn og von um fleiri börn. Fjöl- skyldan var hans lífakkeri. Hann ætlaði ekki að draga lengur að komast að því, hvað hrjáði Ebbu. Strax og hún kæmi heim frá Mattisgarði ætlaði hann að ræða við hana. Það er ekki vafamál, að eitthvað amar að, hugsaði hann, þegar hann nokkrum tímum síðar stóð og veifaði eftir vagninum. Ebba sat í aftursætinu sveipuð köflóttu teppi. Hún veifaði til hans, og þrátt fyrir fjarlægðina sá hann, hve hún var föl og guggin. Vagninn ók áfram og hvarf alveg. Þegar þau voru komin upp á hæðina ofan við Steina, bað Ebba r ekilinn að staðnæmast. Hún sat kyrr í vagninum og leit um öxl niður yfir landareignina. Þarna var heim- ili hennar. En henni fannst hún ekki lengur eiga þarna heima. Hún var einmana, rótlaus og óörugg. Hún lifði í blekkingum og lygum og vissan um það kvaldi hana. Þau héldu áfram þögul. Það var ekki, fyrr en þau voru næstum á leiðarenda, að Jóhanna sagði: — Ég held, að ég setjist aftur að hér heima á Ási. — Ég skil, sagði Ebba þreytulega — Þú kannt ekki við þig á Steinum. En þið Sigríður hafið aldrei átt skap saman. — Ég ætla ekki að vera hjá þeim. Ég flyt til Elsbetar. Kofinn er nógu stór, við bjuggum þar sjö hér áður. Maður snýr heim að lokum. — Já, sagði Ebba bara, en bætti svo við eins og við sjálfa sig. — En ef maður veit ekki, hvar maður á heima. Þegar maður hefur engan rétt til._ Jóhönnu gafst ekki tími til að svara. Vagninn ók í hlaðið, og Jón kom út til að taka á móti þeim. Systkinin tóku vel á móti henni. Vagninn frá Steinum, glaðlegur ekillinn og fallega kápan hennar höfðu áhrif á þá, sem alltaf hugsuðu um veraldlega hluti. Næsta dag fóru þau um húsin, litu í kistur og skápa og töldu eignirnar. Þau fóru um akra og engi, og öllu var skipt í fjóra hluta. Ebba sagði ekki margt. Hún tók eftir því, hve Magda var nákvæm við skiptin, en hún tók líka eftir því, að eldri systir hennar gætti réttar hennar, eins og síns eigin. Hún hefði ekki þurft að hafa áhyggjur. Hún fyrirvarð sig. — Þú skiptir réttlátlega, Magda, sagði hún. — Rétt skal vera rétt, svaraði Magda, og andlit hennar var hörkulegt. — Það hefur kannski hvarflað að manni að ná einhverju undir sig, en slíkt hefnir sín. Það hefur ekkert gott í för með sér að hafa brögð í tafli. Ebba eldroðnaði, en systirin horfði ekki á hana. Hún hafði ekki sagt orðin með sérstökum raddblæ, ekki lagt neina dulda meiningu í þau. Þetta var hennar lífsskóðun, og hún lifði í samræmi við hana. Ebba varð eftir inni í stóru stofunni, þegar þau hin fóru. Hún litaðist um. Jón myndi kannski gera ýmsar breytingar hér núna, Sigríður kaus ef til vill að breyta, svo léttara yrði að hirða húsið. En enn sem komið var stóð stóra, hvítskúraða langborðið á sama stað og hún mundi það, og þarna var • stóll föður hennar við borðsendann. Hún sá hann fyrir sér, sveran og mikinn — þegar hún var barn hafði hún oft óttast hann. Þungu, dökku skáparnir með rósamálningunni stóðu ennþá við vegginn, hlaðnir silfri og tini. Erfðagripir, hlutir, sem höfðu erfst mann fram af manni. Það þótti vansæmd þeim manni, sem ekki lét eftir sig eitthvað til barna og barnabama. En það voru ekki bara hlutir, sem ' erfðust.... ' Ebba gekk hugsandi út gegnum dymar og gekk alein út úr húsinu og niður yfir túnið að læknum. Þar snéri hún sér við og horfði upp að bænum. Þarna stóð hann traustur og ömggt vé sínu fólki. Þarna hafði hann staðið í aldaraðir, heimili Mattisbændanna. Allt í einu fann hún eflast með sér ró og styrk. Gamli Mats Mattison og forfeður hans vom kannski mestu hörkutól, en þeir höfðu aldrei reynt að gera sig betri en þeir vom, og þeir höfðu aldrei farið með lygar. Hér var hennar heimur, hún átti hér sínar rætur. Hún varð að sýna, að hún yrði Það er banastuð a BANDAG Minnsti kostnaður pr. ekinn km. BANDAG er ífararbroddi. BANDAG erekki eftirlíkinq. BANDAG ereina sólunaraðferðin sem innifelur full - komna viðgeróarþjónustu fyrir sólun og það án aukagjalds. Lengri ending á sjálfum hjólbarðanum. Betra jafnvægi. Springa sjaldnar og kosta^ minna í viðgerðir Lengsta ending sólaðra hjólbarða. Bandag Hjólbarðasólun h.f. Dugguvogi 2 sími 8 ó. I DL. VIK.AN 41

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.