Vikan


Vikan - 19.01.1978, Blaðsíða 46

Vikan - 19.01.1978, Blaðsíða 46
ættinni ekki til skammar. Á Steinum hafði henni á stundum liðið eins og öskubusku, henni hafði fundist hún Iítil innan um allt rikidæmið og fínheitin. Hér fann hún aftur sjálfa sig. Hún ætlaði að segja Lúkasi allt af létta. Hún gat gert það núna, þegar Júlía var farin til Stokkhólms — eftir að hún hafði fallist á að taka við peningunum. Hún hafði ágæt efni núna, arfurinn var meira en nógur til að greiða nómskostnað Júlíu. Já, Ebba hafði keypt hana til að þegja, en hún hafði ekki öðlast eigin sálarfrið. Það yrði ekki fyrr en hún opnaði hjarta sitt fyrir manninum sínum. Hans vegna hafði hún gert það, sem hún hafði gert. En ekkert réttlætti svik, það sannfærðist hún nú um, þegar hún fann kraft forfeðra sinna streyma um sig. Hún hafði reynt að hlífa Lúkasi, og henni hafði heppnast það. En Lúkas var ekkert bam og hún ekki heldur. Þau urðu í sameiningu að greiða úr þeim vanda, sem hún hafði komið sér í. Hún hafði óttast afleiðingar gerða sinna, en hún varð að taka þeim. það var engin undankomuleið. Hún gat ekki lifað lengur með lyginni. Magda hafði á réttu að standa, það færði engum gæfu að svíkja. ÞEGAR Lúkas kom nokkrum dögum síðar til að sækja hana, tók hún á móti honum á hlaðinu. Hún leit ekki undan augnaráði hans núna, eins og áður. Hún snéri ekki andlitinu lengur undan. Hún horfði á hann, og andlit hennar var fölt, en rólegt. — Komdu, Lúkas, sagði hún. — Ég þarf að segja þér nokkuð. Þau gengu saman niður að læknum, og Ebba hélt fast í hönd hans. Þar staðnæmdist hún og herti enn takið um hönd hans. — Lúk.as, ég verð að segja það. Mattías — drengurinn — hann er ekki sonur þinn.... HAUSTVINDURINN blés kalt um þau. Lúkas var nófölur. Þrátt fyrir vindkulið spratt sviti fram á enni hans, eins og hann væri með hita. Þetta var eins og í martröð. Þetta gat ekki verið satt, Ebba var ekki að segja sannleikann. — Þú sagðir.. stundi hann upp. Rödd hennar var yfirleitt alltaf mild og þýð, næstum afsakandi. En nú hljómaði hún öðruvísi. Hún hafði fulla stjóm á sér, hafði öðlast styrk og kraft til að takast á við örlögin. Augu hennar lýstu að með- aumkvun. — Ég hefi loksins sagt þér. sannleikann, svarði hún. — Ég sagði, að Mattias væri ekki sonur þinn. Hann kom ekki upp nokkm orði. Þetta var þá satt. Það var eins og vindurinn yrði heitur og kæfandi, og sólin glotti í sindrandi vatni lækjarins. — Hann er ekki heldur sonur minn, hélt Ebba áfram styrkum rómi. — Hann er ekki okkar bam, Lúkas. Ég.... ég stal honum. Eitt augnablik virtist röddin ætla að bresta, en hún varð að halda áfram. Hún varð að tala opinskátt um allt, ekkert mátti vera ósagt milli þeirra lengur. — Hvað, hvað gerðirðu? Þetta gat ekki verið satt. Þetta ÞETTA ER SONUR ÞINN var ljótur draumur, eitthvað sem Ebba fann upp á, eitthvert hugar- fóstur hennar. Hún var ekki búin að jafna sig eftir veikindin. Svo var hún vanfær, það gat átt sínar orsakir. Lúkas rétti úr sér og horfði á konu sina. Og þá skildi hann. — Þú segir satt, sagði hann þunglega. — Já, en það dugir ekki að standa hér í kuldanum. Vindur- inn er nístandi kaldur. Við skulum fara upp í gestastofu, þar ónáðar okkur enginn. Hurðin inn í svefnherbergið var aftur, Ebba var því fegin. Hún vildi ekki sjá herbergið aftur, ef hún gat verið laus við það. Það var kveikt upp í arninum í sjálfri stofunni, það var gert dag hvern til að komast hjá raka. Það snarkaði notalega í eldinum. Hún gekk nær eldinum, en Lúkas settist við borðið. Blóðið þaut í æðum hans, og það hamraði og söng í höfðinu. Hann þurfti ekki meiri hita. Hann opnaði munninn til að spyrja, en Ebba varð á undan. — Ekki segja neitt. Leyfðu mér að tala, sagði hún. — Þú getur treyst mér héðan í frá, ég dreg ekkert undan. Ég ætla ekki að gera mig betri en ég er, ekki fegra neitt það, sem ég hefi gert. En nú mun ég segja þér allt sem gerðist, allt saman. OG EINS OG Júlía hafði sagt Henrik frá Mattíasi litla, sagði Ebba Lúkasi frá barninu. En það sem Júlía lét ósagt, sagði Ebba frá — ekki sem afsökun, heldur til skýringar. Að hún hefði gert það til að gefa honum barn, friskt og fallega skapað barn. Og að í hjarta sínu vonáðist hún eftir fleiri börnum fyrir hann og þau bæði. — Þetta var vel meint, sagði hún og var tregt um mál. — Þetta var vel meint, Lúkas, og þó svo fráleitt. Það er satt, sem Magda sagði, þegar við skiptum arfinum — þvi fylgir engin gæfa að hafa brögð í tófli. Lúkas reyndi að hafa stjórn á skapi sínu, hann var rauður í andliti og tennurnar samanbitnar. Hann varð að halda aftur af sér til að svara ekki skætingi. Honum fannst hann hafður að fífli, trúgjarn og kjánalegur. Hann hafði verið svo hamingjusamur með Mattías, látið sig dreyma um drenginn og framtið hans, vonað, að hann eignaðist systkini... — En sú von var enn til sataðar. Hann hélt aftur af sér, og orðin, sem hann langaði mest til að öskra að henni, voru ósögð. Hann leit hægt upp og til Ebbu, í augum hennar sá hann ást og blíðu. — Hvers vegna gérðir þú þetta? spurði hann að lokum þreytulega. — Hvers vegna teystir þú mér ekki betur en svo, að þú kaust að bera allt ein? — Það er misskilningur þinn, að ég treysti þér ekki. Þú mátt ekki halda neitt slíkt, Lúkas. Rödd hennar var angistarleg, eins og hjá óttaslegnu barni. — Það var af því... Æi, ég hefi allan tímann vitað... Þau sögðu það við mig, þegar þú komst til að tala við pabba um mig... þá sögðu þær það báðar, Magda og Sigríður. Og ég skildi það líka sjálf. — Hvað skildir þú? Hvað sögðu þær við þig? — Þú sagðir það líka sjálfur! Augnaráð Ebbu var vandræða- legt, augun stór og dimm. Þau stórðu og horfðu hvort á annað, og nú var það ekki lengur spurning um barnið og hvað Ebba hafði gert. Hendur Lúkasar skulfu, hann stakk þeim í vasann og kreppti hnefana. — Hvað áttu við? sagði hann. — Hvað hefi ég sagt? Hvað er það, sem þú hefur talið þér trú um, Ebba? — Að þú vildir giftast mér, vegna þess að þú þarfnaðist konu til að ala þér hraust börn. Konan þín var dáin, þú þurftir að fá konu eins og mig, sem var vel ættuð og ung. Þú varst einmana og Amalía veik. Þær sögðu, að Steinar hefðu gengið i arf í marga ættliði, og ég skildi það, það er eins og með býlið hérna. Lúkas, sagði Ebba og hafði nú betra vald yfir röddinni. — Lúkas, það er rétt. Maður má ekki svíkja forfeður sína. Ég ætlaði að gera það, og það er rangt. En Lúkas, ég.... — Svo að þú fórnaðir þér þá? Af meðaumkvun með manni, sem var einmana með veika barnið sitt. Þú vorkenndir mér og fékkst þig ekki til að neita mér. Var það þannig Ebba? — Hreint ekki! Hún snéri sér frá eldinum, stóð þarna bein í baki og föl í andliti, en augun glóðu. — Ég fórnaði mér alls ekki. Ég vissi, að þú kvæntist mér af hagsýnissjónarmiðum, enég.... — En þú — hvað? Talaðu þannig, að ég skilji þig. — Ég elska þig, svaraði Ebba og var hnarreist og stolt. — Ég hefi elskað þig frá fyrstu sýn, og ég hefi elskað þig hverja stund síðan. Ég hefi vonað, að einn dag myndir þú líka... og þess vegna þorði ég ekki að segja þér, að barnið okkar hefði fæðst andvana. Ég var hrædd. 42VIKAN 3. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.