Vikan - 19.01.1978, Qupperneq 47
- Hrædd?
— Hrædd við, að þú kynnir að
iðrast. Hrædd um, að þér fyndist
þú hafa valið rangt. Hrædd um, að
þú myndir aldrei geta elskað mig,
eins og ég þráði....
Rödd Ebbu var lág og hás. Lúksa
tók gólfið i löngum skrefum og lagði
báðar hendur á axlir hennar.
— Segðu það aftur, sagði hann og
andaði þungt.
— Segðu það aftur Ebba. Að
þú...
— Að ég elska þig? Hún brosti,
og varir hennar skulfu. — Lúkas,
ég elska þig. Ég hefi alltaf gert það
frá því við sáumst í fyrsta sinn. Ég
mun ætíð elska þig. En ég veit,
að...
— Hefi ég verið þetta bölvað fífl,
sagði hann. — Hættu að segja, en!
Hættu að trúa þvaðrinu i systur
þinni og mágkonu. Ebba, hvernig
heldur þú, að það sé fyrir mann á
minum aldri að verða yfir sig
ástfanginn. Og það af stúlku, sem
gæti næstum verið dóttir mín. Ég
þorði ekki að tjá þér ást mína, ég
var hræddur, ég stóri, sterki
karlmaðurinn! Hinn voldugi stór-
bóndi á Steinum, var hræddur eins
og smástrákur.
— Varst þú hræddur? sagði
Ebba, og tárin runnu niður kinnar
hennar. — En hvers vegna? Hvers
vegna skyldir þú vera hræddur?
— Vegna þess að ég var einmitt
það sem þú hefur áður sagt,
einmana og óhamingjusamur. Ég
var búinn að ákveða að kvænast
aldrei aftur. Ég vissi ekki ástæðuna
fyrir þvi, að báðir synir mínir dóu
nokkura daga gamlir, né hvers
vegna Amalía var sjúk. Að vísu var
móðir þeirra ekki heil heilsu, en það
gat lika verið mín sök, jafnvel þó
ekki sé vitað um arfgenga sjúkdóma
i ættinni, svo langt sem ég hefi
getað fylgt eftir. En öll þrjú. Ef
sökin var mín, vildi ég ekki draga
aðra með mér í ógæfuna. Ég hafði
því ákveðið að vera ógiftur. En svo
kynntist ég þér.
Hann dró hana að sér. — Ebba, •
ég hefi elskað þig frá fyrstu stund,
ég mun alltaf elska þig. Skilur þú
það? En ég var alltaf að hugsa um,
hve ung þú værir, og að þú kannski
iðraðist... Já, en nú segjum við
hvort öðru sannleikann. Ég hélt,
að þú hefðir játast mér til að komast
að heiman, að pabbi þinn væri
strangur og hálfsystkini þín væru
þér mótfallin, og þú vildir losna frá
þeim öllum. Ég hélt líka, að þér
geðjaðist vel tilhugsunin um að
verða frú á Steinum og að það hefði
líka verið þess vegna, sem þú sagðir
já.
— Lúkas!!
— Ebba, elskan mín. Svona
lagað gerist oft. En, mikill heigull
hefi ég verið að þora aldrei að tala af
hreinskilni. Ég vonaði bara, að þú
með tímanum lærðir að elska mig.
— Ó, þú...
Hún vafði handleggjunum um
háls hans og þrýsti votum vangan-
um að hans. Hún þorði að tjá
honum ást sína núna. Hann hélt
henni þétt að sé langa stund, svo
fast, að það var næstum sárt, og
þegar hann sleppti henni, voru augu
hans tárvot. -
— Ég er liklega fyrsti maðurinn í
sögu kristninnar, sem fæ að upplifa
hamingjuna sama dag og ég fæ að
vita, að sonur minn er ekki mitt
barn! En Ebba, hvernig eigum við
að greiða úr þessu? Hvað með
Júlíu?
— Ég fékk hana til að lofa að
þegja, sagði Ebba stillilega. — í
staðinn lofaði ég að kosta hana til
náms í söng. Þess vegna þarfnaðist
ég arfsins eftir föður minn.
Lúkas hló. — Og ég hélt, að þú
værir að verða aurasjúk! Við gátum
ekki einu sinni rætt um það, Ebba.
Aldrei framar skal neitt fá að koma
upp á milli okkar. Viltu heita mér
því?
Hún kinkaði þögul kolli. Nei,
ekkert skyldi fá að koma upp á milli
þeirra, hvað sem gerðist myndi
Lúkas verða á hennar bandi, hún
var sannfærð um það nú.
EN ÞÖ AÐ Júlía hefði tekið við
peningum og lofað að þegja, vissu
þau bæði, að þar með væri málið
ekki úr sögunni. Enn var síðasta
orðið í þessu máli ósagt. Það varð
að finna lausn á vandanum.
— Eitt vil ég segja strax, sagði
Lúkas. — Aldrei — aldrei munum
við gefa Mattias frá okkur. Hann er
þinn. Þú hefur barist fyrir lífi hans
og bjargað honum úr klóm dauðans.
Hans eigin móðir lyfti ekki svo
mikið sem fingri honum til bjargar.
Framhald í næsta blaði
enskan
kemur sér víöa vel
í Bréfaskólanum getur þú lært ensku, bæöi ritmál og talmál, og fylgja þá
snældur (kassettur) námsefninu. Einnig getur þú lært dönsku, sænsku og
þýsku í rólegheitum heima hjá þér, auk frönsku, spænsku, ítölsku,
rússnesku og esperanto.
Þar fyrir utan býðst þér m.a. kennsla í bók -
færslu og vélritun, ásamt siglingafræöi. Hún
dugar þér tii prófs, sem veitir skipstjórnar -
réttindi á skip allt aö 30 tonnum aö stærö.
Hringdu í síma 81255 og láttu innrita þig strax.
Bréfaskólinn
Suóurlandsbraut 32. 105 Reykjavik Simi 812 55
3. TBL. VIKAN43