Vikan - 19.01.1978, Side 48
Nei, maðurinn á myndinni er
ekki með neitt skraut eða gervi,
heldur sínar eiginlegu neglur, sem
hann hefur safnað á síöustu
fimmtán árum. Maðurinn heitir
Murari Aditya og á heima í
Kalkútta. Hann er talinn hafa
lengstu neglur í heimi, en
samanlögð lengd naglanna á
vinstri hönd hans er 179,07 sm.
Ekki vitum við, hvernig aumingja
maðurinn fer að því að varðveita
þessa dýrgripi, og varla er vinstri
höndin honum til mikils gagns.
Lengsta nögl, sem mælst hefur á
einum fingri manns, var 58,4 sm
löng og hafði vaxið í 11 ár. Eigandi
hennar er Romesh Sharma frá
Delhi.
SKEGGIÐ VARÐ SAFNGRIPUR
En fólk hefur safnað fleiru en
nöglum. T.d. er ekki vitaö til, að
nokkur maður hafi síðara hár en
Swami Pandarasannadhi, yfir-
maður Thiruvadu Thurai klaust-
ursins á Indlandi. Hár hans
mældist 7,93 m á lengd árið 1949.
Lengsta skegg veraldar átti hins
vegar Hans N. Langseth (fæddur
1846 í Noregi), en það mældist
5,33 m við dauða hans árið 1927.
Hafði hann þá dvalist 15 ár í
Bandaríkjunum. Skeggið varvarð-
veitt og gefið Smithsonian Insti-
tition í Washington áriö 1967.
Lengsta yfirskegg, sem sögur fara
af, átti Masuriya Din (f. 1908),
hindúaprestur í Partabharh-héraði
í Uttar Pradesh, Indlandi. Á
árunum 1949 til 1962 óx það í að
veröa 2,59 m endanna á milli.
LENGSTI DRAUMURINN
Draumsvefn einkennist af hröð-
um augnhreygingum, og er hann
nefndur REM-fasi svefns. REM-
fasinn er við venjulegar aöstæður
um það bil 20 mínútna langur að
meðaltali. Við sálarfræöideild
Háskólans í lllinois í Bandaríkjun-
um mældist REM-fasi Bill Carsk-
adon 2 klukkustundir og 23
mínútur, 15. febrúar 1967, eftirað
svefn hans hafði verið truflaður
um tíma, og er það lengsti
REM-fasi, sem sögur fara af. Það
hefði ekki verið amalegt fyrir
draumráðanda Vikunnar að kom-
ast í færi við slíkan draum!
ÁFENGISMAGN
Sterkasta alkóhólblanda, sem
fæst við eimun, er 95,6% etanól
(miðað við rúmtak). Einna sterk-
asta áfengiö, sem selt er til neyslu,
er „Everclear," 95% etanól selt í
31 bandarísku fylki til blöndunar í
heimagerða líkjöra o.þ.h. Sterk-
asta áfengið, sem selt er í ÁTVR,
mun vera bandarískur viskílíkjör,
Southern Comfort, 50% (100°
proof), en af innlendri framleiðslu
er mestur áfengisstyrkur (45%) í
tindavodka og hvannarrótar-
brennivíni.
AFKASTAMIKLIR RIT-
HÖFUNDAR___________________
Mestur sagnafjöldi, sem nokkur
rithöfundur hefur skrifað, er 904.
Það met á Kathleen Lindsay (frú
Mary Faulkner) (1903-1973) í
Somerset West, Höföanýlendu í
Suður-Afríku. Hún notaði sex
höfundarnöfn, þar af tvö karl-
mannsnöfn. Enski rithöfundurinn
Enid Mary Blyton (1898-1968)
skrifaði alls 600 sögur handa
börnum og unglingum, margar
stuttar, þar af 59 á árinu 1955.
Hún á þýðingarmet á tungumál,
en bækur hennar hafa verið
þýddar á 128 tungur.
SÁLMUR Á KORTÉRI
Bandarísk kona, frú Francis
(Fanny) Jane Van Alstyne (fædd
Crosby) (1820-1915) er afkasta-
mesta sálmaskáld sem vitað er
um, en hún orti 8500 sálma, þótt
hún væri blind frá því hún var sex
vikna gömul. Sagt er, að hún hafi
verið stundarfjórðung með sálm-
inn.
LENGSTA KVIKMYNDIN
Lengsta kvikmynd, sem nokk-
urn tíma hefur verið gerð, er eftir
Andy Warhol (f. í Cleveland, Ohio
í Bandaríkjunum, 1931), 24ra
BINNI GAMLI OG PINNI!
Lífseigasta teiknimyndasería (
blöðum er Binni og Pinni, sem
fyrst komu fram ( ,,New York
Journal" 12. des. 1897, teiknaðir
af Rudolph Dirks, og hafa haldið
velli síðan, nú teiknaðir af Joe
Musial. Annars eru Stína og Stjáni
útbreiddust, og birtist sú mynda-
saga nú ( 1600 blöðum í 50
löndum.
stunda mynd. Myndin seldist ekki,
og varð enginn hissa á því nema
framleiðandinn, en síðan var hún
stytt niður í 90 mínútur og sett á
markað undir nafninu Ástir Únd-
ínu.
HIMNASVÍTA Á HÁLFA
MILLJÓN___________________
Dýrasta gistihúsnæði heims
mun vera Himnasvítan (The
Celestial Suite) á ' níundu hæð
Astroworld Hotel Houston (
Texas, þar sem leigan er 480
þúsund krónur fyrir daginn.
Samanborið við þetta er hálfgerð-
ur niðursetningsbragur á að hýrast
í forsetasvítunni ( Waldorf Astoria
í New York fyrir rúmlega 150
þúsund krónur á dag.
MET í MÁLÆÐI
Tim Harty frá Coon Rapids í
Minnesota masaði stanslaust (144
klukkustundir og 4 mínútur 27.
janúartil 2. febrúar 1975. Kvenna-
met í kjaftagangi á hinsvegar frú
Mary E. Davis. Frúin byrjaði (
útvarpsstöð ( Buffalo, New York
2. september 1958 og hætti ekki
fyrr en í Tulsa, Oklahoma 110
klst:30 mín. og 5 sek.-seinna hinn
7. september.
SJALDGÆFASTA
Um þaö keppa 20 tungumál,
sem enginn getur lengur notað (
samtölum við annað fólk, af þvf að
aðeins er einn maður enn á Iffi,
sem kann þau. Meðal þessara