Vikan - 19.01.1978, Page 49
est og minnst
deyjandi mála eru sex indíánamál i
Norður-Ameríku. I Alaska eru
systur tvær einu manneskjurnar,
semtala eyak, þærnota það, þegar
þær hittast!
LENGSTA SETNINGIN____________
SETNING, SEM NÆR YFIR
1300 orð, er í sögunni Absaloam
Absaloam eftir bandaríska rit-
höfundinn William Faulkner. (
,,Sögu Guðs kirkju" (útg. um
1884) eftir Sylvester Hassell frá
Wilson í North-Carolina, Banda-
ríkjunum, er ein setningin 3153
orð, með 86 semíkommum og 390
kommum.
ORGELLEIKARI Í 81 ÁR
Úthaldsbesti orgelleikari sem
sögur fara af var 81 ár að stárfi,
Charles Bridgeman (1779-1873) í
Allra heilagra kirkju í Hertford í
Englandi. Hann tók við starfi þar
árið 1792og hélt því til dánardags.
ÍSRAELIR SLÁ ÍSLENDINGA ÚT
ísraelsmenn eru manna drýgstir
við sykurát, neyslan þar árið 1974
var til jafnaðar 166 g á dag á íbúa.
Þetta met tóku ísraelir af íslend-
ingum sem voru leiðandi þjóð í
sykurneyslu til skamms tíma, með
149 g á mann á dag að meðaltali
árin 1964-66. Lægst skráð sykur-
neysla er í Kína, 13,1 g á mann á
dag.
SÆLGÆTIÐ FER Í BRETANA
Mestu sælgætisætur f heimi eru
íbúar Bretlands, er neyttu til
jafnaðar á viku 221 gramms af
sætindum hver árið 1971. i
Skotlandi fór samsvarandi tala yfir
225 g árið 1968.
VERSTI BÍLSTJÓRINN
Eflaust verða margir til að veita
harða samkeppni um titilinn versti
bílstjóri heims, en 75 ára karlmað-
ur í McKinney í Texas í Banda-
ríkjunum þykir mjög sigurstrang-
legur. Á aðeins tuttugu mínútum
náði hann, hinn 15. október 1966,
að fá 10 sektarmiða, aka fjórum
sinnum á öfugum vegarhelmingi,
ók að auki fjórum sinnum á og
varð valdur að sex öðrum um-
ferðarslysum.
SKYLDU ÞAU VERA ORÐIN
HJÓN?
Bandarísku hjónin James og
Mary Grady, frá lllinois, hafa gifst
hvort öðru 40 sinnum, (fyrst árið
1937), til þess að mótmæla tilvist
hjónaskilnaða. Þau hafa meðal
annars verið gefin saman í 25
fylkjum Bandaríkjanna, ( Kanada,
Egyptalandi og Englandi, þrisvar
samdægurs (16. desember 1968),
tvisvar á einni klukkustund og
tvisvar í sjónvarpi.
BÆTUR FRÁ HINU OPINBERA
Ungfrú Millident Barcley,
fæddist 10. júlí 1879, skömmu
eftir dauða föður síns, Williams
Barcley sveitarforingja í breska
hernum og átti því rétt á bótum frá
hernum, þar til hún giftist. Hún
dó ógift 26. október 1969 og hafði
þá þegið bæturnar í 97 ár og 3
mánuði, og er þar sennilega um
heimsmet að ræða.
ENGINN BÍLAVINUR
Fram til október 1974 hafði Dick
Sheppard frá Gloucester, Engl-
andi tekist að eyðileggja 1158 bíla
og geri aðrir betur.
HEIMILD: Heimsmetabók
Guinness í íslenskri útgáfu frá Erni
og Örlygi.