Vikan - 08.06.1978, Síða 6
PÓSTURIM
Vantar pennavini
Kæri Pósti/r!
Vid erum tvœr skutlur, og
við viljum biðja þig um að gefa
okkur upplýsingar. Við erum
ekki í neinum vandrœðum með
stráka, því við erum hvorki
feimnar né hlédrægar. En það,
sem við viljum biðja þig um að
gera fyrir okkur er það, að fá
nafn og, ja, hvað eigum við að
segja, heimilisfang einhvers
blaðs, sem auglýsir eftir penna-
vinum í Bandaríkjunum og
Færeyjum. Ef þú getur ekki
. geftð okkur neinar upplýsingar
um nafn blaðs á hvorugum
staðnum. hvert eigum við þá
að snúa okkur? Ogsvo þetta
venjulega: Hvað lestu úr skrift-
inni, og hvað heldurðu, að við
séum gamlar? Með fyrirfram
þökkfyrir birtinguna.
Halla og Ladda.
Pósturinn hefur því miður engin
nöfn á blöðum úti i heimi, sem
geta aðstoðar ykkur, en þið skul-
uð skrifa til alþjóðlega penna-
vinaklúbbsins í Finnlandi, sem
útvegar pennavini um allan
heim. Heimilisfang hans er:
„International Youth Service,
Turku, Finland”. Skriftin ber
með sér, að bréfritarinn hafi gott
lunderni, en eigi það til að vera
dómharður á stundum. Þið er-
um 15 ára.
Gas í herberginu
Kæri þáttur.
Mig dreymdi nýlega þrívegis
í röð, að ég lægi í rúminu mínu
og herbergið mitt fylltist allt af
gasi. Þessir draumar hafa legið
þungt á mér, og mér þætti
vænt um, ef þú gœti sagt mér
hvað þetta táknar.
Með fyrirfram þakklæti.
K. L.
Gas í draumi er yfirleitt aðvörun
til dreymandans um að ástríður
og freistingar muni brátt verða á
vegi hans og hann þurfi á öllu
sínu viljaþreki að halda til að
látaekki bugast.
Sló tennurnar
úr vinkonu
sinni!!
Kæri Póstur!
Þetta er í fyrsta skipti, sem
ég skrifa þér, og ég vona, að þú
birtir þetta bréf. Svo er mál
með vexti, að ég á enga vin-
konu lengur!!!!
Þegar ég var yngri, átti ég
margar vinkonur, en nú er ég
ein og yfirgefin. Fyrir mánuði
átti ég eina vinkonu, en við rif
umst, þanguo til ég gaf henni
vænt kjáftshögg, og hún missti
tvær fullorðinstennur. Hún var
mín eina almennilega vinkona.
Ég sé svo eftir að hafa gefð
henni kjaftshögg, að ég gæti
pissað á mig. Hvað á ég að
gera til að ná henni aftur?
Hvað lestu úr skriftinni, og
hvað heldurðu að ég sé gömul?
Vinkona.
P.S. Afsakaðu skriftina.
Ef þú hefur ekki haft vit á að
geyma tennurnar hennar, verð-
urðu að fara og kaupa tvær
falskar tennur handa henni. Svo
ferðu til hennar í heimsókn, gef-
ur henni tennurnar og biður
hana innilegrar fyrirgefningar á
þessu framferði þínu! í alvöru
talað, vinkona, finnst þér þetta
nú hægt að láta svona? Þú verð-
ur að koma henni í skilning um,
að þú sjáir mjög eftir þessu og að
þér þyki vænt um hana og viljir
ekki missa hana sem vinkonu
Skriftin ber með sér, að þú sért
rnjög skapstór og eigir til að slá
tennur úr fólki, ef þér sýnist svo.
Þú ert 12—13 ára. Hvað viðvík-
ur P.S.inu þínu, þá neyðist ég
víst til að afsaka skriftina, — en
vandaðu þig betur næst!
Svo yfir sig
ástfangnar
Kæri Póstur.
Vonandi fer þetta bréf ekki í
ruslafötuna þína landsfrægu,
en við erum tvær skvísur, sem
erum yfr okkur ástfangnar af
tveimur strákum, sem okkur
langar að kynnast. Önnur okk-
ar er skotin í strák, sem er
tveimur árum eldri en hún, og
býst ekki við, að hann líti á sig.
Hin er dálítið hlédræg, en er
einu ári yngri en hinn strákur-
inn (þeir eru vinir). Okkur lang-
ar svo að kynnast þeim, en við
erum svo feimnar og ósjálf-
bjarga, að við erum alveg að
deyja (úr ást). Þannig að, kœri
Póstur, vildirðu vera svo góður
að gefa okkur ráð (en segja
okkur ekki að fá okkur aðra).
Þökkum gott efni í blaðinu.
Hvernig er skriftin? Með fyrir-
fram þökk.
Tvær vongóðar.
Það er nú erfitt fyrir Póstinn að
gefa ykkur ráðleggingar, þar sem
þið gefið ekkert upp um strák-
ana; hvort þeir séu með ykkur í
skóla, hvort þið búið nálægt
hvort öðru, hvort þið hafið bara
séð þá í strætó, — eða neitt í þá
áttina. Ég vona bara, að þið haf-
ið tækifæri til að nálgast þá á
dansleik, það er oft svo auðvelt
að kynnast fólki á svoleiðis stöð-
um! Þið bara verðið að herða
upp hugann, næst þegar þið haf-
ið tækifæri til að tala við þá, og
reyna að koma af stað umræð-
um. Hvað viðvíkur aldursmun-
inum, þá gæti hann varla verið
betri, svo þið þurfið ekki að hafa
áhyggjur af því, að þeir liti ekki
á ykkur þess vegna. Ef þið eruð
jafn fallegar og skriftin á bréfinu
Ég held ég sé ófrísk
Kœri Póstur!
Ég vona, að þú svarir þessu bréfi, því að ég get engan
spurt, nema þig. Það er þannig, að ég var í partýi um
daginn og kynntist þar strák, sem ég varð hrifin af, og við
vorum saman allt kvöldið, og gerðist náttúrlega hitt og
þetta, sem ég fer ekkert að lýsa, og nú held ég, að ég sé
ólétt. Þetta var fyrir svona einum og hálfum mánuði. Og
svo kemur gamla súpan: Hvernig fara saman vatnsbera-
strákur og vatnsberastelpa? Hvað heldur þú, að ég sé
gömul? Eg get ekki talað um þetta við mömmu og pabba,
því að þá má búast við sprengingu. Hver er happalitur og
tala þess sem er í vatnsberanum?
Ein í vandræðum.
Já, það er ekki orðum aukið, að þú sért i vandræðum, ef þú ert
ófrísk eftir strák, sem þú hefur þekkt í eitt kvöld. Er Pósturinn
svona gamaldags, eða er það í tísku að „sofa hjá,” um leið og
unglingar kynnast nú til dags???? Þegar þetta svar birtist,
ættirðu nú að vera þess fullviss, hvort þú ert barnshafandi,
eða ekki, en ef þú ert enn í vafa, ættirðu að koma þér sem allra
fyrst til læknis og fá grun þinn staðfestan. Ef svo reynist, að
þú sért barnshafandi, þá verðurðu að sjálfsögðu að segja for-
eldrum þínum frá því, — og auðvitað stráknum líka.
Foreldrar eru sjaldan eins slæmir og þið unga fólkið haldið, og
þeir eru líka oft mun skilningsríkari en ykkur grunar. Þetta er
þá búið og gert, og ég trúi ekki öðru en að foreldrar þínir rétti
þér hjálparhönd. Vatnsberastelpa og vatnsberastrákur geta
orðið mjög góðir vinir, en varla neitt meira. Ég tel, að þú sért
16 ára. Þú verður að gefa mér upp fæðingardag þinn til að fá
að vita happalit og tölu.
6VIKAN 23. TBL.