Vikan


Vikan - 08.06.1978, Blaðsíða 47

Vikan - 08.06.1978, Blaðsíða 47
tók hún upp byssuna og beindi henni að honum. Hann var næstum búinn að missa glasið út úr höndunum og starði á hana með galopinn munninn. — Tengdamamma... hvað ertu að hugsa? spurði hann hás og skelfingu lostinn. — Ekkert... ekki enn að minnsta kosti, svaraði hún rólega, — fyrst þurf- um við að tala dálitið saman. Ég skal segja þér, að Nanna reyndi að fremja sjálfsmorð fyrir klukkustund. Henni mistókst, guði sé lof. Hún særði sig, en ekki alvarlega. Ef hún væri dáin núna, Ottó, værir þú morðingi. Hún sá, að stórir svitadropar spruttu fram á enni hans. Augun voru stjörf af skelfingu og störðu á hana biðjandi. Þetta var sú skelfing. sem hún ætlaði að drepa hann með. Hún átti að sprengja hann. Ofreyna veikt hjarta hans. Hann reyndi að tala. en röddin brást. Hann hvæsti orðin, sem voru næsta óskiljanleg. — Tengdamamma... þú mátt ekki... þú getur ekki drepið mig.... þér verður refsað... lögreglan... Lillí hló kaldranalega. — Refsing, endurtók hún hæðnis- lega. — heldur þú. að ég óttist hegningu. Ég hefi þegar hlotið ægilega refsingu. og það er að horfa á. hvernig kvikindi eins og þú kvelur og pinir dóttur mína. Ægi- legri refsingu getur engin móðir hlotið en horfa á barnið sitt kveljast. Það sem ég geri þér núna, eru smámunir miðað við allt. sem þú hefur á samviskunni. Þú átt aðdeyja Ottó. Skilur þú það! Deyja! Hún sá. hvernig æðarnar á hálsi hans tútnuðu út, hann varð svarblár í fram- an, og varirnar bærðust í örvæntingar- fuilri tilraun til að segja eitthvað. Hún beið þess. aðskelfingin yfirbugaði hann. Hjatað þoldi varla meira nú. Hún sá það á honum. — Ég skal reyna að hitta þig beint í hjartastað, Ottó, sagði hún hægt og ró- lega, — þó að þú hafir kvalið Nönnu miskunnarlaust. er ekki ástæða til að þú þurfir að liða meira en nauðsynlegt er. Ég er ekki haldin kvalalosta eins og þú. Hún sagði þetta til að hann einbeitti sér eingöngu að veiku hjarta sinu. Hún sá, að hann reyndi að bera höndina upp að brjóstinu. og andardráttur hans var snörlandiog þungur. — Nú tel ég upp að tiu. Ottó, sagði hún. — en þú munt ekki heyra töluna tiu. því að á sama augnabliki riður skotið af. Ég held. að þú þurfir ekki að finna neitt til. Hún byrjaði að telja. — Einn.... tveir... þrir.... fjórir... Hún hætti, þegar hún sá, að hann engdist sundur og saman og valt svo um á sófann og lá kyrr með opinn munn og uppglennt. skelfingu lostin augu. sem störðu út i loftið. Hún stóð eitt augnablik og starði á hann. Svo gekk hún til hans og tók á púlsinum. Hún fann hann ekki. Það næsta, sem hún gerði, var að hringja á lækni. Hann kom fljótt og staðfesti, að Ottó væri látinn. Siðan hringdi hún á lögregluna. sem sá um, að honum væri ekið á sjúkrahúsið til krufn- ingar, eins og lögin mæltu fyrir. Allir voru vingjarnlegir og sýndu samúð, og Lillí brosti angurværu uppgerðárbrosi. Nanna lá á einkastofu og grét, þegar móðir hennar kom inn til hennar. Lillí settist við rúmið og tók í hönd hennar. — Ég gat ekki þolað meira, mamma, sagði hún kjökrandi, — en ég gat ekki gert það... ó, hvaðég er lítilfjörleg mann- eskja. — Svona, stúlka min, sagði hún mildilega og hughreystandi, — okkur verður öllum eitthvað á. Það getur hent alla að hafa ekki vald yfir kringumstæð- um. Ég hefi oft hugleitt, að ykkur Ottó væri fyrir bestu aðskilja. — Nei, mamma. nei. nei... ég get ekki án hans verið. Ottó er mér allt. Stundum held ég, að ég sé I álögum. Mamma, það er skelfilegt. en ég elska hann. Heldur þú ekki. aðOttóelski mig jafn heitt? Nanna horfði á móður sína gegnum tárin. — Hann gerði það. stúlka mín, svaraði Lilli hægt, — það er nokkuð, sem ég neyðist til að segja þér. Þegar læknirinn hringdi og sagði mér, hvað þú hefðir gert. hafði ég upp á Ottó og sagði honum það. Hún hikaði aðeins og strauk Nönnu blíðlega yfir hárið. — Það var meira en hans sjúka hjarta þoldi, hélt hún áfram stilltum rómi. — hann brotnaði alveg saman og dó. Læknirinn gat ekki hjálpað honum. Nanna horfði á hana. og smám saman rann sannleikurinn upp fyrir henni. — Ottó er dáinn, sagði hún. og rödd- in varblæbrigðalaus. — Já. vina mín, ansaði Lillí, — við vissum. að hann var veill fyrir hjarta. Það hlaut að koma að þessu fyrr en siðar. Nanna lokaði augunum. — Ég var honum þá einhvers virði. hvislaði hún. — Já. sagði móðir hennar, — manstu. hvað pabbi sagði stundum? Nanna kinkaði kolli. — Aðeins hið glataða átt þú til eilífð- ar. hvislaði hún. — Ottó er minn núna. Engin getur tekið hann frá mér. Engin. Lilli þerraði tárin, sem runnu niður kinnar Nönnu og andvarpaði léttar. Tárin sögðu henni að hún hefði gert rétt. Það eina. sem gat gefið dóttur hennar frið og von um hamingjusamt lif. — ENDIR. í NÆSTU WIKU Kristín Bjarnadóttir leikkona Kristín Bjarnadóttir, sem leikur eitt af stærstu hlutverkunum í hinu nýja leikriti Jökuls Jakobssonar, „Sonur skóarans og dóttir bakarans." hefur nú þreytt frumraun sina í islensku leikhúsi. Hún hlaut menntun sína í Óðinsvéum i Danmörku og hefur siðan starfað i dönskum leikhúsum í fjögur ár. Auðvitað dreymdi hana alltaf um að koma heim og nota sitt eigið móðurmál á sviði, og draumurinn rættist, þegar henni var boðið hlutverk I áðurnefndu leikriti. Viðtal við Kristínu birtist í næstu Viku. Sjötugir Víkingar Víkingar hafa lengi talist til hinna stóru í íþróttaheiminum. enda byggja þeir á gömlum og traustum grunni. Margir kunnir íþróttamenn hafa slegið Ijóma á nafn félagsins, en innan vébanda þess er lika að finna marga, sem innt hafa fórn- fúst starf af höndum. án þess að hljóta frægðarorð fyrir. Fulltrúar beggja hópa áttu saman glaðan dag til að minnast sjötugsafmælis félagsins á þessu ári. og Bjamleifur Bjarnleifsson tók nokkrar myndir í því hófi, sem birtast munu i næsta blaði. George og Marta Washington í ameriskum sögubókum má lesa, að fyrstu forsetahjón Bandaríkjanna hafi i fjörutíu ár verið hamingjusamlega gift og að heimili þeirra hafi verið ameriskum fjölskyldum til fyrirmyndar. Þetta er efalaust sannleikanum sam- kvæmt, en þó eru brestir i hinni fullkomnu mynd. Washington — sem nefndun- var „faðir þjóðarinnar" — eignaðist aldrei börn. Marta átti aftur á móti tvö börn frá fyrra hjónabandi — item þrjú hundruð þræla og 100.000 dollara i gulli. Það er grein um þau í næsta blaði. VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristin Halldórsdótlir. Blaðamenn: Aðalsteinn, Ásb. Sigurðsson, Anna Kristine Magnúsdóttir, Hrafnhildur Sveinsdótlir, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn i Síðumúla 12, auglýsingar. afgreiðsla og dreifing i Þverholti 11. simi 27022. Pósthólf 533. Verð i lausasölu kr. 530. Áskriftárverð kr. 2000 pr, mánuð, kr. 6000 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 11.300 fyrir 26 blöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. gjalddagar: Nóvember, febrúar, mai. ágúst. Áskrift i Reykjavik og Kópavogi greiðist mánaðarlega. 23. TBL. VIKAN 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.