Vikan - 08.06.1978, Blaðsíða 35
AUSTURBÆJARBÍÓ HAFIMARBÍÓ
rrJeg hefi ætíð elskað i
i
big" |
Fögur og hrífandi litmynd. j
Sýnd kl. 6 og 9. j
Hótel (asablanca j
Gamanmynd meS S
MAItX-hræðrum. !
Sýnd kl. 4. !
Sími 1384.
2
»—*• «.—^—■»—»■—«.—•»—•«—4
Fyrsta auglýsing Austurbœjarfoíós.
með pompi og pragt, en ásamt
Austurbœjarbíói fékk Trípolí-
bíó þrívíddarmyndir til sýninga.
Var kapphlaup á milli bíóanna
tveggja um þessa nýju tækni,
en svo fór, að þau urðu jafn-
fljót og sýndu fyrstu þrívíddar-
myndirnar sama kvöldið. í
A usturbæjarbíói var sýnd
myndin Vaxmyndasafnið. Bíó-
gestir urðu að nota sérstök
gleraugu, sem gerð voru fyrir
þrívíddarsýningar. Þessi nýung
var þó skammlíf og aðeins
sýndar tvær aðrar myndir af
þessari gerð í Austurbæjarbíói.
Austurbæjarbíó varð strax
vinsælt til hljómleikahalds og
hefur ætíð verið. Tónlistarfélag
Reykjavíkur hefur t.d. verið
nær eingöngu með tónleika
sína þar og fjölmargt listafólk
hefur komið þar við. Síðasta
áratug hefur Leikfélag Reykja-
víkur einnig starfað í húsinu.
Fyrst Húsbyggingasjóður leik-
félagsins, en síðar hefur hluti af
rekstri leikhússins færst þangað.
Sifurtunglið, skemmtistaður
með opinbera dansleiki, starfaði
í húsnæði bíósins í tuttugu ár
samfleytt. Árið 1975 tók bíóið
það húspláss til eigin nota og
innréttaði þar veislusalinn
Snorrabæ, sem þykir ákaflega
vistlegur og hentugur fyrir
einkasamkvæmi.
Haustið 1977 voru gerðar
breytingar á anddyri hússins.
Var það stækkað um þriðjung
og er sú breyting mjög til batn-
aðar.
'Roy Rogers er einn frægasti kúreki
allra tima. Austurbæjarbió hefur
sýnt fjölmargar myndir með honum
og var þá oft mikill hasar við bíóiö.
■sýningar
uröufljótt
vinsœlar
StoJ'nancli: HaJ'narbió h.J'.
Opnaö: 2b. des. 1948.
Eigandi: Jón Ra)>narsson.
Fjöldi sœta: 313.
Tœkjabúnaöur: De Vray sýninf’avétar.
Erl. vidskiptaj'yrirtœki: American Inter-
national Pictures. Brul Production of>
Jjöldi smáj'yrirtœkja.
Vinsælustu myndir: Táknmál ástarinn
ar. ..Litlle Big Man" og Chaplin-mynd-
ir.
Fjöldi mynda árlega: U.þ.b. 30.
Fjöldi starfsfólks: 14.
Á annart jóladag 1948 tók til
starfa nýtt bió í Reykjavík, hið
sjötta í röðinni, og nefndist það
Hafnarbió. Til sýninga var
fenginn skáli á horni Skúlagötu
og Barónsstígs. Skálinn var lag-
færður til muna og sett í hann
468 sæti. Helmingur þeirra var
nýr, en hin fengin úr Eyjabíói I
Vestmannaeyjum, sem þá hafði
nýlega hætt starfsemi. Sýninga-
vélar voru einnig keyptar frá
Eyjabíoi. Vour þær aðeinsfjög-
urra ára gamlar og tiltölulega
lítið notaðar. Bíóiö þótti vist-
legt og hljómur þar góður.
Hlutafélagið Hafnarbíó stóö
fyrir rekstrinum, en í stjórn
þess voru til að byrja með:
Stefán A. Pálsson, sem var
framkvæmdastjóri, Guðmund-
ur Halldórsson, verslunarstjóri
og Lúðvík Þorgeirsson, kaup-
maður. Fyrsti sýningarstjóri
var Óskar Steinþósson og gegn-
ir hann því starfi ennþá.
Fyrst voru eingöngu sýndar
enskar mvndir í Hafnarbíói, en
fljótlega komu þangað líka
myndir frá Danmörku. Að-
sóknin var ákaflega misjöfn, en
jókst gfurlega þegar amerískar
myndir urðu vinsælar.
Jón Ragnarsson keypti Hafn-
arbíó af h/utafélaginu I. júlí
1968. Lét hann breyta húsa-
kynnum þess talsvert, m.a.
klæða salinn að innan og lag-
færa forstofuna. Einnig lagði
hann talsvert á sig við að ná
betri samböndum við dreifing-
arfyrirtæki erlendis. Sýningar-
tíma var breytt fljótlega eftir
það og daglegum sýningum
fjölgað úr þremur í fimm. Urðu
kvöldsýningar kl. 11 fljótt
mjög vinsœlar og eru enn. I
Hafnarbíói var á sínum tima
sýnd ein umdeildasta mynd,
sem sýnd hefur verið hérlendis.
Það var Táknmál ástarinnar,
en um hana var rifist í blöðum
I tvo mánuði. Hafnarbíó hefur
á undanförnum árum sýnt
flestar af lengri mvndum Charl-
es Chaplin, enda eru þær eitt
af aðalsmerkjum kvikmynda-
hússins. Systurfyrirtæki Hafn-
arbíós er Regnboginn, sem sagt
verður frá síðar.
(Næst: Stjörnubíó og Laugar-
ásbíó).
Á.Á.S.
KLIPPIÐ!!
23. TBL. VIKAN 35