Vikan - 08.06.1978, Síða 7
ykkar, þá efa ég ekki, að þið
verðið fljótar að ná í þessa vini,
og þeir mega þá vera stoltir af að
geta sýnt sig með ykkur! Skriftin
er semsagt alveg EINSTAK-
LEGA falleg, reyndar sú besta,
sem Pósturinn hefur séð í lengri
tíma.
Hvað skal gera?
Elsku Póstur.
Þetta er í fyrsta skipti. sem
ég skrifa þér. en þad er þannig.
að ég er búin að i era með
strák í þrjár vikur, og ég er allt-
af að frétta frá vinkonum mín-
um. að hann noti aðrar stelpur.
þegar ég er ekki með honum.
Á ég að segja honum upp? Nú
er hann að fara I sveitina. og
hann hefur spurt mig. hvort
hann megi fara upp á mig. en
ég er ekki komin á þann aldur
aö hleypa strákum upp á mig.
Svo er það. að pabbi vill ráða
með hvaða stelpum ég er. og ef
horium líkar illa við stelpuna.
þá segir hann. aö ég megi ekki
vera með henni. Finnst þér
þetla rétt? Hvernig passa sam-
an fiskastelpa og vatnsbera-
strákur og bogmannsstelpa og
vaínsberastrákur? Og aö lok-
um: Hvernig er skriftin og staf
setningin, og hvað heldurðu. að
ég sé gömul?
Ein, sem verður að fá svar
strax.
Ef þetta er rétt hjá vinkonum
þínuni, þá segirðu piltinum auð-
vitað strax upp og leyfir honum
að sigla sinn sjó. Og að sjálf-
sögðu áttu ekki að fara að sofa
hjá honum, þar sem þú ert varla
meira en 13 ára. Ef fiskastelpan
skilur þörf vatnsberastráksins
fyrir eitthvað nýtt og framandi,
ætti hún að geta náð í hann,
annars ekki. Bogmannsstelpa og
vatnsberastrákur eiga mjög vel
saman, þau hafa bæði mikið
hugarflug, og hann skilur hana.
Skriftin þín er í meðallagi góð,
en stafsetningin mætti batna.
Svo finnst mér pabba þínum
ekki koma við með hvaða stelp-
um þú ert, svo framarlega sem
það eru engar óreglustúlkur. Þú
hlýtur að geta dæmt um það
sjálf, hvort þú eigir eitthvað
sameiginlegt með þeim.
Hvar fá þau barn
frá Kóreu?
Kceri Póstur!
Ég hef ekki skrifað þér áður.
Ég heiti Þórunn. Mig langar lil
að spyrja þig að þessu. Hvaða
merki á best við hrútsstelpu, og
nefndu allt happa fvrir mig. Ég
erfædd 27.3. (Vinsamlegast
birtið bréfiðj Jæja. nú er best
að koma sér að verkinu.
Mamma mín og pabbi skildu.
þegar ég var tveggja ára. og ég
er hjá mömmu. Pabbi giftist
ófrjórri konu. Hann er það
reyndar líka. Geturðu sagt mér.
hvernig þau geta fengið barn
frá Kóreu? Ég væri mjög þakk-
lát, ef þú svaraðir mér. Segðu
mér, hvernig stafsetningin er.
Ég veit vel, að ég skrifa ekki
vel.
Þórunn.
Ljónsmerkið á best við hrúts-
stelpuna, en einnig getur meyj-
armerkið átt vel við hana.
Happatala þín er 9, happalitur
er rauður og happadagur er
þriðjudagur. Ég gat nú ekki stillt
mig um að skella upp úr. þegar
ég las siðari hluta bréfs þíns. Er
pabbi þinn semsagt líka ófrjó
kona? Ekki var hann nú ófrjór,
fyrst hann gat átt þig!! En ef
pabbi þinn og konan hans hafa
áhuga á að fá ættleitt barn frá
Kóreu, er best fyrir þau að snúa
sér til Hjálparstofnunar kirkj-
unnar og tala þar við Guðmund
Einarsson. Hann veitir þeim all-
ar upplýsingar, sem á þarf að
halda, eins og t.d. hvaða vottorð
þarf og annað slíkt. Stafsetning-
in hjá þér er alveg HRÆÐI-
LEG, ég hef aldrei séð svona illa
'skrifað og sóðalegt bréf, og ég
trúi ekki, að þú sért orðin eins
gömul og þú segist vera í bréfinu.
LEIÐRÉTTING
í Getraunaþættinum 1x2 í 20.
tölublaði misritaðist föðurnafn.
Rétt er setningin svona: Hann
heitir Erlingur Vigfússon og er
kunnur sem 1. Söngvari X
Tónskáld 2 Ljóðskáld.
Lesendur eru beðnir vel-
virðingar á þessu.
Enn ein
leiðrétting vegna
Þokkabótar-
plötuí!
Jæja, þá er Pósturinn tvíveg-
is búinn að Iáta hafa eftir sér
vitleysu, hvað varðar fyrstu
plötu þeirra Þokkabótarfélaga!
Fyrir nákvæmlega tveimur
mínútum birtist Ómar Valdi-
marsson blm., við hlið Póstsins
með eftirfarandi bréf: „Fyrsta
plata Þokkabótar hét ekki Upp-
gjörið, heldur UPPHAFIÐ.
Platan var vissulega gefin út á
merki Hljómaútgáfunnar. en af
kompaníinu ORG, sem saman-
stóð af þeirn Ólafi Þórðarsyni
(Ríó), Rúnari Júlíussyni og
Gunnari Þórðarsyni.”
Að sjálfsögðu hafði Ómar
ýmislegt um heimsku Póstsins
að segja, en það mun ekki
verða birt hér á prenti!! Þar
sem Pósturinn hefur hingað til
ekki staðið Ómar að óheilind-
um, rnun hann taka þetta bréf
sem lokasvar um fyrstu plötu
Þokkabótar...!
Pcnnavinir
Joe Lachat Jr., 1215 So. Wisconsin
Racine, Wi. 53403, U.S.A., óskar eftir
aö skrifast á við íslenskar konur á öllum
aldri: Hann er Ijóshærður, bláeygður,
ógiftur, — en hefur áhuga á hjónabandi!
Guðrún María Guðmundsdóttir,
Hvassaleiti 16, 108 Reykjavik, óskar
eftir aðeignast pennavini.
Ása Birna Viðarsdóttir, Jaðri,
Reykjadal, Laugum, S-Þingeyjarsýslu,
óskar eftir pennavinum á aldrinum 8-10
ára. Áhugamál eru margvisleg.
Mrs. Avril Stevens, 12 Rothesay Road,
Newport, Gwent NPT 8NZ , South
Wales, U.K., óskar eftir pennavinum
á íslandi. Hún er 36 ára.
Mrs. Pauline Busuttil, 43, Flat 6, Strait
Street, Valletta, Malta, óskar eftir
pennavinum á íslandi. Hún er 29 ára.
23. TBL.VIKAN7