Vikan - 08.06.1978, Síða 18
„Þið læknarnir eruð með höfuðið grafið í
sandinn, er það ekki?” sagði Norah. „Teri
Washburn var flækt í eitt feitasta hneykslis-
málið, sem hefur orðið í Hollywood. Hún drap
kærastann sinn.”
„Ég gerði bara eins og mér var sagt."
„Sagði einhver þér að drepa herra
Champion?"
„Hann sagði mér að gera það.”
„Hann?"
„Guð."
„Af hverju sagði Guð þér að drepa
hann?"
„Af þvi að Champion er illur maður.
Hann er leikari. Ég sá hann á sviði.
Hann kyssti konu. Leikkonu. Fyrir
framan alla áhorfendur. Hann kyssti
hana og . . .”
Þögn.
„Haltu áfram."
„Hann snerti — brjóstið á henni."
„Kom það þér i uppnám?”
„Auðvitað kom það mér i uppnám!
Mikið uppnám. Skilurðu ekki, hvað það
þýðir? Hann þekkti hana kynferðislega.
Þegar ég kom út úr þessu leikhúsi, þá
leið mér eins og ég væri kominn frá
Sódómu og Gómorra. Það þurfti að
refsa þeim."
„Svo þú ákvaðst að drepa hann.”
„Ég ákvað það ekki. Guð ákvað það.
Ég framfylgdi aðeins skipunum hans."
„TalarGuðoft við þig?”
„Ekki nema þegar það þarf að vinna
Hans verk. Hann hefur valið mig sem
verkfæri sitt, því ég er hreinn. Veistu af
hverju ég er hreinn? Veistu hvað það er,
sem hreinsar best i heiminum? Að drepa
hina illu!"
Alexander Fallon. Þrjátiu og fimm
ára. aðstoðarmaður hjá bakara hluta úr
ÞAÐ, SEM ÁÐUR ER KOMIÐ:
Dr. Judd Stevens er einn þekktasti
geðlxknir Bandarikjanna. Einn
sjúklinga hans, íklxddur gulum regn-
frakka Judds sjálfs, er stunginn hnífi i
hakið. Sama dag er hrotist inn á
skrifstofu Judds og móttökustúlkan
hans drepin á hinn hrxðilegast hátt.
Nxsta dag er ekið á Judd, hann
slasast, en er brátt kominn til starfa á
ný. Enn verður hann fyrir áreitni, sem
hann sjálfur telur morðtilraun.
McGreavy rannsóknarlögreglumaður
grunar Judd um að eiga þátt i þessu
sjálfur, cn starfsbróðir hans, Angeli,
sýnir honum vinsemd. Judd cr sjálfur
farinn að efast unt gcðhcilsu sína og
ákveður að leita aðstoðar leynilögreglu-
manns.
Moody leynilögreglumaður leggur
gildru fyrir ofsxkjendur Judds, og
þeir ganga í hana, en sleppa, án þess
að þekkjast. Judd rcynir að fá
einhverja hugmynd um, hverja við er að
eiga, með því að hlusta á segulbands-
upptökur af viðtölum við sjúklinga sína.
18VIKAN 23. TBL.
degi. Hann var settur á geðsjúkrahús i
hálft ár, og síðan var honum sleppt.
Gæti Guð hafa sagt honum að eyða
Hanson, sem var kynvilltur, og Carol,
sem var fyrrverandi vændiskona, og
Judd, velgjörðamanni þeirra? Judd
fannst það ólíklegt. Hugsanagangur
Fallons einkenndist af snöggum, kvala-
fullum kippum. Sá, sem hafði skipulagt
morðin, hugsaði mjögskipulega.
Hann lék fleiri segulbönd frá geðdeild-
inni. en engin féllu inn i það mynstur,
sem hann var að leita að. Nei. Það var
enginn sjúklinganna á geðdeildinni.
Hann leit aftur yfir skýrslumar á
skrifstofunni, og rak augun i nafn.
Hann setti bandið á.
SkeetGibson.
„Halló, dokksadokk. Hvernig líst þér
á þennan dá-sam-lega dag, sem ég byrl-
aði þér?”
„Þúerthressídag."
„Ef mér liði öllu betur, þá myndu þeir
læsa mig inni. Sástu þáttinn minn i
gær?"
„Nei. Þvi miður gat ég ekki séð
hann.”
„Ég var alveg frábær. Jack Gould
kallaði mig „yndislegasta grinista i
heimi". Og hver er ég. að andmæla sénii
eins og Jack Gould? Þú hefðir átt að
heyra i áhorfendunum! Þeir klöppuðu
eins og það væri að fara úr tísku. Veistu
hvað þaðsannar?”
„Að þeir kunni að lesa á „Klappa”
kortin?"
„Þú ert snjall. helvitið á þér. Það
finnst mér fint — hausalæknir með
húmor. Sá siðasti sem ég var hjá var aga-
legur. Var með risaskegg, sem fór fer-
lega í mig."
Hávær hlátur.
„Náði þér núna, ha, gamli hefur? Nei.
í alvöru talað, góðir gestir, þá er ein
ástæðan fyrir því, að mér liður svona vel
sú, að ég er nýbúinn að lofa milljón doll-
urum — teldu þá: Ein milljón dollara —
til að hjálpa krökkunum i Biafra."
„Það er ekki að furða, að þér líði vel.”
„Það geturðu hengt þig uppá. Sú saga
kemst á forsiður allrar heimspressunn-
ar.”
„Skiptirþaðmáli?”
„Hvað meinarðu „Skiptir það máli”?
Hvað margir naggar lofa svo miklu? Þú
verður að þeyta eigin lúður, Pétur Pan.
Ég er feginn þvi, að ég hef efni á að lofa
peningunum."
„Þú segir alltaf „lofa". Áttu við
„gefa”?"
„Lofa — gefa — hver er munurinn?
Þú lofar milljón — gefur nokkur hundr-
uð þúsund — og þeir sleikja á þér rass-
inn ... Sagði ég þér, að það er brúð-
kaupsdagurinn minn í dag?"
„Nei. Til hamingju."
„Takk. Fimmtán fin ár. Þú hefur aldr-
ei hitt Sally. Það er besta pían, sem
nokkru sinni hefur gengið á Guðs
grænni jörðinni. Ég er sannarlega hepp-
inn i hjónabandinu. Þú veist, hvað þetta
tengdapakk getur verið erfitt? Jæja,
Sally á tvo bræður, Ben og Charley. Ég
hef sagt þér frá þeim. Ben skrifar stærsta
hluta efnis fyrir þáttinn minn, og Charl-
ey er framleiðandinn. Þeir eru séni. Ég
er búinn að vera á skerminum t sjö ár
núna, og aldrei fyrir neðan topp tiu i
Nielsens. Ég var snjall að giftast inn i
svona fjölskyldu, ha? Flestar konur
verða feitar og subbulegar, þegar þær
eru búnar að húkka sér kall. En Sally,
þessi elska, er grenni núna en hún var á
brúðkaupsdaginn. Hvilik kona! . . . Áttu
sigarettu?"
„Gjörðu svo vel. Ég hélt, að þú værir
hættur að reykja."
„Ég ætlaði bara að sanna það fyrir
sjálfum mér, að ég hefði gamla góða
viljastyrkinn, svo ég hætti. Nú reyki ég
vegna þess, að mig langar til þess ... Ég
gerði nýjan samning við sjónvarpsfélag-
ið í gær. Ég fór svakalega með þá. Er
timinn minn búinn?”
„Nei. Ertu eirðarlaus, Skeet?"
„Svo ég segi þér alveg satt, elskan, þá
er ég i svo finu formi, að ég veit ekki.
hvers vegna ég er að koma hingað.”
„Engin vandamál?”
„Hjá mér? Heimurinn er ostran min
og ég er Diamond Jim Brady. Ég verð að
segja það um þig, að þú hefur sannar-
lega hjálpað mér. Þú ert minn maður.
Með öðrum eins gróða og þú hefur, þá
ætti ég kannski að byrja í bisniss og setja
upp mina eigin stofu. ha?.. . Það minnir
mig á fina sögu af náunga, sem fór til
heilaklóru, en hann var svo taugaóstyrk-
ur, að hann lagðist bara á bekkinn og
sagði ekkert. Þegar timinn var búinn.
sagði dokksinn: „Þetta verða fimmtiu
doílarar." Nú, svona hélt þetta áfram i
tvö ár, og tappinn segir aldrei neitt. Loks
opnar sá stutti munninn einn góðan veð-
urdag, og segir: „Læknir, má ég spyrja
þig að einu?" „Auðvitað," segir dokks-
inn. Og þá segir minn maður: „Hvað
segirðu um að fá félaga i fyrirtækið?”
Hávær hlátur.
„Áttu asperin eða eitthvað?”
„Auðvitað. Er þetta eitt af slæmu höf-
uðverkjaköstunum þinum?"
„Ekkert, sem ég ræð ekki við, gamli
vinur. . . Takk. Þetta verður fínt.”
„Af hverju heldurðu að þú fáir höfuð-
verk."
„Bara venjuleg sjó-bisniss streita .. .
Það á að lesa yfir handrit seinna i dag.”
„Gerir það þig óstyrkan á taugum?”
„Mig? Nei, andskotinn hafi það! Af
hverju ætti ég að verða taugaveiklaður?
Ef brandararnir eru slappir, þá gretti
ég mig og blikka áhorfendur og þeir éta
þá hráa. Alveg sama hvað þátturinn er
slappur — Skeet gamli kemur frá honum
angandi eins og rós.”
„Hvers vegna heldurðu, að þú fáir
þessi höfuðverkjaköst vikulega?”
„Hvernig i andskotanum á ég að vita
það? Þú ert læknirinn. Þú átl að segja
mérþad. Jesús Kristur, ef asni eins og þú
getur ekki læknað smávegis höfuðverk,
þá áettu þeir ekki að leyfa þér að ganga
lausum og skipta þér af lífi annarra.
Hvar fékkstu læknaleyfið? Úr dýra-
áng
læknaskóla? Ég myndi ekki treysta þér
fyrir helvitis köttunum mínum! Þú ert
djöfuls skottulæknjr! Eina ástæðan fyrir
þvi að ég fór að ganga til þin var sú, að
Sally sparkaði mér til þess. Það var eina
leiðin til að losna við helvitis nöldrið i
henni. Veistu hver er mín skilgreining á
Helvíti? Að vera giftur Ijótri, horaðri
nöldurskjóðu i fimmtán ár. Ef þú ert að
leita að fleiri fiflum til að svindla á, þá
Framhaldssaga
eftir
Sidney Sheldon:
Andlit