Vikan - 08.06.1978, Page 20
..Anthony er mjög myndarlegur."
Judd fann til stings af ósanngjarnri.
ófagmannlegri afbrýðisemi.
„Eigið .þið vel saman líkamlega?"
Þetta var eins og tunga að ýta við
skemmdri tönn.
„Já."
Hann vissi. hvernig liún væri i rúmi:
Æsandi. kvenleg og gefandi. Guö. hugs-
aði hann. haliuþérfrá þessu efni.
„Langar þig til aðeignast börn?"
„Ó.já." -
„En manninn þinn'1"
„Já. auðvitað."
Löng þögn. nenia hvað skrjáfaði i seg-
ulbandinu. Siðan:
„Frú Blake. þú komst til min vegna
þess að þú sagðist eiga við mikinn vanda
að siriða. Það snertir manninn þinn. er
ekki svo?"
Þögn.
„Jæja. ég reikna með þvi að það geri
það. Af því. sem þú hefur sagt mér áður.
má ráða að þið elskið hvort annað. þið
séuð bæði trú, þið viljið bæði eignast
börn, þið búið í fallegu heimili. maður
inn þinn sé myndarlegur. gangi vel og
dekri við þig. Og þið hafið aðeins verið
gift i hálft ár. Ég er hræddur um. að
þetta sé svolitið líkt gamla brandaran-
um: „Hvaðeraðmér, læknir?"
Aftur varð þögn, nema hvað enn
heyrðist ópersónulegt hljóð segulbands-
ins. Loks talaði hún. „Það er . . . það er
erfitt fyrir mig að tala um það. Ég hélt.
að ég gæti rætt það við ókunnugan
mann. en" — hann mundi greinilega
hvernig hún sneri sér við á legubekknum
til að horfa á hann stórum óræðum aug-
um sinum — „það er erfiðara. Sjáðu til"
— nú talaði hún hraðar og reyndi að
sigrast á múrunum. sem valdið höfðu
þögn hennar — „ég heyrði svolitið og ég
— ég gæti auðveldlega hafa dregið rang-
arályktanir.”
„Eitthvað, sem viðkemur einkalifi
mannsins þins? Einhver kona?"
„Nei.”
Viðskipti hans?"
„Já..."
„Hélstu, að hann hafi logið ein-
hverju? Reynt að hafa af einhverjum i
viðskiptum?"
„Eitthvað I þá áttina."
Judd hafði fastara land undir fótum.
„Og trausti þínu á honum var misboðið.
Þú sást þá hlið á honum. sem þú hafðir
aldreiséðáður."
,,Ég — ég get ekki rætt þetta. Mér
finnst ég meira að segja vera að svikja
hann bara með þvi að vera hér stödd.
Vertu svo vænn að spyrja mig ekki
meira i dag. dr. Stevens."
Og þannig lauk þeim viðtalstíma.
Judd slökkti á bandinu.
Þannig að maður Anne var hákarl I
viðskiptum. Hann hefði getað svikið
undan skatti. Eða neytt einhvern til
gjaldþrota. Að sjálfsögðu kæmi það
Anne úr jafnvægi. Hún var tilfinninga-
næm kona. Trú hennar á manni sinum
myndi riða til falls.
Hann hugleiddi mann Anne sem
hugsanlega grunaðan. Hann var i bygg-
ingaiðnaðinum. Judd hafði aldrei hitt
hann. en hvaða viðskiptum. sem hann
hafði átt i. þá gat ekkert hugarflug tengl
þau við John Hanson. Carol Roberts,
eða Judd.
Hvað með Anne sjálfa? Gat hún verið
siðblind? Haldin morðæði? Judd hallaði
sér aftur á bak i stólnum, og reyndi að
hugsa hlutlægt um hana.
Hann vissi ekkert um hana. nema
það. sem hún hafði sjálf sagt honum.
Baksvið hennar gat verið uppspuni einn.
hún hefði getað búið það allt til, en hvað
hafði hún að vinna? Ef þetta var einhver
glæsileg hlif til að leyna morði, þá hlaut
eitthvað að liggja á bakvið. Minningin
um andlit hennar og rödd fyllti huga
hans, og hann vissi, að hún gat ekki átt
þátt í neinu af þessu. Hann myndi leggja
líf sitt að veði fyrir þvi. Kaldhæðni þessa
orðalagskom honum til aðbrosa.
Hann fór til að ná i spólurnar með
Teri Washburn. Ef til vill leyndist eitt-
hvað þar, sem hafði farið fram hjá hon-
um.
Teri hafði fengið aukatima að eigin
ósk upp á siðkastið. Hvíldi eitthvað nýtt
á huga hennar, sem hún hafði enn ekki
sagt honum frá? Vegna stöðugrar kyn-
ferðishugsana hennar var erfitt að meta
rétt þá þróun, sem hjá henni var núna.
En — hvers vegna hafði hún skyndilega
og ákaft beðið um fleiri tima hjá hon-
um?
Judd tók eitt bandið hennar af handa-
hófi ogsetti þaðá.
„Við skulum tala um hjónabönd þín,
Teri. Þú hefur veriðgift fimm sinnum.”
„Sex sinnum, en hver er svosem að
telja?”
„Varstu mönnum þínum trú?"
Hlátur.
„Þú ert að gera gys að mér. Það er
enginn sá maður til í heiminum, sem get-
ur fullnægt mér. Þetta er líkamlegt.”
„Hvað áttu við með „likamlegt"?"
„Ég meina, þannig er ég gerð. Ég hef
bara heitt gat, og það þarf alltaf að vera
fullt."
„Trúirðu því?”
„Að það verði alltaf að vera fullt?"
„Að þú sért likamlega frábrugðin öðr-
um konum?"
„Auðvitað. Læknirinn i kvikmynda-
verinu sagði mér það. Þetta er eitthvað i
sambandi við einhverja kirtla eða eitt-
hvað.” Stutt þögn. „Hann var ómögu-
legur I rúminu."
„Ég er búin að skoða öll kortin þín.
Liffræðilega séð er líkami þinn á allan
hátt eðlilegur."
„Fróaðu þér á kortunum, Kalli. Af
hverju reynirðu ekki sjálfur?”
„Hefurðu einhvern timann verið ást-
fangin, Teri?”
„Ég gæti verið ástfangin af þér.”
Þögn.
„Losaðu þig við þennan svip. Ég get
ekki að þessu gert. Ég sagði þér það. Ég
er svona gerð. Ég er alltaf soltin."
„Ég trúi þér. En það er ekki líkami
þinn. sem er soltinn. Þaðeru tilfinningar
þinar."
„Ég hef aldrei lent i tilfinningaiegum
samförum. Viltu reyna?"
„Nei.”
„Hvað viltu þá?"
„Hjálpa þér."
„Hvers vegna kemurðu ekki hérna og
sest hjá mér?"
„Þetta nægir í dag.”
Judd slökkti á segulbandinu. Hann
minntist samræðna, sem þau höfðu átt,
þegar Teri var að tala um stjörnuframa
sinn og hann spurði hana hvers vegna
hún hafi farið frá Hoilywood.
Ég lamdi einhvern klámkjaft i fylliri-
ispartýi," svaraði hún. „Það kom í Ijós,
að hann var stórt númer. Hann lét
henda mér beinustu leið út úr Holly-
wood á pólska rassgatið mitt."
Judd hafði ekki spurt neins frekar, þvi
þá hafði hann meiri áhuga á heimili
hennar, og málið hafði aldrei verið rætt
aftur. Nú fann hann til nokkurra efa-
semda. Hann hefði átt að kynna sér
þetta nánar. Hann hafði aldrei haft
neinn áhuga á Hollywood annan en
þann, sem Dr. Louis Leakey eða Marga-
ret Mead hefðu getað haft fyrir ibúum
Patagóníu. Hver skyldi vita eitthvað um
glansstjörnuna Teri Washburn?
Norah Hadley var vitlaus i kvikmynd-
ir. Judd hafði séð safn af kvikmynda-
timaritum á heimili þeirra, og strítt Pet-
er á þeim. Norah eyddi því, sem eftir var
kvöldsins í að verja Hollywood. Hann
tók upp simtólið og hringdi.
Norah svaraði í símann.
„Halló,” sagði Judd.
„Judd!” rödd hennar var hlýleg og
SIMCA U00 er einn duglegasti litli fímm manna
fólksbíllinn á iandinu, sem eyðir 7,56 1. á 100 km.
SIMCA 1100 kemst vegi sem vegleysur, enda
framhjóladrifmn bíll, búinn öryggispönnum
undir vél, gírkassa og benzíngeymi og er u.þ.b. 21 cm.
undir lægsta punkt.
Þetta er bíllinn sem þú ert að leita að, ekki satt?
Hafíð samband við okkur strax í dag.
CHRYSLER
SIMCAUOO 7£&K!
ðlfökull hf.
Ármúla 36 - 84366
Sölumenn Chrysler-sal 83330/83454.
20VIKAN 23. TBL.