Vikan - 08.06.1978, Side 21
ANDLIT
ÁN GRÍMU
vingjarnleg. ,,Þú hefur hringt til að segja
mér. hvenær þú komir i mat."
„Bráðum."
„Það er lika eins gott fyrir þigsagði
hún. Ég lofaði Ingrid því. Hún er bráð-
falleg.”
Judd trúði þvi vei. En ekki á sama
hátt og Anne var falleg.
„Ef þú svikst um að mæta á næsta
stefuumót við hana lendum við i stríði
við Svía."
„Það kemur ekki aftur fyrir."
„Ertu búinn að ná þér eftir slysið?”
„Ó.já.”
„Mikið var þaðagalegt."
Rödd Norah var hikandi. „Judd . . .
Það er þetta með jóladag. Okkur Peter
langar til að biðja þig um að eyða hon-
um meðokkur. Gerðu það."
Hann fann aftur fyrir gamalkunnum
herpingnum i brjóstinu. Þetta kom fyrir
á hverju ári. Peter og Norah voru bestu
vinir hans. og þeim fannst hræðilegt að
hann skyldi eyða öllum jólum einn á
gangi meðal ókunnugs fólks. önnum kaf-
inn við að reyna að týna sjálfum sér i
framandi hópum. Að hann skyldi neyða
likama sinn til að hreyfa sig. þar til hann
var orðinn of uppgefinn til að geta hugs-
að. Það var eins og hann væri að halda
hátíðlega einhverja svarta messu hinna
látnu — eins og hann leyfði sorg sinni að
taka völdin, og tæta sig i sundur, rifa í
sig og reka sig til fornrar helgisiðaat-
hafnar, sem hann hafði.enga stjórn á.
Þú ýkir. hugsaði hann þreytulega með
sjálfum sér.
„Judd. . .”
Hann ræskti sig. „Mér þykir það leitt,
Norah." Hann vissi að henni stóð langt
frá þvi á sama. „Kannski næstu jól.”
Hún reyndi að láta vonbrigðin ekki
heyrast i rödd sinni.
„Allt i lagi. Ég segi Pete það þá."
„Þakka þér fyrir." Hann mundi
skyndilega hvers vegna hann hefði
hringt. „Norah — veistu hver Teri
Washburn er?"
„Sú Teri Washburn? Stjarnan? Hvers
vegna spyrðu?"
„Ég — ég sá hana hana á Madison
Avenue i morgun."
„Hana sjálfa? 1 alvöru?" Hún minnti
á ákafan krakka. „Hvernig leit hún út?
Gömul? Ung? Mögur? Feit?"
„Hún leit vel út. Hún var stór stjarna,
varþaðekki?"
„Síór? Teri Washburn var sú stærsia
— og það á allan hátt, ef þú skilur hvað
égá við."
„Hvers vegna fór svona stúlka frá
Hollywood?"
„Hún fór ekki beinlinis. Henni var
sparkað út."
Þannig að Teri hafði sagt honum
sannleikann. Judd leið betur.
„Þið læknarnir eruð með höfuðið
grafið i sandinn. er þaðekki? Teri Wash-
burn var flækt i eitt feitasta hneykslis-
málið. sem hefur orðið i Hollywood."
„Jæja?" sagði J udd. „H vað gerðist?”
„Hún drap kærastann sinn."
TÓLFTI KAFLI.
Það var aftur farið að snjóa. Umferð-
arhljóðin bárust upp fimmtán hæðir frá
götunni fyrir neðan. hálfkæfð af hvitum
bómullarhnoðrum. sem dönsuðu í nöpr-
um vindinum. Hann sá ógreinilegt and-
lit einkaritara i glugga á uppljómaðri
skrifstofu handan götunnar.
„Norah — ertu viss?"
„Þegar Holly wodd berst i tal. þá er ég
gangandi alfræðiorðabók, elskan. Teri
bjó með yfirmanni Continental Studios.
en hélt við aðstoðarleikstjóra. Hún kom
að honum eina nóttina þar sem hann var
að halda framhjá henni. og stakk hann
til bana með hnif. Yfirmaður kvik-
myndaversins kippti í alla spotta og mút-
aði fjöldanum öllum af fólki og allt var
þaggað niður og kallað slys. Eitt skilyrð-
ið var að hún færi frá Hollywood og
kæmi aldrei aftur. Og það hefur hún
ekki gert."
Judd starði stjarfur á simann.
„Judd.ertu þarna?"
„Éger hérna."
„Það er skritið i þér hljóðið."
„Hvar fréttirðu þetta?"
„Frétti það? Þetta var i öllum dag-
blöðum og kvikmyndatimaritum. Það
vissu þetta allir.”
Nema hann. „Þakka þér fyrir, Nor-
ah. sagði hann. „Skilaði kveðju til Pet-
ers." Hann lagðiá.
Svo þetta var „atvikið”. Teri Wash-
burn hafði drepið mann, og aldrei
minnst á það við hann. Og ef hún hefði
drepiðeinusinni. . .
Hann tók minnisbókina sina hugsi, og
skrifaði „Teri Washburn".
Siminn hringdi. Judd tók upp tólið.
„Dr. Stevens. . .”
„Bara að athuga hvort ekki væri allt í
lagi hjá þér." Þetta var Angeli. Rödd
hans varenn hásaf kvefi.
Judd fann til sterkrar þakklætiskennd-
ar. Það stóð einhver með honum.
„Eitthvaðað frétta?"
Judd hikaði. Hann sá engan tilgang
með því, að þegja yfir sprengjunni.
„Þeir reyndu aftur." Judd sagði Ang-
eli frá Moody og sprengjunni, sem hafði
verið komið fyrir í bilnum hans. „Þetta
ætti að sannfæra McGreavy,” lauk
hann máli sínu.
„Hvar er sprengjan?" Rödd Angeli
varæst.
Judd hikaði. „Það er búið að gera
hana óvirka."
„Er búið að hverjuT spurði Angeli
vantrúaður. „Hver gerði það?"
Smmferð78§éL
MALWRCA
HELIOS NYJAR
OG GLÆSILEGAR ÍBJJÐIR
Dagflug á sunnudögum. Eftirsóttasta paradís
Evrópu. Sjórinn, sólskiniö og skemmtanalífið eins
og fólk vill hafa þaö. Tvær Sunnuskrifstofur og
hópur af íslensku starfsfólki, barnagæsla og leikskóli.
Bestu og eftirsóttustu hótel og íbúðir, sem hægt er
að fá, svo sem: Royal Magaluf, Royal Torrenova,
Portonova, Antillas, Barbados, Guadalupe, Helios
hótel og íbúðir, og Hótel 33 fyrir unga fólkið
(Klúbb 32) Farið verður: 3. og 21. maí 1.-11.-18. júní -
2.-9.-23. 30. júlí 6.-13.-20.-27. ágúst 3.-10.-17.-24. sept.
1.-8.-15. okt.
Einnig Sunnuflug til:
COSTA DEL SOL dagflug á föstudögum
COSTA BRAVA dagflug á sunnudögum
ÍTALÍA dagflug á þriöjudögum
KANARÍEYJAR dagflug á fimmtudögum
PORTÚGAL dagflug á fimmtudögum
GRIKKLAND dagflug á þriöjudögum
SUNNA
REYKJAVÍK: BANKASTRÆTI 10 - SÍMI 29322.
AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 94 - SÍMI 21835
23. TBL.VIKAN 21