Vikan - 08.06.1978, Síða 26
Sylvester og kona
hans Sasha slitu sam-
vistum vegna þessa máls
i ársbyrjun, en þau eiga
einn son sem heitir Sage
og varð hann 2ja ára í
mai. Sasha hefur rætt
við blaðamann um þetta
mál, og sýnir furðu
mikið umburðarlyndi,
segist hálft í hvoru skilja
mann sinn, „þar sem
hann hafi svo skyndilega
komist á toppinn. Hann
þarf nú að ráða fram úr
þeim vanda sem fylgir
slíkri vegsemd og ég vil
gjarnan finna út hver ég
er í raun og veru. Svo
við ákváðum að taka frí
hvortfrá öðru.”
Sasha kennir mynd-
inni Rocky um þetta.
,,Hér áður fyrr
höfðum við ekki efni á
að njóta lífsins, og eftir
að hann byrjaði á Rocky
hefur hann ekki haft
neinn tfma fyrir mig.
Kannski er hann líka
fórnarlamb þess sem
kallað er „sjö ára kláð-
inn.” Við kynntumst í
New York árið 1970,
þar sem við unnum bæði
í leikhúsi, ég var þá 19
ára en hann 23 ára.
Tveimur árum síðar
flutti ég til hans, og við
giftum okkur svo árið
1974. Það var svo ekki
fyrr en í desember sl.,
sem hjónaband okkar
var komið í hættu, en þá
var hann búinn að ráða
Joyce til að leika í mynd-
inni. Frá þeim tíma
ákvað hann að búa á
hóteli í námunda við
kvikmyndaverið í stað
þess að koma heim á
nóttunni.”
Þrátt fyrir þessar
aðstæður þá er Sasha
vongóð um að
Sylvester snúi aftur til
hennar, „en þá verður
hann líka að vera búinn
að hlaupa af sér hornin,”
sagði hún.
VIKII
Spakmæli vikunnar...
‘ Mér kom mest á óvart í Bandaríkjunum hve
foreldrar voru hlýðin við börnin sín (Hertoginn af
Windsor).
• Ástin læknar — bæði þann, sem gefur og þann
sem þiggur.
• Þeir eru álitnir öðrum fremri. sem ekki láta
stjórnast af ágirnd í peningamálum.
• Besta ráðið til að muna eftir afmælisdegi eigin-
konunnar er að gleyma honum einu sinni.
• Maður er enn ungur. ef konu tekst að gera hann
hamingjusaman eða óhamingjusaman. Hann er
kominn á miðjan aldur. ef konu tekst ekki að gera
hann óhamingjusaman. Hann er orðinn gamall, ef
konu tekst hvorki að gera hann hamingjusaman eða
óhamingjusaman.
Clyde Morrison er skókaupmaður í Los Angeles og
einn góðan veðurdag datt honum í hug að hann
yrði að gera eitthvað snjallt til að auglýsa verslun
sína. Hann fékk sér þá bíl af Honda gerð og breytti
honum í „klossa,” sem hann selur einkum í verslun
sinni. Ekki svo vitlaus hugmynd!
Rocky" féll fyrir fagurri
Glæpir borga sig löikkonu
ekki í Japan
Japanir eru ekki ónægðir.
þegar þeir lita yfir skýrslu um
glæpi i landinu — að minnsta
kosti ekki samanborið við
Bandaríkjamenn. Í opinberum
skýrslum scgir. að tala myrtra
sé aðeins l'intmtungur þess sent
gerist i Bandarikjunum. og
rán innan við 1% rána i
Bandarikjunum. Japanska
stjórnin gelur þá skýringu á
þessum rnikla mun. að Japanir
hafi ntjóg stranga löggjöf um
skotvopn. harðsnúna lögreglu
og megi reiða sig á nána
santvinnu við borgara lands-
ins. ef afbrot eiga sér stað. í
fcamhaldi af þcssu má geta
þess. að Japanir ná tiltölulega
fleiri afbrotamönnum undir lás
og slá. en önnur þróuð riki.
Þau eru hálf vandræða-
leg á þessari mynd, hinn
þekkti leikari Sylvester
Stallone og fylgikona
hans Joyce Ingalls, enda
hundelt af blaðaljós-
myndurum. Ástæðan er
sú, að Joyce er hálfopin-
ber hjákona Sylvesters,
sem réði Joyce til að
leika með sér í kvik-
mynd, sem á ensku
nefnist „Paradise
Alley,,’ Stallone, sem
hefur verið kvæntur
síðan 1974, hefur ekki
verið orðaður við aðrar
konurfyrren nú.
Dvergvaxinn api
Þetta pínulitla, en fremur geðslega kvikindi, er api,
sem dvelur í dýragarði í Englandi. Hann er af ætt
sem nefnist Tamarins og lifir í frumskógum Mið- og
Suður Ameríku. Þessi apategund, sem er fremur
sjaldgæf, lifir einkum á ávöxtum.
26 VIKAN 23. TBL.