Vikan - 08.06.1978, Blaðsíða 27
Þetta er einn og sami maðurinn, en myndirnar eru
teknar með nokkurra ára millibili. Hann heitir
Fabian og var á sinni tíð dáður rokksöngvari.
Fabian kemur fram á ný
„Þeir fundu mig á
götunni einn góðan
veðurdag, og ákváðu að
gera úr mér stjörnu,”
segir Fabian. „Ég kunni
ekki að syngja og hafði
engan áhuga á að læra
söng. Ég hélt þeir væru
gengnir af göflunum.”
Þá var hann aðeins 14
ára.
„Þegar maðurinn
færði þetta í tal við mig,
þá fannst mér allt í lagi
að reyna, enda var pabbi
þá á spítala vegna hjarta-
áfalls og fjölskyldan var
auralítil.”
Frumlegt hús
Þetta lítur út eins og
geimskip frá annarri
plánetu, en er reyndar
íbúðarhús í Banda-
ríkjunum. Eigandi þess,
David Graham, 34ra
ára, starfar við húsbygg-
ingar, en hann byggði
samt ekki þetta hús, það
eftirlét hann öðrum.
„Þetta er mjög sér-
kennilegt hús, segir
hann,” en ég er mjög
ánægður með það, það
er nýtískulegt og þægi-
legt. Það var aðeins 10
mánuði í byggingu.
Fyrst rákum við niður
sex stálpípur, sem við
fylltum af sementi og
síðan settum við þykkt
lag af sementi utan á
þær. Síðan byggðum við
„skálina” úr stáli,
sementi og dálitlu af
timbri.
í húsinu eru þrjú
svefnherbergi, tvö
baðherbergi, eldhús, stór
stofa og þæginda-
herbergi með bar. Til að
auka friðhelgi heimilis-
ins, þá er hægt að loka
húsinu einfaldlega með
því að hífa upp
tröppurnar, sem eru eins
og tröppur upp 1 flugvél,
og þá má heita ómögu-
legt að ráðast inn í húsið.
Öll herbergin eru hring-
laga og rúðurnar úr
acryl til að fólki finnist,
að þetta sé frekar
geimskip en hús.
„Svo var hafist handa
við að gera úr mér
aðgengilega vöru og
fimm mánuðum síðar
var ég orðinn stjarna. Ég
var aðeins varningur í
' þeirra augum.”
Árið 1961 var Fabian
þess megnugur að kaupa
sig lausan, en varð að
greiða fyrir samning sinn
65 þúsund dollara. Eftir
það byrjaði hann að
skemmta á eigin spýtur.
í dag er hann 35 ára
og aftur að byrja að
skemmta í Las Vegas.
„Þegar ég lít til baka og
skoða gamlar kvik-
myndir með mér, þá
þekki ég ekki sjálfan
mig. Hugsa bara með
mér: Hver er þetta
eiginlega?”
Tvíburar geta oft verið svo líkir, að það er ekki á færi
nema náinna ættingja að vita hver heitir hvað.
Líklega hafa þeir Steven og Michael verið orðnir
þreyttir ásífelldum ruglingi,þannig að þeir fengu sér
peysur sem tóku af allan vafa: „Ég er Steven, hann
Michael” og „Ég er Michael, hann Steven.”
„Spurning um vilja
og reglusemi"
Það er ekki oft, sem við sjáum
svona leikaramyndir, en hér er
á ferðinni Roy Schneider, sem
lék i myndinni „Jaws." er nú er
verið að filma aðra slíka, sem
mun einfaldlega heita Jaws 2.
2 börn
f fjölskyldu
í könnun, sem gerð var
nýlega í Bandaríkjunum,
þar sem spurt var um
hvað fjölskylda ætti að
vera stór, töldu 52%
aðspurðra að skyn-
samlegast væri fyrir
hjón að eiga tvö börn.
25.6% töldu að hjón
ættu að eiga þrjú börn.
1.2% töldu rétt að hjón
ættu ekkert barn að
eignast, og undir einu
prósenti sagði, að hjón
ættu að eignast eins
mörg börn og þau vildu.
Roy, sem er orðinn 42 ára,
segir, að hann hafi i æsku
verið feitur og óásjálegur. og
haft mikið fyrir því að verða
grannur og stæltur. „Þess-
vegna er mér alltaf efst i huga
að halda mér vel við. Ég æfi á
hverjum degi. hleypá hverjum
morgni eina og hálfa mílu. og
flyt með mér vöðvastyrkingar-
tæki hvert sem ég fer. Það er
sama hve lengi dags kvik-
myndataka stendur, ég hef
fyrir fastan sið að taka klukku-
tima æfingu eftir vinnudag,
sama hvað ég er slæptur. Þetta
er spurning um vilja og reglu-
semi — rétt eins og tann-
burstun. Eftir æfinguna liður
mér alltaf betur en áður en ég
byrjaði æfinguna."
„Ég borða eina þunga
máltið á dag. á kvöldin. vegna
þess að ef ég borðaði mikið i
hádeginu, þá væri líkaminn
upptekinn við að melta
fæðuna og það gerir mann
syfjaðan. Maður verður að
vera líkamlega vel á sig
kominn, ef maður á að duga í
kvikmyndaþransanum."
23. TBL. VIKAN 27