Vikan


Vikan - 08.06.1978, Side 43

Vikan - 08.06.1978, Side 43
Armbandsþrugl Kæri draumráðandi! Mig langar að biðja þig um að ráða fyrir mig tvo drauma. Sá fyrri er svona: Mér fannst sem strákurinn. sem ég var með á föstu fyrir stuttu, vœri kominn til þess að spyrja mig, hvort ég vildi byrja með honum á föstu aftur. Ég tók því alveg eins og skot, því ég var svo hrifin af honum. Ég var með armband, sem hann átti, og ég átti ■eftir að skila því. Hann spurði mig, hvar armbandið sitt væri, og ég sagðist ætla að ná í það. Ég gerði það og rétti honum það. Þá tók hann eftir því, að þetta var nýrra armband en það, sem hann átti. Þá sagði ég, að ég hefði keypt nýtt og var hann ánægður yfir því. Svo spurði hann, hvort ég vildi ekki hafa það (það átti.að tákna, að við værum byrjuð að vera saman aftur). Jú, jú, ég vildi það. Svo spurði ég hann, hvort hann vildi ekki fá hringinn minn, og hann vildi það. A rmbandið var sUfurlitað og hringurinn fremur einfaldur, úr 14 karata gulli. Þá vorum við byrjuð að vera saman aftur. Mér fannst við; vera alveg ofsalega ástfangin hvort af öðru, en svo fannst mér ég kalla: „Ég vil ekki drevma þennan draum, hann boðar ekki gott. ” Mér fannst ég hrópa þetta oft og vaknaði síðan við það, öll kófsveitt. Síðari draumurinn var svona: Mér fannst sem ég væri að fara að halda partý heima hjá mér. Það komu svonafjórar tilsex manneskjur, og meðal þeirra var slrákurinn ífyrri draumnum þarna kominn, með einhverja stelpu, sem hann var bvrjaður með. Ég var nú ekkert hrifin af því, að hann væri með henni, en samt að einhverju leyti var mér sama. Hann var þarna alveg trítilóður og sagðist vilja fá armbandið sitt strax á stundinni, af því að hann ætlaði að láta stelpuna fá það. Svo spurði hann, af hverju ég væri ekki búin að láta hann fá það, það væri svo langt síðan við hefðum hætt saman. Hann talaði svo hátt og frekjulega, að ég var alveg hissa. Ég hafði þaðfyrir afsökun, að ég hefði týnt því, þegar ég hefði farið á skíði, og hefði ekki haft efni á því að kaupa nýttfvrr en á föstudaginn. Ég var sár út i hann, hvernig hann lét við mig, og sagðist ætla að ná í það í herbergið mitt. Ég náði í það, en staðnæmdist við dyrastafinn á Mig dreymdi bakaleiðinni til að þurrka tárin, svo hann sæi þau ekki og sæi ekki, að ég væri svona sár út í hann. Svo lét ég hann hafa armbandið. Hann hrifsaði það nœstum úr höndunum á mér. Svo horfði ég á það, sár, að mér fannst, þegar hann kallaði á hina stelpuna blíðum rómi og lét hana fá armbandið. Svo var það nú ekki lengra. Mig langar einnig að spyrja þig, hvað það merkir að dreyma, að maður sé að klæða sig í hvíta lopapeysu með hettu og finnast hún alveg ofsalega falleg. Með fyrirfram þökkfyrir ráðninguna. Ungur dreymandi. Fyrri draumurinn boðar þér ríkt gjaforð. Þú verður brátt ástfangin af manni, sem þú þekkir ekki nú. Þú munt eignast góða félaga og eyða tíma þínum í glaðværum félagsskap. Heilsa þín mun verða mjög góð, en þú þjáist af völdum afbrýðisemi i einhvern tíma. Siðari draumurinn er fyrirboði góðra daga. Þó muntu bíða lægri hlut í einhverju, sem þú keppir að, en þú mátt vænta stuðnings frá sönnum vinum þínum. Erfiðleikar þínir eru brátt á enda, og þú munt fagna gæfunni ásamt vinum þínum. Þú verður ástfangin innan skamms og færð ást þína endurgoldna. Þarna mun ekki vera um að ræða piltinn í draumnum. Hvað varðar lopa- peysuna, er stór og falleg yfirhöfn í draumi yfirleitt tákn þess, að dreym- andinn muni fá tækifæri til bættra lífskjara. Gestabók með myndum Kœri draumráðandi! Mig langar til að biðja þig að ráða tvo drauma fyrir mig. Fyrri draumurinn var svona: Mér fannst ég vera inni í bókabúð, og inn kom maður, sem bað um mjög vandaða gestabók. Ekkert var nógu gottfyrir hann, en samtskoðaði hann eina gerð. Allt í einu var pabbi kominn og yngri systir mín, og við fórum Hka að fletta þessari gestabók, nema að bókin, sem við skoðuðum, var stærri og gylltari. Enn einn maður var í búðinni, og skoðaði hann líka gestabók. Að innan var hún eins og biblía með mjög litskrúðugum litmyndum. A llir í búðinni keyptu bókina, en við keyptum ekki bókina, sem við skoðuðum, heldur aðra minni, Undir myndunum stóðu leiðbeiningar um líflð. Myndirnar minntu mig á spáspil. Hinn drauminn hefur mig dreymt tvisvar. Þegar mig dreymdi hann, var inni hjá mér kommóða, mjög mikil og stór, og mig dreymdi, að hvítt garn lægi við framfót hennar. Hvað merkir að dreyma skemmdar appelsínur? Með fyrirfram þökk fyrir svarið. G.H. Fyrri draumurinn er góðs viti. Þér gefst gott tækifæri, sem þú skalt grípa greitt, og mun gæfan fylgja þér. Einhverjar breytingar verða á starfi þínu, líferni eða dvalarstað innan skamms, og þú eignast nýja kunningja, sem eiga eftir að reynast þér góðir vinir og verndarar. Þó máttu búast við óþægilegum fréttum, sem snerta þig þó ekki beinlínis per- sónulega. Draumurinn um hvíta garnið boðar þér bætta lífsaðstöðu, peninga og völd. Skemmdar appelsínur í draumi eru yfirleitt fyrirboði gremju og hryggðar, og ekki er ólíklegt, að þú lendir í deilum. 23. TBL. VIKAN 43

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.