Vikan


Vikan - 22.06.1978, Qupperneq 5

Vikan - 22.06.1978, Qupperneq 5
Þarna er allt fullt af krókum og kimum, eins og ég komst best að raun um, þegar ég leitaði að salerni ogfór upp og niður stiga í sívölum turni. Turn þessi er annars frægasturfyrir, að Bretar skutu af honum þakið, þegar þeir bombarderuðu Kaup- mannahöfn árið 1807. RAFMAGN HVORKI í MATSAL NÉ ELDHÚSI Bogagöngin, vindutröppurnar og matsalirnir minna á hinar myrku miðaldir. Veitingamenn- irnir eru ekki neitt að draga úr þeirri tilfinningu. Þeir nota ekk- ert rafmagn í matsölunum, þótt þar séu ekki gluggar. í staðinn logar þar á rúmlega 200 kerta- stjökum. Og þeir bæta enn um betur, nota hvorki rafmagn né gas i eldhúsinu. Matinn grillsteikja þeir yfir opnum eldi, alveg eins og forfeðurnir gerðu á miðöld- um. Allt á semsagt að vera eins og I gamla daga. Nema auðvitað verðið. Það er nýtískulegt og hátt. Eins og annars staðar I Kaup- mannahöfn er fjárhagslega skynsamlegra að panta sér öl fremur en vín með matnum. Grænn kostar 9 krónur og gull- inn 11 krónur. F ÁRÁNLEG ASTA VÍNVERÐ ÆVISÖGUNNAR Hins vegar er maturinn svo góður þarna, að vínin freista. Ráði menn ekki við þá freist- ingu, er hægt að fá rauðvín eða hvívín hússins á 34 krónur hálf- flöskuna og 64 krónur heilflösk- una. Við gerðumst þó svo djörf að fá okkur heila flösku af Cotes du Rhone frá árinu 1974 á 80 krónur. Cotes du Rhone er dalurinn og héraðið umhverfis frönsku ána Rhone, sunnan frá borginni Avignon norður til borgarinnar Lyon. Þetta svæði er frægt fyrir voldug vín og var I gamla daga í < svipuðum metum og Búrgund og Bordeaux. Síaðn hefur tískan breyst. Vín Rhone-dalsins eru vanmetin um þessar mundir og reynast neyt- endum því oft góð kaup. Við vorum alténd ánægð með árang- urinn, enda var 1974 gott vínár á þessu svœði. En það er líka hægt að gera vond kaup í vínum á St. Ger- truds Kloster. Þar kostar árgang- urinn 1972 frá hinu fræga vín- búi Chateau Margaux hvorki meira né minna en 435 krónur danskar eða um 20.000 íslensk- ar! Sorglegast er, að Chateau Klaustur sankti Geirþrúðar er fremur tuttugustu aldariegt að sjá að utan ... Margaux þykir hafa misheppn- ast vínræktin I Medoc-héraði. Hef ég aldrei séð jafn fáránlegt verð á víni. RAUÐASTA STEIK ÍÖLLU DANAVELDI / forrétt fengum við okkur Coquilles St. Jaques á 46 krónur og King Crab Split á 48 krónur. Hvort tveggja var mjög gott, en hið fyrra þó betra, því að á hið síðara skyggðu chanterelle- sveppir, sem við kunnum ekki velaðmeta. í fyrrnefnda forréttinum var blanda af hörpuskelfiski, humar, lauk, sveppum, soðin I hvítvíni, skréytt sýrðum rjóma og hvítri sósu og borin fram á hörpuskelj- um. Hið síðara voru krabba- klær, skornar langsum, með chanterelle-sveppum í sósu úr sýrðum rjóma ogsérríi. / aðalrétt fengum við okkur Poularde St. Gertrud á 59 krón- ur og Kalvemörbrad á 78 krón- ur. Hið fyrra var aliunghæna í hvítu búrgundarvíni með lauk, fennikel, gruyére-osti, þeyttum rjóma og hrísgrjónum. Reyndist það hinn ágætasti matur. Steikin var þó öllu betri, raun- ar alveg frábær. Hún var vel rauð, og hef ég ekki séð slíkt áður í Danmörku. Með henni var sveppamauk, bernaise-sósa, bökuð kartafla og grœnmetis- salat. í eftirrétt fengum við tertu hússins úr marsipan, ávöxtum og sýrðum rjóma á 21 krónu og „sorbet" úr ananas og ísmuln- ingi á 22 krónur. Síðan fylgdi kaffi og koníaksglas í lítilli setu- stofu undir áðurnefndu bóka- safni. HÓKUSPÖKUS í KONÍ AKSSÖLUNNI Einkenni/egt var, að venjulegt þriggja stjörnu koníak kostaði þarna 16 krónur glasið, en hið rokdýra Martell Cordon Bleu þó ekki nema 19 krónur. Miggrun- aði skýringuna, þegar koníaks- þjónninn kom ekki með flösk- una, heldur aðeins glasið með vökvanum I. Ég benti honum á, að ég hefði hugarfar postulans Tómasar, en hann gerði ekki til- raun til að draga úr efasemdum mínum. Þótti mér það billeg af- greiðsla á dýrum stað. í heild kostaði þessi veisla 424 danskar krónur eða 9.500 krón- ur íslenskar á hvorn. Án kon- íaksins hefði hún kostað 8.500 krónur. Og með öli í stað víns hefði hún kostað 7.000 krónur íslenskar. Með þeim tilfœringum er hœgt að mæla með klaustri Geirþrúðar. Þá er verð veislunn- ar komið niður í tölur, sem ekki valda samviskubiti, því að stað- urinn býður, auk góðs matar, upp á verulega skemmtilegt mið- alda-andrúmsloft, sem gaman er að anda að sér. Þar á ofan er til fyrirmyndar að leyfa gestum að hefja máltíð og Ijúka henni í hægindastólum, þótt setið sé til borðs á milli. Slík aðstaða er allt of sjaldgæf á veit- ingahúsum. (St. Gertruds Kloster, 32 Hauser Plads, sími 14 66 30) Jónas Kristjánsson. ínœstu viku Coq d 'Or 25. TBL.VIKAN 5 , en miðaldirnar koma I Ijós, þegar komið er inn I kjallara bakhússins.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.