Vikan


Vikan - 22.06.1978, Blaðsíða 6

Vikan - 22.06.1978, Blaðsíða 6
Hjálpaðu mér, greyið mitt gráa! sem eyðir flösu í raun og veru. íslenskar leiðbeiningar á flöskunni. Crisan flösusjampó fæst í apótekum, snyrtivöruverslunum og flestum matvöru- verslunum. HALLDÓR JÓNSSON HF. Dugguvogi 8 ¥ POSTDRIM Alltof feit Kæri Póstur. Mig langar að biðja þig um að svara nokkrum spurningum, sem eru mjög mik'Uvœgar fyrir mig, svo ég vona að þín ein- læga og sadda vinkona Helga sé búin að fá nógu mörg bréf í dag. Ég vil biðja þig Póstur kær að birta svör við þessum spurningum, því ég get ekki verið svona eins og ég er. Þannig er mál með vexti, að ég er alveg hroðalega feit. Ég er 25 kg þyngri en ég á að vera. Éger 77 kg en á að vera 52 kg skv. hæð. Mér líkar mjög illa við fituna, og einnig er mér illa við það, þegar fólk hefur áhyggjur af mér. Mörgum fnnst svo agalegt hvað ég er feit ogað ég, svona myndarleg, skuli vera svona. Þetta fer mjög I taugarnar á mér, þess vegna leita ég ráða hjá þér, hvernig ég eigi að ná þessum 25 kg af mér, án þess að þurfa að halda mér við, og ftna um þau aftur. Línan er tilgangs- laus, svo þú verður að vísa mér á einhverja lœknishjálp, þar sem ég get losnað við þessi 25 kg og fá þau ekki aftur. Ég vil biðja þig að fyrirgefa frekjuna, en þetta er mjög mikilvægt fyrir mig. Svo þetta venjulega: Hverjar eru happatölur, happa- litur og dagur þeirra, sem eru fæddir 22.6.? Hvaða merki fer best við krabba (kvk)? Hvernig eiga vogin og hrúturinn saman, og hvað lestu úr þessu hrafna- sparki? Fyrirfram þökk fyrir birtinguna. Einn bolti. Ég hef nú ekki mikla trú á að þú hafir mikinn viljastyrk, ef þér finnst Línan ekki duga, því þeim sem hafa viljann, og hafa farið i Línuna hefur yfirleitt gengið mjög vel. En þú skalt umfram allt leita til læknis hið fyrsta, og hann getur þá gefið þér tilvísun á góðan lækni í efnaskiptasjúk- dómum í Reykjavík, þvi það má vel vera að þetta sé ekki ofát hjá þér. Hins vegar máttu búast við að þurfa að fara á sér mataræði, meðan þú ert að losna við þetta, og mér finnst líklegt að þú komir til með að þurfa að halda því áfram. Happatölur þeirra, sem eru fæddir 22.6. eru 2 og 4, happadagur er mánudagur og happalitur er silfurhvítt. Annar krabbi, bogmaður eða fiskar eiga best við krabbastelpuna. Þú verður að segja mér hvort er kvk. vogin eða hrúturinn til að ég geti séð hvernig þessi merki eiga saman. Skriftin ber með sér að þú sért draumlynd og svolítið skáldleg innst inni. Virðulegi Pósturl! Ég þakka þér allt gott, sem hefur komið í Vikunni, þú lífg- ar heilmikið upp á blessunina! En hvað ég ætlaði að segja .... Já, ég hef vandamál, eins og festir aðrir í þessum heimi, ef ekki allir. Ef einhver hefði sagt við mig fyrir viku: „Þú átt eftir að leita til Póstsins", þá hefði ég haldið þann sama kol- ruglaðan. En hér er ég og vandamálið er þetta: Ég var með strák um helgina, sem ég hef verið, ja, hrifn af (svo ekki sé meira sagt) í lengri tíma, þú skilur, við vorum alveg saman (höjðum samfarir ... má svona Ijótt orð koma í Vikunni?!!) og ástin blossaði upp hjá grey mér. En nú held ég að hann haf bara engan áhuga á mér. Já, ég veit að það eru fleiri fiskar í sjónum, en ég er bara búin að vera hrifn af grey stráknum svo lengi, að mér fnnst eins og hann sé eini þorskurinn!! Þú heldur kannski að þetta sé platbréf, en ég er nú svona gerð, að breiða yfir Mig langar að líkjast karlmönnum Fullkomni Póstur og háttvirta ruslafata Þannig er málum háttað hjá mér, að ég fnn mikla til- hneigingu til að líkjast karlmönnum, sem mest, þó ég sé að- eins 16 ára. Mig langar samt ekki að láta breyta mér í karl- mann, og ég haga mér ekki mikið sem karlmaður. Þetta er bara svona innri þörf. Samt gœti ég aldrei hugsað mér að vera með kvenmanni og er alveg með karlmönnum ef út í það fer. En ég reyni að líkjast karlmönnum sem mest í klæðaburði og útliti. Ég umgengst karlmenn nokkuð, sem eru með öðrum karlmönnum (hommar), og lít á það sem mjög sjálfsagðan hlut því þetta eru mínir kunningjar. Mig langar til að heyra þitt álit á mér, því égget ekki rætt þetta við mína nánustu, því þeir halda að mér finnist bara smart að láta svona. Ég læt samt lítið á þessu bera. Virðingarfyllst, H. Póstinum virðist þetta nú ekki vera neitt gífurlegt vandamál, þar sem ekki virðist um kynferðislega brenglun að ræða hjá þér. Ef þetta er þér hins vegar til byrði, mundi ég ráðleggja þér að leita þér sálfræðilegrar aðstoðar, og því fyrr, því betra. 6VIKAN 25. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.