Vikan


Vikan - 22.06.1978, Page 13

Vikan - 22.06.1978, Page 13
„Atfa-Laval mjaltir". OKa A striga 1977. — Já. Hins vegar var erfitt að fá eitt- hvað að gera á þeim tíma, því skólinn út- skrifaði svo marga nemendur um þessar mundir. Næstu 6 eða 7 árin vann ég því við ýmis konar störf og byrjaði ekki aftur að mála fyrr en rétt fyrir 1960. Ég var kennari við Myndlista- og handíðaskólann 1959 til 1962, en síðan hef ég kennt í Myndlistar- skólanum í Reykjavík. Fyrstu einkasýning- una hélt ég 1962 í Bogasal Þjóðminjasafns- ins. — Hvernig dóma fékkstu þá? — Ég fékk svona þokkalega dóma. Þá var ég aðallega með teikningar. Síðan hef ég að mestu verið við þetta, þótt ég hafi fengist við kennslu að' auki, og um tíma skreytti ég keramikmuni hjá Glit. ANDSTÆÐUR í TILVERUNNI — Þú hefur aldrei farið utan til þess að afla þér menntunar eða áhrifa. Telurðu verk þín tengdari landi og þjóð, af þeim sökum? — Að vissu leyti, en náttúrlega verður maður fyrir áhrifum af öllu, ef maður er með opin augu. Það berast hingað sterk áhrif með öðrum listamönnum, tímaritum og fjölmiðlum, og ég hef ekki farið varhluta af þeim. — Hvað orkar helst á þig til listsköpun- ar? — Andstæðurnar í tilverunni. Hvernig vélin heldur innreið sína í náttúruna og sveitina. Sjái ég eitthvað sterkt i því sam- spili snertir það mig. Flestir málarar leita að einhverju, sem þeim finnst vera þess virði að gera skil. Ég er líka blendingsmaður, uppalinn i sveit, en siðan borgarbúi. Það hefur sín áhrif. Ég geri alltaf dálítið af landslagsmyndum, kannski fremur óvenju- legum, en það eru landslagsmyndir samt. Birta og speglanir eiga líka stóran þátt í verkum mínum. — Málarðu mikið eftir einskærum hug- dettum? — Nei, ekki mikið, en eina og eina mynd. Týndi böggullinn er til dæmis mál- aður eftir hugmynd. — Hvernig varð myndin „Skuggi á skýj- um” til? — Hún varð til af því að ég er dálítið flughræddur og teiknaði þess vegna alla leiðina á flugi að norðan. Reyndar hafði ég lengi ætlað mér að teikna útsýni úr flugvél, því ég hafði áður notað útsýni úr bíl sem myndefni. Ég er yfirleitt alltaf rissandi á ferðalögum. Ef ég ferðast norður á vorum með bíl, þá sé ég alltaf eitthvað nýtt. Land- ið er stöðugt að breytast og nýir hlutir að koma í ljós, mannvirki og margt fleira. Úr slikum ferðum verða svo venjulega til eitt eða tvö málverk. — Málarðu þá oftast eftir teikningum? — Já, i flestum tilfellum. Ég geri oft margar teikningar af sama mótífi, áður en ég byrja að mála. Ef ég teikna á ferðalög- um, merki ég oft liti inná, til þess að auð- velda eftirvinnuna. Það kemur líka fyrir, að ég geri olíukrítarmyndir, sem ég mála svo beint eftir, og þá er ég mun fljótari. 25. TBL.VIKAN 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.