Vikan


Vikan - 22.06.1978, Síða 14

Vikan - 22.06.1978, Síða 14
„Frö Slippnum i Reykjavik" 1951. Myndina gerði Hringur með svartri merkikrlt, þegar hann var við nám i Handiðaskölanum. — „Sjálfsmynd" blýantsteikning frá 1952. MARGAR KVAÐIR FÝLGJA ATVINNU MENNSKUNNI — Hefur einhver einn málari haft meiri áhrif á þigen aðrir? — Éghef núekkiorðiðvarviðþað. Það væri þá einna helst súrrealistinn Magritt, þótt ég sé hins vegar ekki súrrealisti. Hann málar mikið af fínlegum myndum og and- stæðum. — Áttu þér einhvern eftirlætis málara? — Já, marga. Ef ég á að nefna ein- hverja, þá eru það bandaríkjamaðurinn Andrew Wyeth, Magritt og margir fleiri. — Ertu alltaf í stuði til að ntála, eða ntálarðu bara, þegar andinn kemur yfir þig? — Það koma auðvitað þannig dagar, að maður er ómögulegur. Ég reyni að skipu- leggja vinnuna og setja mér ákveðin verk- efni fyrir. Til dæmis, þegar ég er fyrir norð- an á sumrin, þá mála ég oft í 8 til 10 tíma á dag. — Hefurðu getað lifað á listinni undan- farin ár? — Nei, það er fyrst núna, að ég er kom- inn á það stig, að geta lifað á henni. En það er nú bara rétt á mörkunum. — Hvort er skemmtilegra að vera frí- stundamálari eða atvinnumálari? — Þegar ég var að þessu í frístundum, sá ég oft óskaplega eftir því að geta ekki haldið mig að hlutunum. Hins vegar eru margar kvaðir, sem fylgja atvinnumennsk- unni. Maður verður að sinna kaupendum, halda sýningar reglulega o.s.frv. Ég held þó, að ég sé blessunarlega laus við að hugsa um sölumennsku þegar ég er að vinna að málverki. — Hefurðu ekki fengið listamannalaun? — Jú, ég hef fengið þau og verið í efri flokki í 3 eða 4 ár. Þau eru svo sannarlega happdrætti í dag þessi listamannalaun, því hér eru svo margir góðir menn. Mér finnst t.d. fáránlegt að Hörður Ágústsson, Kjart- an Guðjónsson og fleiri langskólaðir menn skuli ekki vera á listamannalaunum. Annars held ég að starfslaun séu að ýmsu leyti heppilegri. Eitt sinn fékk ég slík laun, en þá sótti ég um þau til þess að vinna að ákveðnu verkefni. Þeir, sem hafa skilað góðu dagsverki, ættu frekar að vera á föst- um launum. Starfslaunin eru heppilegri fyrir hina yngri. í Hollandi hefur ríkið greitt listamönnum ákveðin lágmarkslaun, en fengið í staðinn nokkur verk á ári, eða a.m.k. forkaupsrétt á ákveðnum fjölda verka. Það er í rauninni veðjað á hóp manna og á meðan þeir standa sig, halda þeir sínum launum. Báðir aðilar geta riftað samningum, ef þeim sýnist svo. GAMAN AÐ UMGANGAST MÁLVERK — Hvað finnst þér um íslenska myndlist í dag? 14VIKAN 25. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.