Vikan - 22.06.1978, Síða 16
Farrah Fawcett-Majors:
„Þaö var ást við fyrsti
Og hver er hún svo, þessi Farrah Fawcett-
Majors?
Hún er amerísk. Varð fræg fyrir að leika eitt
aðalhlutverkið í hinum vinsælu sjónvarpsþátt-
um, „Charlie’s Angels”. Hún er efst á lista yfir
þær sjónvarpsstjörnur, sem ungar stúlkur vilja
helst líkjast. Og þar að auki er hún efst á lista
yfir þær tíu, sem karlmenn vildu helst eyða
kvöldstund sinni með!
Andlit hennar hefur prýtt svo margar
siður dagblaða og tímaríta, að hún er
löngu hætt að reyna að hafa tölu á því.
— Hún virðist hafa fengið allar sínar
óskir uppfylltar: Hún var falleg, rík,
fræg og býr í hamingjusömu hjónabandi
með leikaranum Lee Majors, sem er
þekktur úr sjónvarpsmyndaþáttunum
„Six Million Dollar Man.” Islenskir
sjónvarpsáhorfendur sáu hann nýlega í
hlutverki Francis Gary Powers, flug-
manns U-2 vélarinnar, sem skotin var
niður yfir Sovétríkjunum árið 1960.
En Róm var ekki byggð á einni nóttu,
og eins er um frægðarferil Farrah Faw-
cett-Majors. Og henni hefði aldrei tekist
að brjótast til frægðar og frama án hjálp-
ar David Mirisch, en hann var einnig
umboðsmaður Raquel Welch, Barböru
Perkins, Lindsay Wagner og Lyndu
Carter, svoeinhverjir séu nefndir.
„Það var I kringum 1965, að Texashá-
skóli sendi mér bunka af myndum og
bað mig um að vera þeim innan handar
um að velja fegurðardrottningu skól-
ans," segir Mirisch. „Ég var ekki lengi
að finna út, hvaða stúlka átti að vinna.
Andlit hennar bauð upp á eitthvað svo
nýtt og ferskt. Hún var mjög óvenju-
leg.” Þessi stúlka var Farrah Fawcett-
Majors.
„Ég sendi myndimar til baka til Tex-
as, en ég gat ekki gleymt þessu andliti.
Svo ég settist niður og skrifaði henni
bréf. Þetta bréf var það fyrsta, en jafn-
framt ekki það síðasta, sem Mirisch
sendi henni, en öll enduðu þau á þessa
leið: „Hvernig líst þér á þá hugmynd að
flytjast til Hollywood ...?”
Eftir margar bréfasendingar og mörg
simtöl varð það úr, að fjölskylda Farrah
Fawcett gaf henni leyfi til að fara, en
ekki án þess að móðir hennar færi með
henni til að fylgjast með því, að velsæm-
ið sæti nú örugglega I fyrirrúmi.
Þetta varð byrjunin á frægðarferli
stjörnunnar, sem nú er sifellt mynduð
annaðhvort á leið inn eða út úr frægustu
næturklúbbum heims, eða þá í íþrótta-
búningi með tennisspaða I hönd.
En þegar Farrah kom fyrst til Holly-
wood, var hún ákveðin i því að vera þar
aðeins yfir sumarið. „Mér fannst ég ekki
Myndlr af þessu Astfangna pari hafa
varið vinscaK f réttaafni dagblaða og
tfmartta A undanfömum mAnuðum.