Vikan


Vikan - 22.06.1978, Page 21

Vikan - 22.06.1978, Page 21
HLUTI Þaö, sem áður er komið: Sjúklingur dr. Judds Stevens er drepinn á götu úti, móttökustúlka Judds er drep- in á hroðalegan hátt, og sjálfur virðist Judd hundeltur af morðóðum náungum. McGreavy rannsóknarlögreglumaður trúir ekki orði af þvi, sem Judd segir, en starfsbróðir hans, Angeli, sýnir Judd vin- semd. Judd ræður Moody leynilögreglu- mann sér til aðstoðar, hann leiðir of- sækjendur Judds i gildru, en þeir sleppa. Angeli grunar Moody um græsku og ráðleggur Judd að vera á verði gagnvart honum. Moody hringir I Judd, kveðst vita, hver standi að baki öllu saman, en hann er drepinn, áður enn hann getur upplýst vitneskju sína. McGreavy er grunsemdarfyllri en nokkru sinni fýrr, og Judd gerir örvæntingarfullar tilraunir til þess að komast að hinu sanna. væri ekki kynvilltur, og honum skjátl- aðist. Hann var búinn að finna morðóða brjálæðinginn sinn, og nú myndi það kosta hann lífið. Hann missti meðvitund. SEXTÁNDI KAFLI kvalastrauma um æðamar. Hann sá allt i fögrum litum núna, eins og höfuð hans væri fullt af tindrandi regnbogum. „Hver veitti yður rétt tii að segja fólki hvernig á að elska, læknir? Þér sitjið þarna i skrifstofu yðar eins og einhver guð, og dæmið alla, sem ekki hugsa eins og þér.” Það er ekki satt. svaraði J udd einhvers staðar í huga sinum. Hanson átti aldrei um neitt að velja áður. Ég gaf honum valkosti. Og hann kaus þig ekki. „Nú er Johnny dáinn,” sagði ljóshærði risinn, sem gnæfði yftr honum. „Þú drapst hann Johnny minn. Og nú ætla ég að drepa þig.” Hann fann fyrir öðru sparki bak við Judd hristi höfuðið ringlaður. Hann hóf að reisa sig upp af gólfinu. Þegar hann var hálf- staðinn upp, sparkaði Boyd í nára hans með tánni á skó sínum, og Judd féll aftur niður á gólf, þar sem hann engdist sundur og saman af kvölum. „Ég hef verið að bíða eftir yður í heimsókn,” sagði Boyd. eyrað, og hann fór að missa meðvitund. Einhver fjarlæegur hluti huga hans horfði með fjarrænum áhuga á hina hluta hans byrja að deyja. Þessi litli einangraði hluti skynjunar i litla heilanum hélt áfram störfum, og skynjan hans yfirgnæfði dofnandi hugsanirnar. Hann sakaði sjálfan sig um það, að hafa ekki komist nær sannleik- anum. Hann hafði haldið, að morðinginn væri dökkur og af lat- neskum kynþætti, en hann var ljóshærður. Hann hafði verið sannfærður um það, að morðinginn Einhver fjarlægur hluti huga hans reyndi að senda honum skilaboð, koma til skila einhverju afskaplega mikilvægu, en hamarslátturinn i höfðinu var slíkur að hann gat ekki einbeitt sér að neinu öðru. Einhvers staðar i grenndinni heyrði hann hávært skerandi væl, eins og frá særðu dýri. Judd opnaði augun hægt og með erfiðismunum. Hann lá i rúmi í framandi herbergi. Úti í horni á herberginu grét Bruce Boyd stjórnlaust. Judd reyndi að setjast upp. Skerandi sársaukinn í líkama hans fyllti huga hans af minningunni um það, sem gerst hafði, og hann varð gripinn trylltri og skefjalausri bræði. Boyd snéri sér við, þegar hann heyrði Judd hreyfa sig. Hann gekk að rúminu. „Þetta er þér að kenna,” kjökraði hann. „Ef þú hefðir ekki verið, þá hefði Johnny verið öruggur hjá mér.” Viljalaust og rekinn áfram af löngu gleymdri, djúpt grafinni hefnigírni teygði Judd sig eftir hálsi Boyds, og 25. TBL.VIKAN 21

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.