Vikan - 22.06.1978, Síða 26
VIKU
Spakmæli vikunnar.
• Tíska er svo óþolandi fyrirbrigði að við
verðum að breyta henni á sex mánaða fresti.
• Bölvaðu ekki veðrinu. Jlestir gætu ekki
bvrjað samrœður nema það breyttist við og
við.
• Það var gaman á útborgunardögum hér
áðurfyrr. Þá gastu keypt eitthvað nýtt, en nú
fara peningarnir bara í afborgun af því, sem
þú ert þegar búinn að eignast!
Smátt, en fróðlegt
Flóðhesturinn fæðir af-
kvæmi sín í vatni og
læra þau að synda áður
en þau læra að ganga.
•
Skjaldbökur geta lifað í
alltað 150 ár.
•
í fyrstu símaskránni,
sem gefin var út, voru
aðeins fimmtíu nöfn.
Hún var gefin út í
borginni New Haven í
Bandaríkjunum árið
1878.
Fyrsta bókin, sem vitað
er til að rithöfundur
hafi samið á ritvél, var
„Ævintýri Tom
Sawyer” og var enginn
annar er Mark Twain
þar að verki. Þetta
gerðist árið 1875 og rit-
vélategundin var
Remington. Mark
Twain vildi halda þessu
leyndu, því hann nennti
ekki að svara allskonar
fyrirspurnum um þetta
nýja furðutæki.
Ford vill aftur
f Hvítahúsið
Gerald Ford, fyrrum
forseti Bandaríkjanna, er
nú 64 ára gamall, en seg-
ir heilsu sína og líkams-
styrk svo góðan, að hon-
um finnist hann ekki
eldri en fertugur. Hann
vinnur nú að endur-
minningum sínum, og
þar kemur fram, að
hann saknar Hvíta húss-
ins. Vinir hans hafa ráð-
lagt honum að nýta tím-
ann vel fram að næstu
forsetakosningum og
bjóða sig þá fram gegn
Jimmy Carter.
Ford fer á fætur kl. 6
á hverjum morgni, tekur
500 metra sundsprett og
leikur síðan golf í hálf-
tíma. Þvínæst sest hann
niður við að skrifa bók-
ina sem minnst er á hér
að framan. Hann segir,
að Henry Kissinger sé
besti utanríkisráðherra
sem Bandaríkjamenn
hafi átt, og hann muni
bjóða honum þá stöðu
aftur, ef hann sigrar
Jimmy Carter í næstu
forsetakosningum.
Stærsti hundur í heimi
vaktar hótel í London
Ef þig langar til að sjá
stærsta hund í heimi, þá
skaltu bregða þér til
Englands og kíkja inn á
hótel í útjaðri London
(því miður nefnir heim-
Brynbank Appollo og eigandi hans frú Iris Bates.
•
Fallhlífina fann upp
franskur maður, Louis
Lenormand, árið 1783.
Þá hafði hann fallhlif-
ina í huga sem björg-
unartæki fyrir fólk, sem
þyrfti að bjarga sér úr
brennandi háhýsum.
Árið 1797 notaði
Frakkinn Jaques
Garnerin fallhlíf til að
komast frá loftbelg í
3000 feta hæð.
•
Listamaðurinn Leon
ardo da Vinci fann upp
skærin.
ild okkar ekki nafnið á
hótelinu). Hótelstjórinn
heitir Iris Bates, og hún
segir, að hundurinn bíti
aldrei óvelkomna gesti,
hann einfaldlega sest of-
an á þá, og þá geta þeir
sig ekki hreyft, því vin-
urinn er 155 kíló og
fullreistur er hann 2 m
og13 sm.
Þessi garpur heitir
Brynbank Appollo, en
gengur oftast undir
gælunafninu Dominic.
Hann er af kyninu,
„Stóri Dani”, og eigandi
hans segir, að hann hafi
orðið svona stór vegna
þess, að þegar hann var
hvolpur, hafði hann ekk-
ert fyrir stafni nema éta
og sofa.
„Við neyðumst til að
spara við hann matinn
og hann lætur sér nægja
tvö og hálft kíló af kjöti
og pund af hundakexi á
dag, en reynir að sjálf-
sögðu að verða sér úti
um aukabita hvenær
sem tækifæri gefst,
nema hvað hann lítur
aldrei við skinku.”
Hundurinn getur að
sjálfsögðu skotið gestum
hótelsins skelk í bringu
við fyrstu sýn, en það er
heldur ekki tekið út með
sældinni, ef honum líkar
vel við einhvern gest-
anna. Vinarhót hans eru
býsna klossuð svo ekki
sé meira sagt.
26 VIKAN 25. TBL.