Vikan - 22.06.1978, Síða 28
Er
sumarið
komið yfir
sæinn...
Þó svo að íslendingar sæki mikið sundlaugar all-
an ársins hring, þá er það nú svo, að þegar sólin fer
að hækka á lofti og óskin um brúnan lit á kroppinn
er sem heitust, þá eykst aðsóknin í þær um helming.
Og ef sumarið í ár ætlar að verða eins vætusamt og
þau síðustu, má fastlega reikna með því, að barist
verði um þær sólarlandaferðir, sem enn eru i boði.
En þeir, sem spóka sig á þessum stöðum, eru nú
ekki allir jafn sáttir við að íáta sjá sig í hverju sem Silfurlitu bikinibaðfötin, sem sjást á þessari mynd, eru
er, því duttlunga tískunnar má finna á ótrúlegustu einnig fáanleg í gullit og kosta 6.025 kr.
stöðum. Einu sinni synti fólk í heilum bolum með
skálmum, síðan minnkuðu þessir bolir á alla kanta,
og úr varð sundbolur. En það leið ekki á löngu,
þangað til einhver uppgötvaði, að það var mögulegt
að ná brúna litnum á stærri hluta líkamans, ef
sundbolurinn var tvískiptur, þ.e. svokölluð bikini.
Bikinibaðfötin hafa orðið minni og minni með
hverju ári, þangað til það kom jafnvel fyrir, að fólk
sleppti þeim bara alveg!
Þessar myndir, sem hér sjást, voru teknar í
„Læragjánni” á dögunum, og öll baðfötin, sem
stúlkan er í, eru frá enska fyrirtækinu Silhouette og
fást í Ócúlus, Austurstræti 7.
Þessi líflegu bikini-baðföt,
sem einnig eru fáanleg í
blágrœnu, kosta 5.700 kr.
Spegillinn, sem stúlkan
heldur á, kostar 635 kr,
en gleraugun 3.500 kr.