Vikan


Vikan - 22.06.1978, Side 30

Vikan - 22.06.1978, Side 30
w Norskir Ijósmyndarar Undirritaður drap niður fæti í Osló fyrir skömmu og sá þá meðal annars sýningu á ljós- myndum eftir norska Ijósmynd- ara, „Fotografisk Várutstilling”, en þetta er í annað skipti sem efnt er til slíkrar vorsýningar. Það er félagsskapurinn „Frie Fotografer”, sem stendur fyrir þessari sýningu. í sýningarskrá segir m.a.: „Við vinnum að því að auka áhuga og skilning á frjálsri ljós- myndalist og bæta skilyrði slíkr- ar starfsemi, Við getum gert það með því að efna til sýninga með vissu millibili, auka möguleika á að gefa út ljósmyndabækur, eða í stuttu máli sagt auka samband- ið milli almennings og skapandi Ijósmyndara...” Persónulega fannst mér þessi sýning góð og hressileg. Á sýn- ingunni voru nær 300 myndir eftir 80 ljósmyndara, sem ýmist eru lærðir eða ólærðir í iðninni. Allar myndirnar voru verðlagð- ar, flestar kostuðu 200—300 krónur norskar (9—15 þúsund krónur) og ýmist var tala seldra mynda takmörkuð við 10 til 25 stykki sömu gerðar, eða ótak- markaður fjöldi. Þessi sýning brýtur blað, þvi að Listasjóðurinn norski keypti allmargar myndir á sýningunni, og er það í fyrsta skipti, sem hann viðurkennir Ijósmyndun sem listgrein til jafns við aðrar listgreinar. Hér á síðunni birtum við myndir frá sýningunni, og eru myndirnar teknar úr vandaðri sýningarskrá, sem gefin var út í 2000 eintökum í tilefni sýningar- innar. s.J.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.