Vikan


Vikan - 22.06.1978, Blaðsíða 36

Vikan - 22.06.1978, Blaðsíða 36
^?lin *!S®*lnnalii ^olin Sídumúla 15. Sínti33070 myndi ekki geðjast að þvi, að einhver hefði aðgang að íbúðinni, á meðan Donna væri fjarverandi, og hann myndi bara leggja enn fastar að Maggie að koma með sér til Hollands. Hún ákvað að spyrja Rosie út úr eins fljótt og hún gæti, ýtti þessum heilábrotum frá sér og fór niður. „Hvernig líst þér á kjólinn?” spurði húnglaðlega. „Þú ert glæsileg!” sagði Ross hrifinn. „Þetta er það fallegasta, sem þú hefur keypt öldum saman.” Hún brosti, ánægð með hrifningu hans, og tók svo eftir því, að hann rétti eitthvað í átt til hennar. „Gjöf handa fagurri konu,” sagði hann. „Ég er hræddur um, að hún sé ekkert sérlega frumleg.” Maggie bar kennsl á eftirlætisilmvatn- ið sitt og sagði: „En dásamlegt!” um leið og hún opnaði glæsilegan pakkann og hóf að bera ilmvatn á háls sér og úlnliði. „Hefurðu ekkert annað að vera í?” spurði Ross og tók af henni ullarkápuna. „Ég vissi ekki, að mér yrði boðið út að borða, svo ég tók engan kvöldklæðnað með mér.” „Geturðu ekki notað eitthvað frá Donnu?" Maggie hikaði. „Kannski sjal, sem ég hef áður fengið lánað.” „ Af hverju ekki fá það lánað aftur?” Maggie vissi, að Donnu myndi standa á sama, en hún var samt einkennilega treg til að fara inn í herbergi systur sinn- ar og sækja sér föt, á meðan systir henn- ar varekki heima. Þetta hik kom til af því, að lánaðri nælu — nei, líkri nælu — hafði verið stolið. Furðuleg atvik höfðu orðið til þess, að hún vildi halda sig frá málefn- um Donnu, að minnsta kosti þar til hún gat rætt þau nánar við systur sina. „Viltu ekki fá það lánað?” Ross horfði undrunaraugum á hana. „Jú, auðvitað. Ég ætla að sækja það.” Maggie hljóp upp, fann sjalið og flýtti sér aftur út úr herberginu. „Þetta var betra,” sagði Ross, þegar nún kom til baka, og síðan: „Ég heyrði hljóð niðri. Er það ekki óvenjulegt á laugardagskvöldi?” „Ég veit það ekki, en ég sá mann úr búðinni hans Jules koma þaðan i gær- kvöldi. Þeir hljóta að eiga húsnæðið.” Það leyndi sér ekki, að einhver var í versluninni, geymslunni eða hvað það nú var þarna niðri. Eins og venjulega voru nýju gluggahlerarnir fyrir, en það skein Ijós í gegnum þá, og eftir hljóðinu að dæma var verið að færa til húsgögn. Gat þessi óviðkunnanlegi Dick Evans flutt til húsgögn? Hann, sem var bund- inn við hjólastól? Maggie braut heilann um þetta, þegar Steve Rennie beygði bíl sínunt inn eftir götunni og nam staðar við eigin dyr. Hann gekk yfir götuna til þeirra og spurði: „Vardagurinngóður?” „Mjög góður, þakka þér fyrir,” sagði Ross. „En þinn dagur?” 36VIKANPR. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.