Vikan - 22.06.1978, Side 42
Wishbone
Ash
Hljómsveitin Wishbone Ash er fyrst og fremst þekkt fyrir mjög gott
samspil tveggja aðalgitarleikara. fyrst Andy Powell ogTed Turner, siðan
Andy og Laurie Wisefield.
Byrja má sögu Wishbone Ash með þvi að minnast á fyrri hljómsveitir
trymbilsins Steve Upton og bassagitarleikarans Martin Turner.
Upton fæddist í Wrexham 24. mai 1946. Hann byrjaði að leika i hljóm-
sveitum 16 ára og fyrsta hljómsveitin hét Scimitars. Síðan stofnaði hann
blúshljómsveit ásamt bassaleikaranum, og þeir héldu til Hamborgar, þar
sem hljómsveitin leystist upp. Næsta hljómsveit var ömurleg þjóðlaga-
hljómsveit, en eftir það gekk hann í hljómsveit, sem hét Blue Sounds.
Þaðan var hann svo rekinn eftir fjóra mánuði. Skömmu siðar buðu bræð-
urnir Martin og Glen Turner honum i hljómsveit sína, en Upton hafði
þekkt þá lauslega áður.
Martin Turner fæddist i Torquay 1. október 1947. Hann hafði byrjað
að leika i hljómsveitum 15 ára gamall ásamt yngri bróður sinum Glen.
Flestar hljómsveitirnar, sem þeir höfðu leikið I, voru trió, Martin á bassa-
gitar, Glen á gítar og trommuleikarar, en þeir skiptu oft um þá. Þeir
höfðu prófað mörg nöfn, þar á meðal Torinoes, Tacky og Turner Broth-
ers, og þegar Upton byrjaði, hétu þeir Entpty Vessels. en þeir breyttu þvi
síðar I Tanglewood.
Tanglewood var í raun upphafið af Wishbone Ash, þar sem helming-
ur þeirra var þar þegar saman kominn. Skömmu áður en Glen Turner
ákvað að hætta I Tanglewood, höfðu þeir félagar kynnst Miles Copeland,
sem átti eftir að verða umboðsmaður þeirra. Miles bauðst til að hjálpa
þeim að finna eftirmann Glens og kostaði fyrir þá auglýsingu I Melody
Maker og lánaði þeim kjallarann sinn til að æfa sig í. Nokkur hundruð
svara bárust við auglýsingunni, og einn af þeim, sem bauð sig fram, var
Ted Tumer, fullu nafni David Alan Tumer.
Ted Turner fæddist i Birmingham 2. ágúst 1950. Þóað hann væri val-
inn úr þessum stóra hópi hafi hann enga reynslu í hljómsveitum að
baki sér. En einhvem veginn var hljómsveitin ekki nógu pottþétt, svo þeir
ákváðu að auglýsa á ný. Þá kom Andy Powell, fæddur I Stepney 8. febrú-
ar 1950, með sinn gitar, og ákveðið var, að hann yrði fjórði meðlimurinn.
þrátt fyrir hugmyndir um að bæta frekar við hljómborðsleikara.
Andy Powell hafði leikið I ýmsum hljómsveitum frá fimmtán ára aldri.
Meðal þeirra voru nöfn eins og Sunsets, Decoys og Sugarband.
Wishbone Ash byrjaði að leika opinberlega rúmlega mánuði eftir stofn-
un og var komin á samning tæpu ári síðar hjá MCA.
En áður en svo varð, höfðu þeir félagar tekið upp „prufuplötu” mefi
hjálp hins þekkta hljóðupptökumanns Eddie Offord.
Fyrsta breiðskífan kom út í desember 1970 og þótti efnileg. Meðal
laga, sem þóttu merkilegust, voru „Blind Eye” og „Error Of My Way”.
1971 héldu þeir i sina fyrstu ferð til Bandaríkjanna, og i maí sama ár tóku
þeir upp aðra breiðskífu sína, „Pilgrimage". Hún kom út í september, en
þá höfðu Iesendur blaðanna Sounds og Melody Maker þegar valið Wish-
bone Ash sem efnilegustu hljómsveit ársins.
„Pilgrimage” hlaut mjög góðar viðtökur, bæði hjá kaupendum og
gagnrýnendum, og með henni náðu þeir mun almennari athygli.
Stillinn var orðinn ákveðnari og lögin betri, en meðal þeirra voru t.d.
„The Pilgrim”, „Vas Dis” og „Lullaby”.
Þess má geta. aðTed Turner leikur lika á kassagitar í „Crippled Inside”
á „Intagine” plötunni hans John Lennon.
„Argus” platan þeirra I Wishbone Ash kom út i april 1972, en hafði
verið tekin upp í janúar-febrúar það ár. Sú plata hækkaði enn frekar
álit þeirra, og sem dæmi má nefna, að um haustið völdu bæði lés-
endur Melody Maker og Sounds plötuna bestu plötu ársins, sem segir
mikið. Það er erfitt að tina eitthvert lag út úr sem betra en annað, en
nefnd skulu t.d. „Blowin Free”, „Warrior”, „The King Will Come” og
„Time Was”. Tónlistin var lýriskari en á fyrri plötum, fleiri lög sungin.
„Wishbone Four” var aftur á móti tekið mun kuldalegar en hinum
fyrri, þó ekki í Bandarikjunum, en ástæðan mun líklega hafa verið sú, að
öll vinna plötunnar virtist mun hrárri, bæði blöndun, spil og söngur. í
júni voru nokkrir hljómleikar teknir upp á hljómbönd, sem voru gefin út i
desember á tvöfaldri plötu, „Live Dates”. Á þessari plötu, sem telst vera
góð hljómleikaplata, er að finna flest bestu lögin þeirra af 4 fyrstu plötun-
um, auk gamla Everly Brothers lagsins. „Baby What You Want Me To
Do”.
Eftir jólin 1973 héldu þeir I þriggja vikna reisu til Bandaríkjanna, sem
átti eftir að verða sú síðasta með Ted Turner I hljómsveitinni. Eftir túrinn
var æft upp nýtt prógramm og undirbúin ný plata, en í byrjun maí 1974
tilkynnti Ted félögum sinum, að hann hygðist hætta. Ástæðan var aðal-
lega sú, að hann vildi breyta til, enda var Wishbone Ash hans fyrsta
hljómsveit.
Fyrst i stað urðu miklar vangaveltur um það, hvernig skyldi fylla i
skarðið. Hugmyndir eins og að fá píanóleikara eðtf söngvara, eða jafnvel
hvort tveggja, komu sterklega til greina. En að lokum ákváðu þeir að at-
huga, hvort einn góðvinur þeirra, Laurie Wisefield, sem hafði fengið gott
orð fyrir gitarleik sinn í Home, væri ekki til i að prófa sig.
Laurie Wisefield var ekki beint nýgræðingur í hljómsveitaheiminum.
Þær hljómsveitir, sem hann hafði leikið i á undan Wishbone Ash, voru
Inquest, Four Fabies, Sugar, Stormy Mondey og Home, en hann lék inn á
þrjár breiðskifur með þeim.
Home hætti, nokkru áður en Ted Turner hætti I Wishboné Ash, og
Laurie starfaði sem gítarleikari i hljómsveit Als Stewart (sem gerði lagið
„The YearOfTheCat” vinsælt fyrir tveim árum).
Næst hélt hljómsveitin til Miami til að taka upp sjöttu plötuna undir
leiðsögn Bill Szymczyk, sem er þekktur fyrir störf sín fyrir Eagles, J. Geils
og Joe Walsh m.a.
Platan kom út i nóvember 1974, og þótti mun meiri kraftur í henni en
fyrri plötunum, er bæði kom frá Bill og Laurie. Annars fékk hún nokkuð
sæmilegar viðtökur. Eftir þessa plötu settust þeir að i Bandaríkjunum og
heimsækja Bretland sjaldan til þess að leika þar. Þeir hafa flúið undan
sköttum, sem er orðið afar algengt um breska tónlistarmenn.
Siðan hafa þeir gefið út fjórar plötur, flestar með góðum árangri, þó
sérstaklega tvær síðari. Þær eru „Classic Ash”, sem er, eins og nafnið gef-
ur til kynna, samansafn bestu laga þeirra, og „Front Page News”.
Þess má geta i sambandi við plötulistann, að „Live From Memphis” er
illfáanleg plata, sem var gefin út i nokkrum eintökum til blaða- og úl-
varpsmanna sem kynningarplata og þykir ekkert sérstök, en á henni eru
lögin „Jail Bait”, „The Pilgrim” og „Phoenix”. Einhverjir af þieim, sem
fengu hana gefins, hafa komið henni i verð hjá nokkrum plötubúðum i
London ogá fleiri stöðum.
Plötulisti:
WISHBONEASH
(MCA MCG3507)
UK 1970
PILGRIMAGE
(MCA MCG 3504)
UK 1971
ARGUS
(MCA MCG35I0)
UK1972
WISHBONE FOUR
(MCAMCG3503)
UK 1973
LIVEDATES
(MCA MCSP254)
UK1973
THERESTHERUB
(MCA MCF 2585)
UK 1974
MILESTONES (PIL-
GRIMAGE& ARGUS)
(5C184 50373/4)
HOLLAND 1974
LIVE FROM MEMPHIS
(MCA PROMO
SPECIAL)
UK1974
MASTERS OFROCK
(5C054 96269)
ÞÝSKALAND 1975
LOCKEDIN
(MCA MCF 2750)
UK 1976
NEW ENGLAND
(MCA MCG 3523)
UKI976
CLASSIC ASH
(MCA MCF 2795)
UK1977
FRONT PAGE NEWS
(MCA MCG 3524)
UK 1977
LITLAR PLÖTUR:
1) BLIND EYE/QUEEN
OFTORTURE 1971
2) NO EASY
ROAD/BLOWIN' FREE
1972
3) SO MANY
THINGS/ROCK N ROLL
WIDOW 1973
4) HOMETO WN/PERS-
APHONE 1974
5) SIL VER
SHOES/PERSA PHONE
1975
6) OUTWARD
BOUND/L ORELEl 1976
7) PHOENIX/BL OWIN’
FREE 1977
8) FRONTPA GE NEWS
1977
8) GOODBYE BABY
HELLO FRIEND 1977
42VIKAN 25. TBL.