Vikan


Vikan - 22.06.1978, Page 43

Vikan - 22.06.1978, Page 43
Dæmd fyrir morð Heill og sæll draumráðandi. Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig eftirfarandi tvo drauma, sem mig dreymdi nýverið, hvorn á eftir öðrum, en sinn hvora nóttina. Mig dreymdi, að ég væri dæmd í 10 ára þrælkunarvinnu fyrir að drepa mann, sem ég vissi reyndar, að ég haföi ekki gert. Eg vissi, hver framdi morðið, en ekki, hver var myrtur, og hugsaði mér að hefna mín duglega á þeim, er komu þessu morði yfir á mig, þegar og ef ég losnaði, áður en ég hætti að hata. Næst fannst mér ég vera búin að vera I fangelsi í rúman mánuð og fannst hryllingur að hugsa til þess að eiga aídrei eftir að sjá borgarlífið næstu / 0 árin. Draumurinn endaði síðan á þá leið, að ég var náðuð eftir aðeins tveggja mánaða fangelsi, og þá var hefndin allsráðandi í huga minum. — Seinni draumurinn var á þá leið, að ég og tvær aðrar stúlkur vorum staddar á bóndabýii, þar sem amma mín og föð- urbróðir eiga heima. Ég sá aldrei ömmu í draumnum, en ég myrti hana samt, því mér fannst hún verafyrir okkur stelpunum, en ekki skildi ég þá, af hverju það var. Þegar ég kom úr leiðangrinum við að fela líkið (aldrei sá ég líkið), fór ég beint upp í herbergi, þar sem stelpurnar biðu mín brosandi, og ég fór strax að klæða aðra þeirra úr fötunum. (Þá rann upp fyrir mér ástæðan fyrir morðinu, amma varfyrir okkur við iðju okkar, að lesbíast). En þegar ég var hálfnuð við verk mitt, sá ég, hvar lögreglubíll kom akandi upp heimkeyrsluna. Við fiýttum okkur út, ein háf ber, en ég þurfti að snúa við og ná I eitthvað (ekki veit ég hvað), og þegar ég kom niður aftur, var of seint fyrir mig að hlaupa út á eftir hinum stelpunum, en þær hurfu út I móa. Lögregluþjónarnir, sem voru tveir, börðu að dyrum (sem aldrei eru notað- ar i daglegu lífi, en mér fannst vera notaðar núna), og gengu síðan inn eftir svolitla stund. Þá læddist ég út bak- dyramegin og hljóp beint að hesti, sem stóð úti á hlaði, og hentist á bak og þeysti af stað, en allt í einu vorum við orðnar tvær, sem vorum að fiýja á hestum, en þar var komin fjórða stúlk- an, sem ég haföi aldrei séð áður í draumnum. Draumurinn endaði á þá leið, að ég hugsaði með mér, að við kæmumst aldrei undan á hestunum, af hverju í ósköpunum við hefðum ekki farið á bílunum. (Þá ratm uppfvrir mér, að við komum á tveimur bílum). Mig drejmdi Aðeins einu sinni sá égföðurbróður mínum bregðafyrir, þá á hestbaki á leið eitthvað burt. G.J.I. Báðir þessir draumar eru þér fyrir góðu, þó nokkur slæm tákn slæðist þarna inn í. Fyrri draumurinn boðar þér aukið frelsi og aukna gleði í lífinu. Líklegast ferðu í ferðalag innan skamms, eða hlotnast frídagar, sem þú nýtur í ríkum mæli. Þín bíður mikil farsæld, en þó muntu verða fyrir einhverri niðurlæg- ingu, sem þú kemst samt yfir, og þú munt sigra í deilum, sem þú lendir í inn- an tíðar. Síðari draumurinn er að mestu leyti góður, en þó koma þar tákn, sem boða þér erfiðleika og áföll, og einnig muntu fá slæmar fréttir. Að myrða konu í draumi er yfirleitt fyrir glötuðum tækifærum. Tvö tákn þarna boða gift- ingu, og hestarnir boða þér gott gjaforð, svo sennilega verður ekki langt að bíða, að þú gangir i það heilaga. Þú munt njóta .virðingar, og heiður og upphefð bíða þín á næstunni. Mikil hamingja og gæfa ríkir í kringum þig, og þér mun takast allt vel, sem þú tekur þér fyrir hendur. Ekki með miða Kæri draumráðandi. Mig dreymdi fjóra, stutta drauma, sem gaman vœri að fá ráðningu á. Sá fyrsti er svona: Mér fannst ég vera að fara til útlanda. Ég átti enga peninga og engan farseðil og fann ekkert af eigum mínum, hvernig sem ég leitaði. Ég var alveg úrræðalaus, en samt varð ég að fara, hvernig sem á öllu skÉði. Annar draumurinn er á þessa leið: Ég var stödd I gangi, og vinstra megin við mig var lokuð hurð að herbergi, sem ég ætlaði inn I, en fyrirframan mig stóð maður, sem ég þekki, og sagði: „Þú ferð ekki inn”. „Af hverju ekki?" spurði ég. „Af því að X er þarna inni. Hann er með konu, sem er einstök, því hún bragðar ekki áfengi. ” Eannst mér það skrítið, því það sama mætti segja um mig. Ég gekk I burtu og sá sjátfa mig ganga út, heldur kindarlega. (X er maður, sem ég þrái). Hárið á mér var síðara en það er í raun og veru. Þá hugsaði ég um sjálfa mig: „Mikið getur maður verið sorgmæddur á svipinn stundum”. Þriðji draumurinn er svona: Ég og maður, sem ég þekkti í draumnum, læddumst inn á kvik- myndasýningu og fengum okkur sæti hægra megin í salnum. B.B. og C. Chaplin voru að leika saman I mynd, og fannst mér það ansi sniðugt. Eftir sýninguna, þegar allir gestirnir voru farnir, gekk eldri maður um salinn I dyravarðarbúningi og lagði sætin upp, en skildi sætin, sem við vorum I eftir, og sagði ég við manninn (sem ég skynjaði, en sá ekki): „Því skyldi hann ekki snerta sætin okkar, eða vissi hann, að við höföum enga miða?” Fjórði draumurinn er svona: Ég stóð fyrir framan vegg með gríðarlega stóru málverki af Gulfossi (fossinum). Ég dáðist að því, hve hann var hrikalegur og tignarlegur. Til vinstri handar var minni mynd, og ísaumsmynd haföi verið tyllt ofan á hana. Ég tók ísaumsmyndina af veggnum, og I Ijós kom myndaf regnboga, sem haföi skekkst af hinni myndinni, og fannst mér það broslegt, hvernig boginn kom í laginu, en I honum voru allir hugsanlegir litir. Síðan kom ég ísaums- myndinni vinstra megin við mig, þar sem hún passaði vel inn I. Með fyrirfram þökk. SÓ. Fyrsti draumurinn boðar þér breytingu á högum þínum, sem þú sættir þig ekki alveg við í fyrstu, en kemst síðan að raun um, að sé þér fyrir bestu. Annar draumurinn táknar, að hjartfólgið áhugamál muni misheppnast, og þú kemur til með að syrgja glötuð tækifæri. Þú verður fyrir fjárhagslegum gróða. Þriðji draumurinn boðar þér skemmti- lega tíma, sem þú átt í vændum, og fjöl- skyldulífið verður einstaklega gott. Þó áttu á hættu, að einhver svíki þig í mál- efni, sem skiptir þig töluverðu. Síðasti draumurinn boðar þér ferðalag, sem þú munt fara í innan skamms, og rósamt og gifturikt líf biður þín. Annars boða mið- ar í draumi yfirleitt seinkun á fréttum, sem valda því, að eitthvað hindrar ráða- gerðir þínar varðandi framtíðina. 25. TBL.VIKAN 43

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.