Vikan


Vikan - 22.06.1978, Page 46

Vikan - 22.06.1978, Page 46
Sigurvin, Gísli og Hilmar með verðlaunagripina, sem þeir hlutu í keppninni. agfiski, sem við birtum uppskriftir af hér á eftir. Aðalkeppnin var hins vegar fólgin í mat- reiðslu sex heitra rétta, þar sem undirstað- an var fiskur, skelfiskur, fuglakjöt, kálfa- kjöt, nautakjöt og grænmeti, og svo skyldu matreiddir sex kaldir réttir og hvert fat hafa að geyma mat fyrir 8 manns. Keppendur urðu að leggja til allt hráefni sjálfir, og sam- kvæmt reglunum áttu þeir að matreiða allt á staðnum. Hver hópur fékk 24 tíma í eldhúsi, og ís- lendingarnir notuðu sinn tíma svikalaust og raunar tvo tíma i viðbót, eða allt þar til rétt- irnir voru teknir úr höndunum á þeim og stillt út á sýningunni. Þeim kom óneitan- lega á óvart að sjá vinnubrögð hinna kepp- endanna, sem komu með mikið af matnum tilbúinn og gátu nostrað við skreytingarnar í rólegheitum, enda sögðu þeir, að þeim hefði legið við að pakka saman og gefast upp á staðnum áður en þeir yrðu sér til skammar, þegar þeir sáu, hvernig í pottinn var búið. En þeir tóku þann kostinn að bíta á jaxlinn — og sjá ekki eftir því. Svisslendingarnir, sem deildu með þeim eldhúsi, horfðu mikið yfir til íslendinganna og undruðust greinilega vinnubrögð þeirra. Mikil vinna, mikil vinna, tautuðu þeir, og svo heyrðu þremenningarnir, að einn sagði við annan: „Ætla þeir að skila á sama tíma og við?” íslendingarnir voru einu keppend- urnir, sem unnu allt sitt sjálfir á staðnum. Má nærri geta, að þeir félagar voru orðn- ir all þreyttir eftir 26 tíma törn í eldhúsinu, en þeir létu þó ekki eftir sér að hvílast, held- ur fylgdust með viðbrögðum sýningargesta fram eftir degi. Og þar með erum við komin að því gildi, sem þátttaka í slíkri keppni hef- ur. Ekki þarf að velta vöngum yfir þvi, að auðvitað er slik keppni þátttakendunum mikli uppörvun og þjálfun i starfi, en þó vildu þeir félagar leggja aðaláherslu á þá landkynningu, sem hún hefði í för með sér. Sýningargestir stöldruðu yfirleitt lengi við borð íslands, og i heild vakti þátttaka ís- lendinga mikla athygli, ekki sist þegar þeir náðu 4. sæti og vantaði raunar aðeins 6 stig til að ná3.sæti. Átta landslið tóku þátt í öllum greinum keppninnar. Norðmenn urðu hlutskarpast- ir (Dönum reyndar til nokkurrar undrunar, þvf Norðmenn hafa ekki haft orð á sér fyrir matargerðarlist), Austurríkismenn í 2. sæti, þá Svisslendingar, íslendingar, Danir, Vest- ur-Þjóðverjar, Svíar og Ungverjar. Vikan óskar þeim Hilmari, Sigurvini og Gísla til hamingju með árangurinn og þakkar þeim fyrir uppskriftirnar, sem les- endur geta nú spreytt sig á. K.H. kannski segja um matreiðslulandsliðið okk- ar, eins og um íþróttamennina, að þeir þre- menningarnir hafi verið einu áhugamenn- irnir! Þessi matreiðslukeppni fór fram í tengsl- um við viðamikla vörusýningu í Bella Cent- er í Kaupmannahöfn, Hotel og Restaurant 78, sem haldin var 4.—9. apríl sl. Þegar þátttak'a íslendinga var ákveðin og keppnis- stjórn hafði samþykkt tillögur þeirra að réttum, hófust þeir handa við undirbúning- inn. Þeir byrjuðu að æfa sig í september 77 og æfðu svikalaust á hverjum sunnudegi upp frá því, þar til að keppninni kom. Fyr- irtækin, sem þeir starfa hjá, kostuðu allt hráefni til æfinga, Hótel- og veitingaskól- inn lagði til húsnæðið, S.Í.S. styrkti þá fé- laga, gegn þvi að þeir notuðu hráefni frá Sambandinu, og SVG, Samband veitinga- og gistihúsaeigenda, styrkti þá einnig til þátttökunnar. Þeir litu hver á annan og hlógu, þegar ég spurði þá, hvernig æfingarnar hefðu geng- ið, og það var auðheyrt, að það hafði geng- ið á ýmsu. Aðaltíminn fór í að reyna hug- myndir og leita að réttu útfærslunni, og miklu var hent, áður en yfir lauk. Einn rétturinn var þeim sérlega óþægur, og þeir voru eiginlega búnir að ákveða að hætta við hann, þegar þeir duttu ofan á lausnina, og út kom lundafatið, sem varð stigahæsta fatið í allri keppninni! Á sýningunni var rekið veitingahús, Vært og Gæst, þar sem gestir gátu valið úr réttum keppenda, en hvert landslið lagði til tvo rétti, fiskrétt og kjötrétt. Keppendur mættu kl. 8 að morgni og útbjuggu sína rétti, sem voru dæmdir og settir á matseðil dagsins, og siðan matreiddu meistararnir eftir pöntunum gesta til kl. 5 um daginn. Veitingahúsið lagði til hráefni i 100 skammta af hverjum rétti, og íslendingarn- ir komu vel út úr þessum hluta keppninnar, þar sem þeirra réttir seldust nálega upp. Það voru réttirnir Goðalamb og Steikt heil- Borðin voru ákaflega fallega skreytt, jafn- vel blóm- in voru í fánalitunum. 46VIKAN 25. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.