Vikan - 21.12.1978, Page 4
Islensku feröafólki í París vísað til veitingahúsavegar
I dagstofu
Parísarbúa
I dag: Kaffihús Parísar
Þar lesa menn frönsku útgáfurnar af
Dagblaðinu og Vikunni, skrifa bréf eða
hringja í vini sína. Þar lesa menn lexi-
urnar sínar, biða eftir stúlkunni sinni
eða rita æviminningar sínar. Þar finna
menn nýjar heimspekikenningar, semja
unt viðskipti eða hella sig fulla. Þar
mælir fólk sér mót eða situr bara og
horfir á lifiðstreyma hjá.
Þetta eru kaffistofurnar i Paris, sem
eru eins konar framlengd dagstofa
Parisarbúa. Þar sitja þeir, þegar þeir eru
ekki að vinna eða sofa. Enda eru litil
takmörk sett þeim notum, sem Parisar-
búar geta haft af kaffistofunum, horn-
steini daglegs lifs þeirra.
Hvorki bar,
pöbb né knæpa
Frönskum kaffihúsum er ekki hægt
að líkja við ameríska bari, breska pöbba,
þýskar knæpur né islensk kaffihús. í
Paris selja kaffistofurnar jöfnum
höndum kaffi og kakó, létt vín og bjór,
sterka drykki. snarl og heilar máltiðir.
Kaffihúsin i Paris heita oftast Café.
Stundum heita þau Bistro og einstaka
sinnum Tabac. Munurinn er afar litill, ef
hann er nokkur. Á Bistro er stundum
meira úrval af léttum vínuni eða bjór en
á venjulegu Café. Og Tabac er tóbaks-
vörubúð um leið og hún er kaffistofa.
Þú færð að sitja og sitja
Lýðræðið blómgast á kaffihúsum
Parísar. Þú velur þér sjálfur laust sæti
úti á gangstétt eða inni við gafl. Þú getur
pantað þér einn kaffibolla að morgni
dags og setið yfir honum til kvölds.
Þjónarnir ónáða þig ekki, þvi að það er
siðvenja. að hver fái að sitja eins lengi og
honum þóknast.
Mest er um að vera á kaffistofunum
upp úr klukkan tólf á hádegi og sex að
kvöldi, þegar menn þyrpast inn til að fá
sér glas fyrir matinn. Þá fara menn að
„diskinum", sem Frakkar kalla Zinc, og
drekka standandi, þvi að þá sleppa menn
við 15% þjónustugjaldið.
Aðrir, sem nógan timann hafa, láta
fara vel um sig i stól úti á gangstétt og
líta letilega í kringum sig. Það eru ekki
bara túristar, sem hanga við gangstéttar-
borðin. Þar eru lika Parisarbúar að
skoða mannlífið.
Kaffið gott og súkkulaðið best
Kaffi er gott á frönskum kaffihúsum,
mun betra en menn eiga að venjast á
íslandi, og kostar 4-5,50 franka. Af te er
viða hægt að fá nokkurt úrval á 5-6,50
franka. Best er þó súkkulaðið. sem er i
hollenskum gæðaflokki og kostar 4-6,50
franka.
Bjór er vondur og kostar 4,50-5,50
franka. Útlendur bjór, sem er betri,
kostar mun meira. Vinglasið kostar um
5-8,50 franka eftir gæðum vínsins og
stöðu kaffihússins. Koníakið kostar 10-
14 franka og flestir lystaukar (aperitiv)
6,50-10franka.
1 Paris borga menn ekki hvern drykk
fyrir sig. Menn borga um leið og þeir
fara. Þá leggur þjónninn 15% gjald ofan
á verðin, sem lýst hefur verið hér, og
hreinsar til af borðinu.
Kaffistofurnar eru opnar, þegar
eigendunum þóknast. Yfirleitt loka þeir
ekki fyrr en sárafáir viðskiptavinir eru
eftir. Margir loka klukkan eitt að nóttu,
aðrir klukkan tvö og sumir loka aldrei. í
öllum hverfum er hægt að finna opna
kaffistofu á hvaða tima sólarhringsins
sem er.
Gott að sitja við elstu kirkjuna
Frægasta kaffihús i Paríser Cafédela
Pai.x við óperutorgið, Place de l’Opéra, á
hægri bakkanum. Þetta er fremur dýr
stofa, en ekki óhugnanlega. Nú orðið er
þar orðið litið um Frakka. Hins vegar er
sagt, að sitji maður þar einn dag. sjái
menn um síðir hvern einasta
Bandaríkjamann, sem staddur er i París
þann daginn.
Vinir, Pygmearnir hafa undirbúið
• stórkostlega veislu,
gjörið svo vel að setjast til borös._
4 Vlkan Sl.tbl.